Gunnlaugur um gengi Skagamanna: "Það örlar á örlitlu stressi í hópnum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júní 2015 21:42 Gunnlaugur Jónsson. vísir/ernir „
Ég er gríðarlega óhress með mannskapinn og mitt lið,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, eftir ósigurinn í kvöld. Skagamenn töpuðu illa fyrir Fjölni, 3-0, í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins. ÍA hefur því tapað fjórum leikjum í röð og er í næstneðsta sæti Pepsi-deildarinnar. „Við erum bara ekki klárir þegar leikurinn hefst og við þurftum að lenda 2-0 undir til þess að vakna og það er bara óásættanlegt. Sérstaklega eftir tap á móti þessu sama liði á sunnudaginn, það er ekki lengra síðan.“ Gunnlaugur vildi ekki ræða gang leiksins við sína leikmenn inn í klefa og mun bíða með það til morguns. „Maður getur bara sagt eitthvað sem maður sér eftir, svona stuttu eftir leik. Það er ljóst að liðið hefur núna tapað fjórum leikjum í röð og það er ekki ásættanlegt.“ Skagamenn mæta Fylki í næstu umferð Pepsi-deildarinnar en er komið stress í hópinn? „Já, það örlar á örlitlu stressi í hópnum, það er ekki hægt að neita því. Við erum ekki jafn öryggir og í fyrstu leikjunum. Þetta eru fjórir tapleikir í röð, það er brekka sem við erum í og getum ekki lokað augunum fyrir þeirri staðreynd. Við þurfum að finna einhver ráð til að koma mönnum upp á tærnar.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið McGregor sakaður um nauðgun Sport Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Enski boltinn Aron Einar valinn en enginn Gylfi í hópnum Fótbolti „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Íslenski boltinn „Ung ég hefði verið í andlegu áfalli“ Sport FIFA hótar félögunum stórum sektum Fótbolti Segir æðislegt að fá Aron til sín Handbolti Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Körfubolti Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Fleiri fréttir Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Haraldur hættir hjá Víkingi Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Alexander endurnýjar kynnin við Óskar Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni Ákvörðun Ómars kom á óvart: „Þökkum honum fyrir ómetanlegt starf“ Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa líklega að treysta á lögreglu Matthías og Kristján taka við Valsliðinu Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Fótboltamamma Íslands í vanda: „Verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“ Eiður Aron riftir við Vestra Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“ Gylfi besti leikmaðurinn í Bestu deildinni samkvæmt tölfræðinni Valur staðfestir í annað sinn að Fanney Inga sé á leið til Svíþjóðar „Hefði verið ógeðslega tilfinning ef allt væri búið og maður væri kominn í frí“ Sjá meira