Íslenski boltinn

Viktor hetja Þróttara í Grindavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Viktor Jónsson, leikmaður Þróttar.
Viktor Jónsson, leikmaður Þróttar. Vísir/Stefán
Þróttur er enn með fullt hús stiga á toppi 1. deildar karla en liðið vann í kvöld sigur á Grindavík, 1-0, í lokaumferð 5. umferðar.

Viktor Jónsson skoraði eina mark leiksins á 85. mínútu en það var hans sjötta deildarmark í sumar.

Grindvíkingar höfðu þó verið líklegri aðilinn til að skora í leiknum þar til að Viktor, sem er lánsmaður frá Víkingi, skoraði mark Þróttar.

Grindavík er í tíunda sæti deildarinnar með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×