Viðskipti innlent

Eftir 30 ár á Drekasvæðinu vonast Steinar til að styttist í gleðitíðindi

Kristján Már Unnarsson skrifar

Íslenskur jarðeðlisfræðingur, sem byrjaði fyrir yfir þrjátíu árum að leita olíu á Drekasvæðinu, segir að nú séu sterk fyrirtæki komin inn sem dragi vagninn og vonast hann eftir skemmtilegum tíðindum af olíuleitinni innan fárra ára.

Segja má á að athöfnin í Ráðherrabústaðnum í byrjun síðasta árs hafi markað formlegt upphaf olíuleitar í lögsögu Íslands en þá voru fyrstu sérleyfin afhent olíufélögum. Olíuleitin á sér þó mun lengri aðdraganda, eða allt aftur til þess tíma þegar Íslendingar og Norðmenn sömdu um lögsögumörk á Jan Mayen-svæðinu fyrir 33 árum. Hluti samkomulagsins var að Norðmenn kostuðu rannsóknir á svæðinu en meðal þeirra sem að þeim komu var Steinar Guðlaugsson jarðeðlisfræðingur.

„Við fórum nú ansi snemma af stað, fólk tengt Orkustofnun, sem þá var, og tókum þátt í að móta fyrstu rannsóknir á svæðinu í kjölfar samninganna sem gerðir voru um Jan Mayen-svæðið árið 1981. Ég held að ég hafi komið fyrst að þessu 1983 eða ´84,“ sagði Steinar í viðtali í fréttum Stöðvar 2.

Steinar starfar nú fyrir verkfræðistofuna Mannvit og Eykon Energy og sat í byrjun vikunnar á fundum með erlendum olíufélögum í Reykjavík við að undirbúa rannsóknir næsta sumars.

„Við erum bara komin vel áleiðis og það er mjög ánægjulegt að sjá það, fyrir fólk sem hefur verið að vinna að þessum málum í mjög langan tíma,“ segir Steinar. 

Innkoma kínverska félagsins CNOOC í byrjun þessa árs þykir marka þáttaskil en félagið er í hópi stærstu olíufélaga heims og hefur fjárhaglega getu til að standa fyrir dýrum borunum í hafi. 

„Þarna vegast á fjárhagsleg áhætta þeirra sem eru að fara í þessa vinnslu og mögulegur ávinningur. Og allt er þetta í góðum lagaramma um auðlind, að mörgu leyti fyrirmynd auðlindalöggjafar, sá rammi sem er um þetta hér.

Nú erum við líka komin með sterka aðila inn sem geta dregið vagninn. Þannig að ég er ánægður með á hvaða stað þetta er komið og vonast til þess að rannsóknaráætlanir gangi vel og að það verði hægt að segja frá einhverju skemmtilegu innan allt of margra ára,“ sagði Steinar Guðlaugsson. 


Tengdar fréttir

Kínverjar mættir til að hefja olíuleitina

Leyfishafar á Drekasvæðinu undir forystu kínverska félagsins CNOOC ákváðu á fundi í dag að hraðar yrði farið af stað í olíuleitina en áætlanir gerðu ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×