Viðskipti innlent

Til­kynna breytingar á lána­fram­boði

Árni Sæberg skrifar
Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði sínu.
Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði sínu. Vísir/Vilhelm

Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði bankans vegna dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Tímabundið verða einungis óverðtryggð lán á föstum vöxtum í boði.

Í tilkynningu á vef bankans segir að bankinn hafi haft til skoðunar áhrif dóms Hæstaréttar sem kveðinn var upp 14. október 2025 á vöruframboð bankans þegar kemur að húsnæðislánum til einstaklinga. Mikil vinna hafi átt sér stað innan bankans við að meta að hvaða marki þörf sé á að breyta vöruframboði bankans í kjölfar dómsins og breytingar á lánavörum verið mótaðar.

Óverðtryggð með föstum vöxtum áfram í boði

Íslandsbanki muni halda áfram að bjóða óverðtryggð húsnæðislán með fasta vexti til þriggja og fimm ára. Eftir að fastvaxtatímabili lýkur muni lántaka bjóðast endurfjármögnun á markaðskjörum samkvæmt vaxtatöflu Íslandsbanka án uppgreiðslugjalds. Taki lántaki ekki tilboði um endurfjármögnun taki við breytilegir vextir, sem miðist við stýrivexti Seðlabanka Íslands að viðbættu álagi. Nánari upplýsingar um kjör má finna á vef bankans

Lántaki verði upplýstur um þessa nýju vexti 30 dögum áður en þeir taka gildi og geti á þeim tíma endurfjármagnað án uppgreiðslugjalds.

Stöðva líka verðtryggð á föstum vöxtum tímabundið

Þá muni bankinn jafnframt halda áfram að bjóða verðtryggð húsnæðislán til einstaklinga með föstum vöxtum. Ríkisstjórnin hafi í gær kynnt viðbragð vegna dómsins sem feli það í sér að í samráði við Seðlabanka Íslands verði hafið eins fljótt og auðið er birting vaxtaviðmiðs sem getur legið til grundvallar verðtryggðum lánum.

Bankinn telji  því rétt að gera hlé á veitingu verðtryggðra húsnæðislána til einstaklinga með föstum vöxtum svo unnt sé að gera grein fyrir því viðmiði í uppfærðum skilmálum slíkra lána. Áður hafi bankinn tilkynnt að gert yrði hlé á veitingu verðtryggðra húsnæðislána til einstaklinga með breytilegum vöxtum.

Kynna ný óverðtryggð með breytilegum fljótlega

Íslandsbanki muni jafnframt gera á hlé á veitingu óverðtryggðra húsnæðislána til einstaklinga með breytilegum vöxtum. Stefnt sé að því að kynna nýtt lánsform fyrir slík húsnæðislán á næstu vikum.

Íslandsbanki bjóði lántökum sem eru með óverðtryggð húsnæðislán upp á fastar greiðslur sem henti lántökum sem vilja lækka greiðslubyrði tímabundið í háu vaxtastigi.

Vakin sé sérstök athygli á því að þessar breytingar nái aðeins til nýrra húsnæðislána til einstaklinga og hafi ekki áhrif á einstaklinga sem þegar eru með húsnæðislán hjá bankanum.

Landsbankinn reið á vaðið og Arion banki er undir feldi

Landsbankinn hefur þegar tilkynnt breytingar á lánaframboði sínu vegna dóms Hæstaréttar. Breytingarnar fela í sér að aðeins fyrstu kaupendur geta fengið verðtryggt íbúðalán og breytilegir vextir bera fast álag ofan á stýrivexti Seðlabankans.

Arion banki tilkynnti skömmu eftir uppkvaðningu dóms Hæstaréttar að hann hefði gert hlé á veitingu verðtryggðra lána.

Í tilkynningu Arion banka þess efnis sagði að skilmálar íbúðalána bankans með breytilega vexti væru ólíkir þeim sem voru dæmdir ólögmætir í máli Íslandsbanka. Óháð því myndi dómstólinn síðar taka fyrir mál sem snúi að láni Arion banka með breytilegum verðtryggðum vöxtum. Landsréttur hefði dæmt bankanum í vil í febrúar en óvissa ríkti um lögmæti vaxtabreytingarskilmála verðtryggðra lána á meðan beðið er niðurstöðu Hæstaréttar í málinu gegn Arion.

Reikna má með því að Hæstiréttur kveði upp dóm í máli Arion banka þann 15. desember. Bankinn ætlar ekki að sitja auðum fram að uppkvaðningu dómsins.

„Þegar kemur að verðtryggðum íbúðalánum þá erum við að leita leiða til að bjóða einhvers konar bráðabirgðalausn fyrir fasteignakaupendur þar til Hæstiréttur fellir sinn dóm í desember. Staðan er nokkuð snúin en vonir okkar standa til þess að þetta skýrist á næstu dögum frekar en vikum,“ sagði Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, í svari við fyrirspurn Vísis á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×