Íslenski boltinn

Jafnt í Kórnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
HK og Haukar skildu jöfn, 1-1, í eina leik kvöldsins í 1. deild karla í knattspyrnu.

Axel Kári Vignisson skoraði mark HK á níundu mínútu en Brynjar Benediktsson jafnaði metin fyrir Hauka um miðjan síðari hálfleikinn.

Þetta var fyrsti leikurinn í annarri umferð og HK er á toppnum með fjögur stig. Þetta var fyrsta stig Hauka eftir að liðið tapaði fyrir Þrótti fyrir viku síðan.

Stefán Karlsson, ljósmyndari 365, fór í Kórinn og tók þessar myndir.

Umferðinni lýkur á morgun með fimm leikjum:

14.00 Grindavík - ÍA

14.00 Víkingur Ó - Selfoss

14.00 Þróttur - KA

14.00 Leiknir - BÍ/Bolungarvík

16.00 Tindastóll - KV

Vísir/Stefán
Vísir/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×