Íslenski boltinn

Vilhjálmur Darri: Dauðskammast mín

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KV fór upp í 1. deild síðasta haust undir stjórn Páls Kristjánssonar. Hér fagna menn sætinu.
KV fór upp í 1. deild síðasta haust undir stjórn Páls Kristjánssonar. Hér fagna menn sætinu. Vísir/Daníel
Vilhjálmur Darri Einarsson, leikmaður KV, fór mjög niðrandi orðum um þjálfarann sinn eftir að hafa verið skipt af velli í leik í Reykjavíkurmóti karla í gær en fótbolti.net birti frétt og myndband af því þegar leikmaðurinn hraunaði yfir þjálfara sinn Pál Kristjánsson.

Þetta hófst með því að þjálfarinn Páll Kristjánsson bað Vilhjálm Darra um að róa sig. Leikmaðurinn refst á móti og ákvað því þjálfarinn að skipta honum af velli. Vilhjálmur Darri úthúðaði þjálfara sínum síðan á leiðinni af velli.

Vilhjálmur Darri notaði ummælakerfið við myndbandið á vefsíðu fotbolta.net til að biðjast afsökunar á framferði sínu. Vilhjálmur segist þar ánægður með birtingu myndbandsins, hann dauðskammist sín og vonast til að verða fyrirgefið.

Yfirlýsing Vilhjálms Darra Einarssonar:

Ég er ánægður að Hafliði Breiðfjörð hafi birt þessa grein enda fréttnæm grein fyrir þær sakir að svona hegðun á ekki að sjást og er ekki líðandi. Ef þessi grein hefði ekki verið birt þá hefði ég að einhverju leyti komist upp með þetta sem er af og frá.

Ég harma þetta atvik og dauðskammast mín, ég brást liði mínu en um fram allt sjálfum mér. Ég er fotbolta.net þakklátur að hafa fegnið að sjá á bláköldu hverslags sjálfhvert fífl ég get orðið þegar ég gleymi mér í hita leiksins.

Ég bað Pál Kristjánsson þjálfara KV og einn af stofnendum klúbbsins innilegrar afsökunnar. Ég dauðskammast mín en batnandi manni er best að lifa. Ég harma þetta atvik og vona ég að svona hegðun sjáist aldrei aftur í íslenskri knattspyrnu. Ég vona að fótboltaunendur og leikmenn geti með tímanum fyrirgefið mér þetta.

Virðingafyllst og von um annað tækifæri.

Vilhjálmur Darri Einarsson.


Tengdar fréttir

Vilhjálmur Darri úthúðaði þjálfaranum sínum

Ótrúleg uppákoma átti sér stað í leik KV og Fylkis í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í kvöld. Einn leikmanna KV fór mjög niðrandi orðum um þjálfarann sinn eftir að hafa verið skipt af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×