Íslenski boltinn

Ekkert hatur á Laugardalsvellinum á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir á morgun Kýpur í undankeppni HM fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll en það seldist upp á leikinn fyrir löngu. Íslenska liðið getur stigið skref í átt að því að komast á HM í Brasilíu með sigri.

Verkefni gegn hatursorðræðu á Íslandi, sem meðal annars er beint gegn hatursáróðri og kynþáttafordómum, verður ýtt úr vör á landsleik Íslands gegn Kýpur á Laugardalsvellinum á morgun en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Hópur stofnana og samtaka á Íslandi stendur á bak við átakið og er það hluti af verkefni Evrópuráðsins sem ber heitið No Hate Speech Movement. Fyrir hönd Mennta- og menningarmálaráðuneytisins annast eftirtaldir aðilar útfærslu verkefnisins á Íslandi: SAFT, Heimili og skóli – Landssamtök foreldra,  SAMFÉS, Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn, í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Verkefnið stendur fyrir jafnrétti, virðingu, mannréttindum og fjölbreytileika. Því er beint gegn hatursáróðri, kynþáttafordómum og mismunun á netinu. Markmiðin eru m.a. að stuðla að vitundarvakningu um hatursáróður og hatursorðræðu á netinu meðal ungs fólks, kynna þau fyrir mikilvægi miðlalæsis, styðja þau í að verja mannréttindi á netinu og utan þess og auka vitund gegn hatursáróðri á netinu.

Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá í vetur, en næsta föstudag, 11. október, munu m.a. ungmenni úr ungmennaráði SAFT mæta á Laugardalsvöllinn fyrir leik Íslands og Kýpur og dreifa efni sem ætlað er að vekja umræðu og vitund um hatursáróður. Auk ungmennanna munu fulltrúar þeirra samtaka sem standa að verkefninu dreifa efni og ræða málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×