Með samþykkt laganna um Icesave eftir slétta viku yrði Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) gert kleift að hefja endurgreiðslu á lágmarkstryggingu innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans til Breta og Hollendinga. Notaðir yrðu þeir fjármunir sem endurheimst hafa úr þrotabúi Landsbankans, eignir tryggingasjóðsins og framlag úr ríkissjóði eftir því sem á þyrfti að halda.
Skiptar skoðanir eru á því hversu stórt hlutverk gengi krónunnar leikur í mati á áhættu tengdri nýjum Icesave-samningi. Yfir níutíu prósent af þeim tekjum sem þrotabúið fær eru í erlendum gjaldeyri.
Fjórðungsfall krónu yrði dýrt
Í nýrri umfjöllun hagdeildar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefur verið dregin upp mynd af mögulegum áhrifum gengissveiflna krónunnar. Til hliðsjónar við útreikninginn var hafður fyrri útreikningur Seðlabanka Íslands. (Sjá töflu hér til hliðar.) Þar kemur fram að veikist gengi krónunnar um 25 prósent hafi það umtalsverð neikvæð áhrif á kostnað ríkissjóðs. „Hann mun þá aukast um 92 milljarða og fara í 119 milljarða," segir þar og um leið er bent á að gengisstyrking hafi aftur á móti minni áhrif, en 25 prósenta styrking krónunnar myndi lækka kostnað ríkissjóðs um 14 milljarða.

Tímasetning ekki tilviljun
Eftir stendur spurningin um hversu líklegt það sé að gengisþróun krónunnar verði óhagstæð á þeim tíma sem mestu varðar við endurgreiðslu og heimtur vegna Icesave-samningsins. Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur í nýlegri umfjöllun komist að þeirri niðurstöðu að gengisáhætta í Icesave-samningnum sé viðunandi þegar litið sé til þeirra hagsmuna sem Ísland hafi af því að ljúka málinu. Hann hefur bent á að veikist gengi krónunnar aukist heimtur úr þrotabúinu, en þar sem íslenski tryggingarsjóðurinn fái ekki meira en 677 milljarða úr því, en þeirri tölu yrði náð við um tólf prósenta veikingu, hafi öll veiking umfram það þau áhrif að skuldirnar aukist án þess að meira fáist úr þrotabúinu. Á móti bendir Friðrik á að raungengi krónunnar sé nú 20 til 30 prósentum fyrir neðan meðaltal síðustu áratuga, jafnvel þó að þensluárunum skömmu fyrir hrun sé sleppt.
Þótt ekki sé hægt að útiloka sveiflur á gengi krónunnar virðist vart fyrir hendi efnahagslegar forsendur mikilla sveiflna. Þá geti Seðlabankinn að verulegu leyti stjórnað breytingum á gengi krónunnar, svo fremi sem gjaldeyrishöft séu við lýði.
„Beinir hagsmunir ríkisins af því að gengi krónunnar haldist stöðugt eru verulegir að Icesave slepptu: Hreinar erlendar skuldir opinberra aðila eru nú um 380 milljarðar króna. Ríkissjóður er einnig í ábyrgð fyrir erlendum skuldum Landsvirkjunar sem nema um 3,2 milljörðum dollara eða nálægt 370 milljörðum króna á núverandi gengi," segir í grein Friðriks Más í Fréttablaðinu 30. mars.
Áfram lokað með óleyst mál
Þorbjörn Atli Sveinsson, sérfræðingur greiningardeildar Arion banka, bendir á að tæpast sé tilviljun að í nýrri áætlun um afnám gjaldeyrishafta sé miðað við að því ljúki ekki fyrr en árið 2015. „Þá verður þetta mál búið að mestu leyti," segir hann og kveður næstu tvö ár skipta mestu máli, bæði fyrir gjaldeyrisáhættu og endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans.
„Það eiga að koma inn tæplega 250 milljarðar næstu tvö árin og þá er maður kominn með um það bil 50 til 60 prósent upp í þessa fjárhæð og gjaldeyrisáhættan minnkar um leið," segir Þorbjörn Atli. „Það er náttúrlega alltaf einhver áhætta fyrir hendi í báðar áttir í svona samningum, en undirliggjandi þættir á borð við viðskiptaaðgang og gjaldeyrishöft ættu að geta stutt við krónuna og rúmlega það. Seðlabankinn ætti að geta haldið áfram að kaupa, en manni þætti alveg galið ef þeir færu að kaupa gjaldeyri og veikja krónuna með snjóhengjuna sem bæði felst í Icesave og stöðu útlendinga sem vilja komast með krónur úr landi."

„Ekki er hægt að fullyrða að lausn Icesave deilunnar muni sjálfkrafa leiða til þess að erlendir lánsfjármarkaðir opnist og þar með verði öllum hindrunum rutt úr vegi fyrir auknum fjárfestingum og nauðsynlegri endurfjármögnun eldri lána. En það má segja með nokkuð góðri vissu að á meðan deilan er óleyst þá munu erlendu lánsfjármarkaðirnir vera lokaðir. Slíkt ástand er áskrift að stöðnun," segir í umfjöllun hagdeildarinnar.