Körfubolti

Jón Arnór stigahæstur í tapleik hjá CB Granada

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson átti fínan leik með CB Granada í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag en það dugði þó ekki til sigurs því CB Granada tapaði með tólf stigum á heimavelli fyrir Bilbao, 66-78.

Jón Arnór skoraði 16 stig á 32 mínútum í leiknum og var stigahæstur hjá Granada-liðnu. Hann hitti meðal annars úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Jón Arnór var einnig með 2 fráköst, 2 stolna bolta og 1 stoðsendingu.

CB Granada var einu stigi yfir í hálfleik, 36-35, en missti leikinn frá sér í seinni hálfleik. Jón Arnór skoraði þrjár af fjórum þriggja stiga körfum sínum í fyrri hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×