Fótbolti

Indriði og Birkir skoruðu í sigri Viking

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birkir Bjarnason í leik með íslenska U-21 landsliðinu.
Birkir Bjarnason í leik með íslenska U-21 landsliðinu.

Þeir Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason voru báðir á skotskónum þegar að Viking vann 4-2 sigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Báðir voru í byrjunarliði Viking og léku allan leikinn en þetta var þriðja mark Birkis í röð. Alls hefur hann skorað fjögur mörk á tímabilinu þrátt fyrir að hafa verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla.

Viking er nú í sjötta sæti norsku deildarinnar með átján stig eftir ellefu leiki. Molde er í tólfta sæti með tólf stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×