Körfubolti

Helena og félagar áfram í úrslitakeppninni

TCU, lið Helenu Sverrisdóttur í bandaríska háskólaboltanum, vann í nótt fyrsta leik sinn í úrslitakeppninni í Mountain West deildinni. Liðið lagði Air Force skólann 60-47 og skoraði Helena 6 stig í leiknum.

Keppt var í Las Vegas og með sigrinum komst TCU í undanúrslit Mountain West deildarinnar. Liðið sem vinnur þá úrslitakeppni kemst í "March Madness" keppnina svokölluðu þar sem 64 bestu háskólalið Bandaríkjanna reyna með sér.

TCU mætir San Diego State í undanúrslitum Mountain West úrslitakeppninnar og keppa liðin aðfararnótt laugardagsins. San Diego State hafnaði í 5. sæti í deildakeppninni en TCU í öðru sæti.

Lið Utah varð í efsta sæti eftir deildakeppnina en liðið féll mjög óvænt úr leik fyrir Colorado State í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×