Mjög sáttur með að fá að koma inn og klára leikinn Óskar Ófeigur Jónsson í Róm skrifar 10. júní 2008 22:07
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma unnu frábæran 84-70 sigur á Montepaschi Siena og komu í veg fyrir að Siena-menn ynnu ítalska meistaratitilinn á þeirra eigin heimavelli. Jón Arnór stóð sig mjög vel og fór hreinlega hamförum í fyrsta leikhluta þegar hann skoraði öll sjö stigin sín. Jón Arnór tók auk þess 3 fráköst og stal 5 boltum á þeim 26 mínútum sem hann spilaði og Roma vann leikinn með 14 stigum þegar hann var inn á. Jón Arnór var ánægður og sáttur í leikslok og fékk líka að mikla athygli hjá fjölmiðlamönnum eftir leik. „Við náðum að vera við hliðina á þeim allan leikinn og þá finnst mér eins og þeir séu öðruvísi. Þeir eru að gera mistök í endann. Ég trúi því að ef að við náum að halda þessu jöfnu þá gengur þetta mun betur hjá okkur en þegar að við erum komnir 20 stigum yfir. Við gerðum mistök en ekki of mörg og vorum síðan traustir í vörninni," sagði Jón Arnór eftir sigurinn á Siena í kvöld. Jón Arnór spilaði lokakafla leiksins með fjórar villur en fékk ekki fimm villur eins og í síðasta leik. „Ég var orðinn svolítið þreyttur og bað um skiptingu. Svo tóku þeir góða rispu en ég var mjög sáttur með að fá að koma inn og klára leikinn. Hann hefur látið mig gera það í vetur. Ég reyndi að koma ró á þetta og passa það að menn yrði of spenntir," sagði Jón Arnór eftir leikinn.
Körfubolti Mest lesið Raygun er hætt: Vildi það ekki en verður að hætta Sport Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Enski boltinn Þurftu að sauma sautján spor í andlit Barcelona stráksins Fótbolti Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ Handbolti „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ Handbolti CrossFit íþróttafólkið græddi á sigri Trump Sport Myndir: Skiltin fuku um koll fyrir leikinn mikilvæga í Kópavogi Fótbolti Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Enski boltinn Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Gummi Tóta og félagar tilbúnir að „leggja örkinni“ á Brúnni Fótbolti Fleiri fréttir „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur „Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“ Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri Sjá meira