10 þúsund fráköst hjá Garnett 14. janúar 2007 12:45
Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Auk þess að ná áfanganum merkilega var Garnett maðurinn á bakvið sigur Minnesota í leiknum, en hann skoraði 12 stig í síðasta leikhlutanum. Jason Kidd var bestur hjá New Jersey með 24 stig, 13 stoðsendingar og sex fráköst. Pheonix vann Orlando, 107-101, en þetta var áttundi sigurleikur liðsins í röð. Boris Diaw var aðeins einu frákasti frá því að ná þrefaldri tvennu en hann tók níu slík og bætti við 19 stigum og 11 stoðsendingum. Dwyane Wade var magnaður fyrir Miami gegn Utah í nótt en meistararnir frá því í fyrra unnu 119-110 sigur, þann fjórða í röð. Wade skoraði 32 stig, gaf 10 stoðsendingar og stal auk þess sex boltum frá andstæðingum sínum. Carlos Boozer skoraði 29 stig og tók 14 fráköst hjá Utah. Manu Ginobili skoraði 19 stig og Tim Duncan 18 þegar San Antonio vann auðveldan sigur á Washington á heimavelli sínum, 93-80. Slæm nýting Washington olli því að liðið átti aldrei möguleika á sigri, en skotnýting liðsins utan af velli var aðeins 31% í leiknum. Tracy McGrady skoraði 37 stig þegar Houston vann sinn fjórða leik í röð - nú gegn Sacramento eftir framlengingu, 115-111. LeBron James var með 28 stig þegar Cleveland lagði LA Clippers 104-92 og þá burstaði Chicago lið Memphis með 45 stiga mun, 111-66. Þess má geta að Memphis skoraði aðeins níu stig í fjórða og síðasta leikhlutanum.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Ísland - Spánn | Besta lið heims í Dalnum Fótbolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira