Sport

Ísland vann Holland

Ísland vann Holland 78-74 í landsleik í körfubolta í Groningen í Hollandi í  kvöld. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að hafa 2-3 stiga forystu allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 36-37 fyrir Ísland. Stórleikur Íslands í þriðja leikhluta skóp svo sigurinn en strákarnir unnu þriðja leikhluta 16-30. Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur með 26 stig, næstur var Hlynur Bæringsson með 22 stig. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×