Sport

Norska úrvalsdeildin

Haraldur Freyr Guðmundsson skoraði fyrir lið sitt Álasund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Álasund tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Hannesi Sigurðssyni og félögum hans í Vikingi. Lið Jóhannesar Harðarssonar, Start, hefur 6 stiga forystu í deildinni og er með 30 stig eftir sigur á Fredrikstad 2-1. Brann, með liðsmennina Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Sigurðsson, vann Hamarkameratene 2-0 og er í 2. sæti deildarinnar með 24 stig eins og Víkingur í Stavangri. Kristján Örn Sigurðsson var valinn besti maður leiksins hjá netmiðlinum Nettavisen. Lyn, liðið sem Stefán Gíslason spilar með, sigraði Bodö Glimt 3-1 á útivelli og er í 4. sæti deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×