

Hvernig á stjórnarskráin að vera?
Þessi ákvörðun kemur ekki á óvart því eftir stjórnarfars- eða stjórnskipunarkreppuna í sumar sem leið sögðu leiðtogar ríkisstjórnarinnar, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, að endurskoða þyrfti ákvæði stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta.
Ekki er enn búið að skipa stjórnarskrárnefndina og ekkert erindisbréf henni til handa er til. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur talað um að endurskoðunin eigi að vera víðtæk en ekki að beinast eingöngu að þáttum eins og valdsviði forseta og Alþingis. Ekki er hægt að skilja orð ráðherrans öðruvísi en svo að nefndin fái í raun frjálsar hendur um það hvaða þætti stjórnarskrárinnar hún kýs að skoða og gera tillögur um breytingar á.
Það er auðvitað spennandi að allt skuli vera á borðinu, eins og sagt er, en það skapar líka ákveðna hættu á því að nefndin komi litlu eða engu frá sér eða takist ekki að ljúka verkinu innan tímamarka sem eru tvö ár. Hugmynd forsætisráðherra er að stjórnarskrártillögur verði tilbúnar fyrir næstu alþingiskosningar.
Skoðanir á Vísi vilja benda lesendum sínum á að stjórnarskrána í heild er að finna hér á þessari vefsíðu Alþingis. Lesið hana yfir og veltið því fyrir ykkur hvernig þið vilduð að hún væri orðuð eða samansett ef þið fengjuð að ráða.
Hér eru nokkur atriði til hugsa um í tengslum við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Segið skoðun ykkar á þeim hér fyrir neðan.
1. Eigum við áfram að hafa þjóðkjörinn forseta með samskonar völd og nú? Eða ætti að draga úr völdum sem embættinu fylgja og gera það eingöngu að táknrænni tignarstöðu? Ættum við að láta Alþingi kjósa forsetann í stað þjóðarinnar eða jafnvel láta forseta Alþingis gegna báðum embættunum? Hvernig litist ykkur á Halldór Blöndal á Bessastöðum? Nema við lokum forsetasetrinu? Og svo má enn velta því fyrir sér hvort við ættum að nota tækifærið og koma okkur upp kóngi eins og sumir veltu fyrir sér í fullri alvöru áður en lýðveldið var stofnað árið 1944. Ýmsir með blátt blóð í æðum eru víst á lausu utanlands.
2. Eigum við að gera breytingar á framkvæmdavaldinu, ríkisstjórninni? Hvernig væri að forsætisráðherra væri þjóðkjörinn og fengi miklu meiri formlegri völd en hann hefur nú?
3. Þarf að kveða á um það í stjórnarskrá að framkvæmdavaldið geti ekki skipað dómara? Að Alþingi þurfi til dæmis að samþykkja dómara í Hæstarétti?
4. Er þetta rétti tíminn til að breyta kjördæmaskipaninni. Laga atkvæðavægið milli landshluta? Nú eða gera landið allt að einu kjördæmi?
5. Ætti að breyta stöðu þjóðkirkjunnar og kannski rjúfa tengsl hennar við ríkisvaldið.
6. Þarf að kveða fastar eða skýrar að orði um mannréttindi? Þarf að taka á friðhelgi einkalífs með skýrari hætti í stjórnarskrárnni nú þegar Stóri bróðir getur fylgst með hverri hreyfingu okkar og hvers kyns eftirlit með einstaklingum hefur aukist?
7. Er rétt að í stjórnarskránni séu einhver ákvæði um rétt óborinna manneskja, rétt dýra, um takmörk læknisfræðilegra og líffræðilegra vísindatilrauna?
8. Hvað með félagsleg réttindi? Eru þau nógu skýr og yfirgripsmikil í stjórnarskránni?
9. Fullveldið og sjálfstæðið. Þarf með einhverjum hætti að bregðast við þróun til alþjóðlegrar ríkjasamvinnu á öllum sviðum og skilgreina fullveldishugtakið upp á nýtt?
10. Og loks er spurningin hvort í stjórnarskráin eigi að vera sérákvæði sem snúa til dæmis að börnum og minnihlutahópum?
Þetta er engan veginn tæmandi listi heldur aðeins umræðugrundvöllur fyrir lesendur Vísis.
Leggið orð í belg! Hér er tækifæri til að segja skoðun sína áður en stjórnarskrárnefndin hefur tekið til starfa og sest á rökstóla. Hafa áhrif á umræðuna áður en hún hefst af alvöru. Orðið er frjálst!
gm@frettabladid.is
Skoðun

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar