Viðskipti

Bjarni Guð­jóns hættir hjá VÍS

Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið.

Viðskipti innlent

Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF

Þegar fjölskyldan er á höttunum eftir hentugum rafbíl er MGS6 einn þeirra sem kemur til greina. Hann er sagður rúmgóður og vel búinn, fjórhjóladrifinn og með farangursrými sem jafnast á við flutningagám eða svo gott sem. Raundrægnitölur þessa bíls þykja líka með þeim flottari í rafbílaheiminum samkvæmt nýjustu prófum.

Samstarf

Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt

„Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu,“ segir í færslu Hjartar Sigurðssonar gervigreindarsérfræðings og ráðgjafa hjá Mynstru, sem er með meistaragráðu í byggingaverkfræði.

Atvinnulíf

„Ægi­lega hamingju­samur“ með milljarðana frá Kerecis

Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.

Viðskipti innlent

Hvar liggur jafn­vægið í eyðslu og sparnaði?

30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“.

Viðskipti innlent

Gefur fermingamyndinni 10 í ein­kunn

Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins.

Atvinnulíf

Engin við­varandi markaðs­setning frá 2023

Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum.

Viðskipti innlent

Allt á upp­leið á Grundar­tanga

Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár.

Viðskipti innlent

Á að fá endur­greidd gler eftir gallaða sjónmælingu

Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.

Neytendur

Nova kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Heildarvirði kaupanna er 4,4 milljarðar króna.

Viðskipti innlent