Viðskipti innlent
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Bein útsending: Kynna úttekt á samkeppnishæfni Íslands Viðskiptaráð Íslands býður til morgunfundar um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn hefst klukkan 09 í Borgartúni 35 og sýnt verður frá honum hér á Vísi. Viðskipti innlent 20.6.2024 07:30
Tugmilljóna sekt og má ekki stunda rekstur Sverrir Halldór Ólafsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 57 milljóna króna vegna stórfelldra skattalagabrota. Hann hefur keyrt sjö einkahlutafélög í þrot og hefur nú verið bannað að stunda atvinnurekstur í tvö ár. Viðskipti innlent 19.6.2024 21:20
Opnar sjálfur stað þar sem rekstur Quang Le gekk best Maður sem áður starfaði fyrir alræmda veitingamanninn Quang Le hefur opnað nýjan veitingastað í húsnæði sem áður hýsti veitingastað í eigu Le. Hann bauð fyrrverandi starfsfólki Le sem ekki hafði fengið vinnu eftir að stöðum hans var lokað, starf hjá veitingastaðnum. Viðskipti innlent 19.6.2024 16:12
Reglulegar uppsagnir „því miður verið okkar raunveruleiki“ Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir flugmenn duglega að mennta sig og koma sér í aðrar vinnur þegar þeim er sagt upp vegna árstíðasveiflna, en 57 flugmönnum Icelandair var sagt upp í síðustu viku. Tilhneiging þeirra til að snúa aftur til fyrirtækisins sýni heilindi bæði flugmannanna og félagsins. Viðskipti innlent 19.6.2024 10:51
Brandenburg hreppti Ljónið í Cannes Auglýsingastofan Brandenburg vann í kvöld bronsverðlaun á Cannes Lions verðlaunahátíðinni fyrir endurmörkunarvinnu á orkudrykknum Egils Orku. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk auglýsingastofa hlýtur Cannes Lions verðlaunin án þess að hafa verið í samstarfi við erlendar stofur. Viðskipti innlent 18.6.2024 19:37
Stýrir rekstrarsviði Skeljungs Ingunn Þóra Jóhannesdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstarsviðs hjá Skeljungi. Rekstrarsvið Skeljungs sér um dreifingu eldsneytis, öryggismál, gæðamál, afgreiðslustaði Skeljungs og flugvelli innanlands. Viðskipti innlent 18.6.2024 12:27
Hreint hjá Vallý Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að halda utan um rekstur og þróun sviðsins, móta og efla þjónustu Hreint til viðskiptavina og styðja við starfsfólk sem sinnir þjónustunni. Viðskipti innlent 18.6.2024 10:45
Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Alvotech og Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum, tilkynntu í dag að félögin hefðu undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við augnlyfið Eylea. Tekjur af sölu lyfsins í Evrópu námu rúmlega 400 milljörðum króna í fyrra. Viðskipti innlent 18.6.2024 08:33
„Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Forstjórinn segir ástæðuna árstíðarsveiflu en hann segir auk þess minni eftirspurn eftir Íslandi sem hafi áhrif á reksturinn. Viðskipti innlent 17.6.2024 21:47
Ísland að detta úr tísku Staðan í ferðamennskunni út árið er grafalvarleg að sögn sérfræðings í starfrænni markaðssetningu. Ísland er nánast að detta úr tísku hjá ferðamönnum um allan heim. Viðskipti innlent 17.6.2024 19:00
Icelandair segir upp 57 flugmönnum Flugfélagið Icelandair hefur sagt upp 57 flugmönnum félagsins. Tilkynnt var um fyrirhugaðar uppsagnir á föstudaginn en forstöðumaður samskipta hjá félaginu segir að gert sé ráð fyrir að hægt verði að bjóða flugmönnunum störf næsta vor. Viðskipti innlent 16.6.2024 12:21
Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Atvinnuhúsnæði við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur hefur verið auglýst til leigu eina ferðina enn. Undanfarin ár hefur skemmtistaðurinn B5 verið þar til húsa, allt þar til í lok apríl. Húsnæðið er í eigu Fasteignafélagsins Eik. Viðskipti innlent 14.6.2024 13:55
Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að selja höfuðstöðvar félagsins að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Lýkur þar með endanlega tæplega hálfrar aldar aðsetri orkufyrirtækis þjóðarinnar á þeim stað. Landsvirkjun hefur ekki haft aðsetur í húsinu í tæpt ár vegna myglu. Viðskipti innlent 14.6.2024 11:08
„Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar geldur varhug við umræðu um „betur borgandi ferðamenn,“ en hún segir hugtakið vera nokkurs konar klisju. Hún segir að óþægilega mikið hafi dregið úr eftirspurn hins almenna ferðamanns, sem eyðir hér að jafnaði hundruðum þúsunda hver. Ísland hafi dregið lappirnar í markaðssetningu um árabil. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:47
Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:04
Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Gerður Björt Pálmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise. Um er að ræða nýtt svið sem varð til eftir kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar. Viðskipti innlent 13.6.2024 14:46
Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 13.6.2024 11:28
Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Viðskipti innlent 12.6.2024 21:24
Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Hin umdeilda Hvalárvirkjun á Ströndum er aftur komin á fullt í undirbúningi. Samningur sem Vesturverk, dótturfélag HS Orku, og Landsnet gerðu á dögunum miðar við að virkjunarframkvæmdir geti hafist eftir tvö ár. Viðskipti innlent 12.6.2024 21:12
Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Búið er að opna bruggstofu í gamla Tónabíó og Vinabæ. Bráðum verður hægt að spila bingó þar á ný en eigandinn var óviss um hvort hann næði að opna staðinn allt fram á síðustu stundu. Viðskipti innlent 12.6.2024 21:00
Frederiksen víkur fyrir Bird Barinn Frederiksen á horni Tryggvagötu og Naustanna skellir í lás fyrir fullt og allt. Reksturinn hefur verið seldur og nýr staður tekur við á næstunni. Stella Þórðardóttir, eigandi Frederiksen, segir þreytu komna í mannskapinn eftir tíu góð ár af rekstri. Viðskipti innlent 12.6.2024 12:08
Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Áhöfn tveggja skipa í eigu Þorbjarnar í Grindavík hefur verið sagt upp, en gert er ráð fyrir því að skipverjunum verði útveguð ný störf. Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir í samtali við Vísi að verið sé að endurskipuleggja útgerðina fyrir haustið. Viðskipti innlent 11.6.2024 16:12
Sigurður Tómasson til liðs við Origo Origo hefur ráðið Sigurð Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar (e. Chief Growth Officer), sem er ný staða innan félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu. Sigurður tekur til starfa að loknu sumri. Viðskipti innlent 11.6.2024 12:52
Fjórar snyrtistofur sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu fyrir ófullnægjandi verðmerkingar. Viðskipti innlent 11.6.2024 12:41
Hrefna og Unnur til Novum Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Alls starfa nú sjö lögmenn undir merkjum Novum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 11.6.2024 10:34
Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur Breska lágfargjaldaflugfélagið Easyjet hyggst bjóða upp á áætlunarferðir á milli Akureyrar annars vegar og London og Manchester hins vegar í vetur. Búið er að opna fyrir bókanir á flugleiðunum. Viðskipti innlent 11.6.2024 09:47
Pylsuvagninn á Selfossi er 40 ára í dag: Fríar pylsur og kók Íbúar á Selfossi og næsta nágrenni þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða svangir í dag því Pylsuvagninn býður upp á fríar pylsur og kók frá klukkan 14:00 til 16:00. Ástæðan er 40 ára afmæli pylsuvagnsins, sem hefur verið með um eitt þúsund starfsmenn í þessi 40 ára. Viðskipti innlent 9.6.2024 12:15
500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche opnar á gamla Stjörnutorgi Kringlunnar í næstu viku. Framkvæmdastjóri staðarins segir 500 starfsumsóknir hafa borist, þar af fimmtíu frá plötusnúðum. Viðskipti innlent 8.6.2024 13:32
Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Fjóla Einarsdóttir, einn eigenda fyrirtækisins Livefood, fyrstu íslensku grænkera ostagerðarinnar, segir fyrirtækið nú róa lífróður. Fyrirtækið hafði sett sér markmið um að selja ostana á smásölumarkaði á þessu ári. Fyrirtækið er með vilyrði frá Hagkaup og Krónunni um smásölu en eftir synjun úr Matvælasjóði er ólíklegt að það takist. Viðskipti innlent 8.6.2024 10:00
Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Jón Hilmar Karlsson hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi föður síns, Karls Wernerssonar, 2.652.753.000 krónur með dráttarvöxtum frá 19. janúar árið 2019. Með vöxtum er ekki óvarlegt að reikna með að heildargreiðsla nemi um fimm milljörðum króna. Viðskipti innlent 7.6.2024 15:40