Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 10:40 Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri LOGOS endurskoðunar & ráðgjafar, og Jón Elvar Guðmundsson, framkvæmdastjóri LOGOS. Aðsend/Eyþór Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS, LOGOS endurskoðun & ráðgjöf ehf. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, verður forstjóri og leiðir uppbyggingu félagsins.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu en þar segir einnig að sérstaða LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar verði „heildstæð ráðgjöf til fyrirtækja með áherslu á aðstoð í tengslum við reikningsskil, fyrirtækjakaup og samruna, áreiðanleikakannanir og verðmat fyrirtækja, auk þess sem boðið verður upp á endurskoðun“. Þá segir jafnframt að fyrst í stað verði lögð áhersla á endurskoðun og ráðgjöf til minni og meðalstórra félaga, en einnig verði horft til stærri fyrirtækja og skráðra félaga sem kunni að þurfa sérhæfða ráðgjöf. „Okkur varð strax ljóst að með því að sameina krafta mætti bjóða heildstæða og sérhæfðari þjónustu. LOGOS veitir víðtæka ráðgjöf á sviðum sem tengjast sérfræðiráðgjöf endurskoðenda, svo sem við kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu, áreiðanleikakannanir, samrunamál og skattaráðgjöf. Það er mikill fengur fyrir LOGOS að fá Þorstein til liðs við þetta nýja fyrirtæki sem verður í ákveðinni sérstöðu á markaðnum,“ er haft eftir Jóni Elvari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra LOGOS, í tilkynningunni. Geti byrjað hlaupandi Þorsteinn hefur reynslu af endurskoðun og ráðgjöf en hann starfaði hjá Deloitte í 26 ár, þar af sem forstjóri frá 2019 og í eigendahópi síðan 2008. Eftir honum er haft að hann sjái mikil tækifæri í ráðgjöf þar sem fyrirtækin í landinu séu í stöðugri leit að aukinni og betri þjónustu. „Segja má að við höfum séð sóknarfæri í nýrri nálgun og uppsetningu á endurskoðunarþjónustu með áherslu á ráðgjöf. Núna tekur við snarpt uppbyggingarstarf og þar er mikill styrkur í því að vera í samstarfi við LOGOS. Með því má segja að við getum byrjað hlaupandi og ætlum strax að láta til okkar taka,“ segir Þorsteinn sömuleiðis, nýr forstjóri LOGOS endurskoðunar & ráðgjafar. Áhersla nýs fyrirtækis verður samkvæmt tilkynningunni lögð á að byggja upp öflugt teymi sem „sameini reynslumikla sérfræðinga og metnaðarfulla einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi endurskoðunar og ráðgjafar“. Við uppbyggingu starfseminnar verði horft til bæði innri og ytri vaxtar. „Segja má að við höfum séð sóknarfæri í nýrri nálgun og uppsetningu á endurskoðunarþjónustu með áherslu á ráðgjöf. Núna tekur við snarpt uppbyggingarstarf og þar er mikill styrkur í því að vera í samstarfi við LOGOS. Með því má segja að við getum byrjað hlaupandi og ætlum strax að láta til okkar taka,“ segir Þorsteinn sömuleiðis, nýr forstjóri LOGOS endurskoðunar & ráðgjafar Áhersla nýs fyrirtækis verður samkvæmt tilkynningunni lögð á að byggja upp öflugt teymi sem „sameini reynslumikla sérfræðinga og metnaðarfulla einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi endurskoðunar og ráðgjafar“. Við uppbyggingu starfseminnar verði horft til bæði innri og ytri vaxtar.
Lögmennska Vistaskipti Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira