Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2026 15:00 Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, (t.h.) og Vélfag stefndu ríkinu vegna frystingar fjármuna fyrirtækisins í fyrra. Kaufmann fékk heldur ekki að setjast í stjórn félagsins vegna andstöðu utanríkisráðuneytisins. Vísir Hæstiréttur sýknaði ríkið af kröfu tæknifyrirtækisins Vélfags vegna frystingar á fjármunum félagsins í dag. Máli meirihlutaeiganda Vélfags gegn ríkinu vegna stjórnarsetu hans var vísað frá en lögmaður Vélfags segir að hann muni nú taka sæti í stjórn félagsins.
Tvö mál komu til kasta Hæstaréttar. Í öðru þeirra stefndi Vélfag íslenska ríkinu vegna ákvörðunar utanríkisráðuneytisins um að synja beiðni fyrirtækisins um að aflétta frystingu á fjármunum þess. Arion banki frysti fjármuni Vélfags í fyrra á grundvelli evrópskra þvingunaraðgerða gegn Rússum. Í hinu málinu stefndi Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, íslenska ríkinu vegna ákvörðunar utanríkisráðuneytisins um að hafna félaginu um að skrá hann í stjórn fyrirtækisins. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Vélfags sem flutti bæði mál í Hæstarétti, segir ágætt að fá niðurstöðu í málin þar sem dómarnir skýri loks réttarstöðu félagsins og að hverjum það eigi að beina kröfum sínum. Næsta skref sé að fara fram á það við Arion banka og Landsbankann að aflétta frystingu á fjármunum félagsins. Einnig segir Sigurður að Kaufmann muni nú taka sæti í stjórn Vélfags eftir að skilyrði utanríkisráðherra voru felld niður í fyrra. Var í eigu rússnesks útgerðarrisa Utanríkisráðuneytið telur Kaufmann lepp fyrir Orlov-feðgana rússnesku en þeir eiga sjávarútvegsveldið Norebo. Það félag keypti meirihluta hlutafjár árið 2022 í gegnum evrópskan arm sinn. Örfáum dögum áður en Evrópusambandið setti viðskiptaþvinganir á Norebo vegna tengsla þess við skuggaflota Rússa í fyrra keypti Kaufmann félag skráð í Hong Kong sem hélt utan um hlutina í Vélfagi. Arion banki, og síðar Landsbankinn, frysti fjármuni Vélfags síðasta sumar þar sem hann taldi ekki sýnt fram á að viðskiptin með hlutina norðlenska tæknifyrirtækinu hefðu ekki verið sýndarviðskipti. Ekki hlutverk ráðherra að endurskoð ákvörðun bankans Starfsemi Vélfags var stöðvuð endanlega í nóvember og starfsmönnum sem þá voru eftir sagt upp. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfum Vélfags og Kaufmann á hendur ríkinu í sama mánuði. Hæstiréttur hefur nú staðfest þá niðurstöðu. Í dómsorðinu í máli Vélfags gegn ríkinu kemur fram það álit Hæstaréttar utanríkisráðherra hafi hvorki verið heimilt né skylt að aflétta frystingu fjármunanna. Það sé ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat bankans á eignar- og stjórnunartengslum milli Norebo og Vélfags. Sigurður G. Guðjónsson gætir hagsmuna Vélfags.Vísir/Einar Sigurður, lögmaður Vélfags, segir við Vísi að vald til þess að aflétta þvingunaraðgerðum hafi verið framselt einkaaðilum sem séu ekki bundnir af reglum stjórnsýsluréttar. Í máli Ivans Kaufmann gegn ríkinu taldi Hæstiréttur hann ekki hafa lögvarða hagsmuni að því að dómurinn tæki efnislega afstöðu til ákvörðunar ráðherra um að koma í veg fyrir að hann tæki sæti í stjórn Vélfags á sínum tíma. Kaufmann var gert að greiða ríkinu eina milljón króna í málskostnað og Vélfag þarf að greiða eina og hálfa milljón króna. Talinn tengdur Norebo og rússnesku leyniþjónustunni Kaufmann hefur unnið með Orlov-feðgum í gegnum tíðina samkvæmt langri greinargerð sem utanríkisráðuneytið vann um málið síðasta vetur. Hann var ennfremur talin hafa tengsl við rússnesku leyniþjónustuna. Ráðuneytið taldi margt benda til þess að Norebo hefði áfram farið með yfirráð í Vélfagi eftir að hlutir þess voru færðir yfir í félagið í Titania Holding í Hong Kong og síðar til Kaufmann. Til frekari tíðinda dró í janúar en þá gerði embætti héraðssaksóknara húsleit á nokkrum stöðum sem tengdust Vélfagi vegna ætlaðra brota á þvingunaraðgerðum. Nokkrir stjórnendur þess voru handteknir og fengu stöðu sakbornings í rannsókninni.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Dómsmál Rússland Sjávarútvegur Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira