
Viðskipti erlent

5,7 milljarða sekt fyrir að safna persónuupplýsingum um starfsmenn
Persónuverndarstofnunin í Hamborg í Þýskalandi hefur sektað verslunarrisann H&M í Nürnberg fyrir ólögmæta vinnslu persónuupplýsinga um starfsmenn félagsins.

Bandarísk flugfélög segja upp tugum þúsunda
Stærstu flugfélög Bandaríkjanna hyggjast segja upp tugi þúsunda starfsmanna sinna eftir að þingmönnum á bandaríska þinginu mistókst að komast að samkomulagi um aðgerðir til aðstoðar fyrirtækjum sem farið hafa illa út úr kórónuveirufaraldrinum.

H&M hyggst loka 250 verslunum á næsta ári
Sænski fatarisinn H&M hyggst þrátt fyrir margmilljarða hagnað loka 250 verslunum á næsta ári.

28.000 manns missa vinnuna hjá Walt Disney
Bandaríska fyrirtækið Walt Disney hefur tilkynnt að 28.000 manns missi vinnuna í skemmtigörðum fyrirtækisins.

Uncle Ben‘s breytir um nafn
Bandaríski matvælaframleiðandinn Mars, Inc. hyggst skipta um nafn á einu þekktasta vörumerki fyrirtækisins, Uncle Ben‘s.

Eigendur læstir út úr Teslum vegna bilunar
Bilun hefur komið upp í tölvukerfi bílaframleiðandans Tesla og hafa eigendur bíla fyrirtækisins verið læstir úr bílum sínum.

Ódýrari Tesla á markaðinn „eftir um þrjú ár“
Elon Musk, stofnandi rafbílaframleiðandans Tesla, kynnti í gær tækni sem hann segir að muni leiða til framleiðslu bæði ódýrari og öflugri rafhlaða fyrir bílana.

Leyfðu glæpamönnum að þvætta háar upphæðir
Enn einn lekinn innan úr fjármálageira heimsins skekur nú stærstu banka veraldar en hann sýnir fram á að bankar á borð við HSBC í Bretlandi leyfðu svikahröppum og glæpamönnum að færa milljarða Bandaríkjadala á milli banka, eftir að ljóst var orðið að um illa fengið fé var að ræða.

Trump gefur TikTok blessun sína
Kínverska fyrirtækið ByteDance, eigandi samfélagsmiðilsins TikTok hefur óskað eftir því að virði TikTok verði metið á 60 milljarða Bandaríkjadala, eða um 8.178 milljarða íslenskra króna.

Hóta að banna Tiktok af þjóðaröryggisástæðum
Bandaríkjastjórn ætlar að banna fólki sem er statt í Bandaríkjunum að sækja kínverska samfélagsmiðiðlsforritð Tiktok og samskiptaforritið Wechat.

Bein útsending: Sony kynnir PS5 leiki
Sony heldur í kvöld kynningu varðandi nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins, Playstation 5. Vonir eru bundnar við að fyrirtækið muni gefa út hvenær tölvurnar munu sjást í hillum verslana og hvað þær muni kosta.

Ræða um að greiða milljarða til að láta FIFA-sakir hverfa
Svissneski bankinn Julius Bär gæti greitt bandarískum yfirvöldum jafnvirði milljarða íslenskra króna í sátt til að losna undan ásökunum um aðild að spillingarmáli Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA).

Apple kynnir ný tæki og tól
Forsvarsmenn tæknirisans Apple munu kynna ný tæki og tól á netkynningu í kvöld. Fyrirtækið hefur varist fregna af viðburðinum sem hefjast á klukkan fimm í dag.

Draga úr framleiðslu PS5 vegna vandræða
Forsvarsmenn fyrirtækisins Sony er sagðir hafa neyðst til þess að draga úr framleiðslu Playstation 5 leikjatölvunnar vegna framleiðsluörðugleika.

YouTube keppir við TikTok með forritinu Shorts
Myndbandaveitan YouTube, sem er í eigu Google, tilkynnti í dag að nýtt forrit á vegum fyrirtækisins muni líta dagsins ljós en það mun vera miðill fyrir stutt myndbönd líkt og samfélagsmiðillinn TikTok sem nýtur gríðarlegra vinsælda.

Ekkert verður af kaupum Microsoft á TikTok
Tölvurisinn Microsoft tilkynnti um það í nótt að ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum þess á starfsemi kínverska samskiptamiðlilsins TikTok í Bandaríkjunum.

Fyrsti stóri viðskiptasamningur Breta eftir Brexit í höfn
Samningurinn er milli Bretlands og Japans og er áætlað að viðskipti milli ríkjanna muni aukast um 15,2 milljarða punda.

Ráðast í breytingar á „martröð endurvinnslumannsins“
Framleiðslufyrirtæki kartöfluflagnanna Pringles ætla sér að ráðast í endurbætur á hinum sérstöku umbúðum eftir gagnrýni um að nær ómögulegt sé að endurvinna þær.

Forstjóri Rio Tinto hættir eftir umdeildar hellasprengingar
Forstjóri námurisans Rio Tinto, sem meðal annars rekur álver ISAL í Straumsvík, mun láta af störfum ásamt nokkrum öðrum háttsettum starfsmönnum fyrirtækisins.

Fyrsta konan ráðin forstjóri Wall Street-banka
Citigroup réði Jane Fraser sem forstjóra bankans. Fraser verður fyrsta konan til að gegna stöðu bankastjóri á Wall Street. Bandarískir bankar hafa legið undir gagnrýni fyrir skökk kynjahlutföll á meðal stjórnenda.

Opinbera smærri útgáfu Xbox
Mircosoft opinberaði í dag hvað nýjustu leikjatölvur fyrirtækisins mun kosta og að þær muni rata í hillur verslana þann 10. nóvember.

Heita því að flýta ekki bóluefni um of
Níu evrópskir og bandarískir lyfjarisar hafa heitið því að fylgja í hvívetna vísindalegum viðmiðum við þróun bóluefnis vegna Covid-19 og að freistast ekki til þess að flýta þróun á kostnað gæða.

Fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans: „Heimurinn gæti orðið eins og árið 1900“
Robert Zoellick, fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans, segir nauðsynlegt að lönd heimsins taki höndum saman.

Facebook hótar að banna Áströlum að deila fréttaefni
Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur hótað því að banna áströlskum notendum miðlanna að deila fréttaefni á síðum sínum, ef ný lög í Ástralíu ná fram að ganga.

Afnema breytingagjald í von um fleiri farþega
United Airlines mun frá og með deginum í dag ekki rukka farþega um breytingagjald í innanlandsflugi.

Segir að Trump muni aðstoða flugfélögin geri þingið það ekki
Framkvæmdastjóri Hvíta hússins segir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sé að íhuga að grípa inn í til þess að koma í veg fyrir gríðarlegar fjöldauppsagnir hjá flugfélögum í Bandaríkjunum, fari svo að Bandaríkjaþing framlengi ekki björgunarpakka stjórnvalda handa flugfélögum þar í landi.

Erlend flugfélög fækka ferðum eða hætta að fljúga til Íslands
Útlit er fyrir að þó nokkur erlend flugfélög muni draga saman seglin eða jafnvel hætta alfarið flugferðum til og frá Íslandi á næstunni.

Boeing kallar MAX-vélarnar nú nýju nafni
Í yfirlýsingu bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing vegna kaupa pólsks flugfélags á fjórum Max-vélum eru umræddar vélar kallaðar nýju nafni.

SpaceX stefnir á metskot
Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX stefna á að setja enn eitt metið í dag. Til stendur að skjóta Falcon 9 eldflaug fyrirtækisins út í geim og verður það í sjötta sinn sem þessari tilteknu eldflaug verður skotið á loft.

Versti ársfjórðungur í sögu Japan
Annar ársfjórðungur þessa árs var sá versti fyrir efnahag Japan frá því mælingar hófust.