Samningar milli Dylans og Sony náðust í júlí síðastliðnum en kaupverð hefur ekki verið gefið upp. Tónlistarmiðillinn Billboard metur verðmæti upptökuréttarins á 200 milljónir dollara eða um 26 milljarða króna, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins.
Árið 2020 seldi Dylan höfundarrétt að öllum lögum og textum sínum til Universal Music, eins helsta keppinautar Sony. Talið er að kaupverðið hafi verið um fimmtíu milljarðar króna. Því er ljóst að Dylan á nóg salt í grautinn.
„Columbia Records og Rob Stringer hafa verið mér góð í mjög mörg ár og helling að plötum. Það gleður mig að allar mínar upptökur geti verið áfrm þar sem þær eiga heima,“ sagði Dylan í tilkynningu um söluna en Columbia Records er dótturfyrirtæki Sony Music.
„Columbia Records og Bob Dylan hafa átt einstakt samband frá upphafi ferils hans og við erum stollt og spennt að halda áfram að bæta og þróa sextíu ára langa samvinnu okkar,“ sagði Rob Stringer, stjórnarformaður Sony.
Þá nýttu samningsaðilar tækifærið og sömdu einnig um framlengingu útgáfusamnings Dylans. Hann hefur lofað „mörgum nýjum útgáfum.“ Því hljóta allir góðir menn að fagna.