Erlent
287 288 289 290 291 292 293 294 295 … 334 ›
Loddaranum Önnu Sorokin vísað frá Bandaríkjunum Bandarísk stjórnvöld hyggjast vísa Önnu Sorokin, einnig þekkt sem Anna Delvey, úr landi og senda hana aftur til Þýskalands. Anna gerði garðinn frægan þegar hún þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York sem féll kylliflatt fyrir blekkingum hennar. Erlent 15.3.2022 23:50
Vill að fólk fætt 2010 og seinna fái aldrei að kaupa nikótín Heilbrigðisráðherra Danmerkur kynnti í dag áætlun sem ætlað er að koma í veg fyrir að einstaklingar fæddir árið 2010 og seinna nái nokkurn tímann tilskildum aldri til kaupa á vörum sem innihalda nikótín. Erlent 15.3.2022 22:31
Hver Pólverji reiðubúinn að taka Úkraínumenn inn á heimili sitt Flóttamannastraumurinn frá Úkraínu undanfarnar tæpar þrjár vikur hefur mætt mest á Pólverjum. Sendiherra þeirra á Íslandi segir pólsku þjóðina ætla að standa með Úkraínumönnum gegn ofbeldi Putins allt þar til Úkraínumenn vinni stríðið. Erlent 15.3.2022 21:48
Segja Rússa halda mörg hundruð manns í gíslingu á spítala í Mariupol Rússneskir hermenn eru sagðir halda um fjögur hundruð manns í gíslingu á sjúkrahúsi í Mariupol. Sergei Orlov aðstoðarborgarstjóri segir hermennina hafa rutt sér leið inn í sjúkrahúsið og tekið fólk þar og íbúa í nærliggjandi húsum í gíslingu. Erlent 15.3.2022 21:27
Þúsundir Úkraínumanna snúa til baka í stríðið Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðast liðna nótt. Erlent 15.3.2022 19:21
Rússar skutu almennan borgara sem hafði hendur á lofti til bana Þann 7. mars síðastliðinn skutu rússneskir hermenn almennan úkraínskan borgara til bana þrátt fyrir að hann hafi reitt hendur á loft. Erlent 15.3.2022 18:01
Vaktin: „Með svona bandamenn munum við vinna þetta stríð“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur hvatt rússneska hermenn til að gefast upp. Sagði hann í ávarpi seint í gærkvöldi að komið yrði fram við þá eins og manneskjur, ólíkt því hvernig rússneski herinn hefði komið fram við Úkraínumenn. Erlent 15.3.2022 16:25
Eiffelturninn orðinn sex metrum hærri Eiffelturninn í frönsku höfuðborginni París varð í morgun sex metrum hærri eftir að nýju loftneti var komið fyrir á toppi turnsins. Erlent 15.3.2022 12:59
Telja sig hafa handtekið morðingjann í New York og Washington Lögreglan í Washington DC hefur handtekið mann sem grunaður er um hafa myrt minnst tvo heimilislausa menn og sært þrjá til viðbótar í New York og Washington DC. Verið er að yfirheyra hann í Washington. Erlent 15.3.2022 12:30
Kristinn kallar eftir skýrri afstöðu þingmanna í máli Assange Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks hefur rætt við þingmenn ýmissa ríkja og kallar eftir víðtækri pólitískri samstöðu sem feli í sér fordæmingu á meðferðinni á Julian Assange. „Nú er lag,“ segir hann í samtali við Vísi. Erlent 15.3.2022 11:55
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar í basli með birgðir og liðsauka Hersveitir Rússlands hafa lítið sótt fram í Úkraínu á undanförnum dögum. Bæði í norðri, í sókn Rússa að Kænugarði, og í suðri, þar sem Rússar hafa setið um Maríupól og reynt að sækja að Odessa, hefur lítið gengið og er það að miklu leyti rekið til birgða- og samskiptavandræða. Erlent 15.3.2022 11:13
Sonur túrmenska einvaldsins vann yfirburðasigur í forsetakosningum Serdar Berdymukhamedov, sonur túrkmenska einvaldsins Gurbanguly Berdymukhamedov, vann stórsigur í forsetakosningum í landinu um helgina. Hann mun því taka við embættinu af föður sínum sem stýrt hefur landinu frá árinu 2006. Erlent 15.3.2022 10:25
Bandaríkjamenn telja Kínverja nú þegar hafa ákveðið að koma Pútín til aðstoðar Bandaríkjamenn óttast að Kínverjar séu nú þegar búnir að ákveða að koma Rússum til bjargar efnahags- og fjárhagslega og séu að íhuga að sjá þeim fyrir vopnum, meðal annars vopnuðum drónum. Erlent 15.3.2022 06:31
Starfsmaður rússneska ríkissjónvarpsins mótmælti stríðinu í beinni útsendingu Kona truflaði fréttaútsendingu rússnesku ríkisstöðvarinnar Channel One Russia um klukkan 21:30 að staðartíma í kvöld til að mótmæla stríðinu í Úkraínu. Konan starfar hjá sjónvarpsstöðinni að sögn mannréttindalögfræðingsins Pavels Chikov og OVD-Info, sjálfstæðs mannréttindahóps sem vaktar mótmæli í Rússlandi. Erlent 14.3.2022 22:16
Gríðarlega stór tölvuárás gerð á ísraelsk stjórnvöld Fjölmargar tölvuárásir hafa verið gerðar á vefsíður ísraelskra stjórnvalda í dag. Vefsíður innanríkis-, heilbrigðis-, dóms- og velferðarráðuneyta voru óaðgengilegar um stund, auk vefsíðu forsætisráðuneytisins, vegna árásanna. Erlent 14.3.2022 19:55
Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2022 14:42
Blóðugt ofbeldi í mexíkóskum fótbolta Fjölmiðlar í Mexíkó fullyrða að allt að 17 manns hafi látist í blóðugum átökum sem brutust út á fótboltaleik þar í landi um síðustu helgi. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Erlent 14.3.2022 14:30
Þíða í samskiptum Armena og Tyrkja Utanríkisráðherrar Armeníu og Tyrklands funduðu í Tyrklandi á laugardaginn og voru viðræðurnar, sem miða að því að bæta samskipti ríkjanna, sagðar hafa verið bæði „árangursríkar“ og „uppbyggilegar“. Um er að ræða fyrsta eiginlega fund utanríkisráðherra nágrannaríkjanna frá árinu 2009. Erlent 14.3.2022 14:01
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47
Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. Erlent 14.3.2022 10:38
Skaut þrjá heimilislausa menn í New York um helgina Lögregla í New York í Bandaríkjunum leitar nú manns sem skaut þrjá heimilislausa einstaklinga, og þar af tvo til bana, þar sem þeir lágu sofandi á götum borgarinnar um helgina. Lögregla hefur boðið 10 þúsund dali fyrir þann sem veitir upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins. Erlent 14.3.2022 08:14
Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14.3.2022 06:54
Viðræður Úkraínumann og Rússa halda áfram og Bandaríkjamenn biðla til Kínverja Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu ræða saman í dag í gegnum fjarfundabúnað, segir Mykhailo Podoliak, ráðgjafi Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Talsmenn beggja þjóða hafa sagt eitthvað orðið ágengt, jafnvel þótt engar vísbendingar séu uppi um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé reiðubúinn til að slá af kröfum sínum. Erlent 14.3.2022 06:32
Birgir fann vel fyrir sprengingunni við Lviv Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var við hjálparstörf í borginni Lviv í Úkraínu í dag. Stór eldflaugaárás var gerð á herstöð nærri borginni í morgun og kveðst Birgir vel hafa fundið fyrir henni. Hann er nú kominn til Póllands og segir ástandið átakanlegt. Erlent 13.3.2022 22:46
Rússar hafi beðið Kínverja um aðstoð Bandarískir embættismenn segja Rússa hafa beðið Kínverja um hernaðargögn frá upphafi innrásar Rússa inn í Úkraínu. Erlent 13.3.2022 20:15
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13.3.2022 18:26
Íslenskir dýralæknanemar hafa safnað milljónum króna fyrir flóttafólk Íslenskir dýralæknanemar í Slóvakíu standa fyrir söfnun fyrir úkraínskt flóttafólk í landinu og á landamærum úkraínu og Slóvakíu. Þegar hafa safnast ríflega fimm milljónir króna sem nemarnir hafa varið í ýmsar nauðsynjavörur, til að mynda hráefni í heimagerðar samlokur. Erlent 13.3.2022 16:56
Bandarískur blaðamaður drepinn nálægt Kænugarði Brent Renaud, fimmtugur blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður frá Bandaríkjunum, var drepinn skammt frá Kænugarði í dag en Renaud hafði áður starfað fyrir miðla á borð við New York Times. Hann var þó ekki að störfum fyrir miðilinn þegar hann var drepinn. Erlent 13.3.2022 14:58
Efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið þó Rússar notuðu efnavopn Prófessor í stjórnmálafræði efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið í Úkraínu ef Rússar myndu beita þar efnavopnum. Það þyrfti meira til að NATO færi í allsherjarstríð við Rússland. Erlent 13.3.2022 13:10
Íranir grunaðir um loftárás á ræðismannsskrifstofu í Erbil Um tug flugskeyta var skotið á höfuðborg Kúrda í Írak, Erbil, í gær. Bandarískir embættismenn hafa Írana grunaða um árásina en flugskeytum var meðal annars beint að nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í borginni. Erlent 13.3.2022 10:29