Erlent
280 281 282 283 284 285 286 287 288 … 334 ›
Tilnefning Ketanji Brown Jackson til hæstaréttar staðfest Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti rétt í þessu tilnefningu Ketanji Brown Jackson til hæstaréttar þar í landi. Atkvæðagreiðslan fór að mestu eftir flokkslínum en 53 þingmenn greiddu atkvæði með tilnefningunni en 47 gegn henni. Erlent 7.4.2022 18:38
Aðeins í annað sinn í sögunni sem landi er vikið úr Mannréttindaráðinu Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að víkja Rússum úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir gróf og kerfisbundin brot á mannréttindum en 93 greiddu atkvæði með tillögunni, 24 greiddu atkvæði á móti, og 58 sátu hjá. Þetta er í annað sinn sem landi er vikið úr ráðinu vegna brota á mannréttindum og í fyrsta sinn sem land sem á sæti í Öryggisráðinu er vikið úr ráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 7.4.2022 16:43
Þrír látnir eftir snjóflóð í Noregi Þrír eru látnir eftir að snjóflóð féll í firðinum Lyngen í Troms í Noregi í dag. Erlent 7.4.2022 15:23
Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins. Erlent 7.4.2022 12:35
Utanríkisráðherra reiknar með að NATO-ríki auki stuðninginn við Úkraínu Utanríkisráðherra reiknar með að NATO ríkin muni auka stuðning sinn við Úkraínu en hún situr nú fund utanríkisráðherra bandalagsins í Brussel. Úkraínu menn segja auknar vopnasendingar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir skelfilegar fórnir og útbreiðslu innrásar Rússa til annarra Evrópuríkja. Erlent 7.4.2022 12:05
Banvæn skothríð vegna uppgjörs glæpagengja Lögreglan í Sacramento í Bandaríkjunum telur að skothríð sem leiddi til þess að sex dóu og tólf særðust um helgina, hafi verið uppgjör milli glæpagengja. Búið er að bera kennsl á fimm menn sem komu að skothríðinni en talið er að þeir hafi verið fleiri. Erlent 6.4.2022 23:37
Krúttlegur refur með hundaæði aflífaður eftir að hafa bitið níu við þinghúsið Refur, sem vakið hefur mikla lukku á samfélagsmiðlum undanfarna daga, hefur verið fangaður og aflífaður eftir að í ljós kom að hann var með hundaæði og hafði bitið níu manns. Hann hafði verið á vappi við bandaríska þinghúsið í nokkra daga áður en hann var fangaður. Erlent 6.4.2022 23:34
Vaktin: Tíu eldflaugar fyrir hvern rússneskan skriðdreka Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa 4.700 mögulega stríðsglæpi Rússa til rannsóknar. Þau segja 167 úkraínsk börn hafa látið lífið frá því að innrásin hófst. Erlend ríki vinna einnig að því að safna sönnunargögnum um hroðaverk innrásarhersins, sem ráðamenn í Rússlandi segja ýmist hafa verið skipulögð af Vesturlöndum eða nasistum. Erlent 6.4.2022 20:55
Óttast stórsókn í austri Þúsundir íbúa í austurhluta Úkraínu hafa flúið Donbas að undanförnu af ótta við stórsókn Rússa í austurhluta Úkraínu. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að stríðið geti dregist í marga mánuði eða ár. Erlent 6.4.2022 19:29
Bandaríkin beina spjótum sínum að dætrum Pútíns Bandaríkin, ásamt öðrum G7-ríkjum og Evrópusambandinu, hafa tilkynnt um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum, meðal annars vegna hryllingsins í Bucha. Bandaríkin segjast munu sjá til þess að hinir seku verði sóttir til saka og eru refsiaðgerðirnar liður í því. Bandaríkin hafa til að mynda ákveðið að beita fullorðnar dætur Pútíns refsiaðgerðum. Erlent 6.4.2022 15:25
Ríkisstjórn Naftali Bennett missir þingmeirihlutann Ríkisstjórn ísraelska forsætisráðherrans Naftali Bennett hefur misst meirihluta sinn á þingi eftir að einn lykilmanna innan stjórnarliðsins ákvað að segja skilið við stjórnarflokkinn Yamina vegna deilna um gerjuð matvæli og hefðir gyðinga. Erlent 6.4.2022 13:24
„Það var engin virðing borin fyrir mannslífum“ Íslendingur segir eyðileggingu og ummerki eftir nauðganir og morð hafa blasað við þegar hann heimsótti bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs í gær. Erlent 6.4.2022 12:12
Vladimír Sjírínovskí látinn af völdum Covid-19 Rússneski stjórnmálamaðurinn og öfgaþjóðernissinninn Vladimír Sjírínovskí er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést af völdum Covid-19 og hafði legið inni á sjúkrahúsi vegna veikindanna um margra vikna skeið. Erlent 6.4.2022 11:13
Tveir látnir í óveðri í Texas og Georgíu Tveir létust og tugir slösuðust í óveðri sem gekk yfir Texas og Georgíuríki í Bandaríkjunum í gær. Erlent 6.4.2022 07:08
Nígerskur trúleysingi fangelsaður í 24 ár fyrir guðlast Nígerskur trúleysingi og mikill gagnrýnandi trúarbragða hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir guðlast. Maðurinn játaði sekt sína fyrir dómi í Kano í norðurhluta landsins. Erlent 5.4.2022 23:45
Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 5.4.2022 22:25
Hættu æfingu fyrir tunglferð vegna bilunar Vísindamenn og verkfræðingar Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna lýstu því yfir í kvöld að búið væri að hætta við æfingu fyrir fyrstu tunglferð Artemis-áætlunarinnar. Það var gert eftir að tvær bilanir komu upp þegar verið var að dæla eldsneyti á Space Launch System-eldflaugina (SLS). Erlent 5.4.2022 21:40
Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. Erlent 5.4.2022 15:52
Fyrsta mál einstaklings tengt Darfúr til kasta Alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins Réttarhöld í máli Ali Muhammad Ali Abd-Al-Rahman, leiðtoga súdansks uppreisnarhóps, hófust hjá Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum í Haag í morgun. Um er að ræða fyrsta mál einstaklings sem fer fyrir dómstólinn og tengist ódæðum í Darfúr-héraði í Súdan fyrr á öldinni. Erlent 5.4.2022 14:04
Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5.4.2022 12:01
Fyrsta tilfelli mænusóttar í rúma þrjá áratugi greinist í Ísrael Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að ráðast í bólusetningarátak eftir að fyrsta tilfelli mænusóttar í rúma þrjá áratugi greindist í síðasta mánuði. Framkvæmdastjóri heilbirgðisráðuneytisins óttast að það reynist erfitt að fá fólk til að mæta í bólusetningu eftir kórónuveirufaraldurinn. Erlent 5.4.2022 09:59
Fimm látnir eftir að sendiferðabíll rakst á lest í Ungverjalandi Að minnsta kosti fimm eru látnir og rúmlega tíu slösuðust eftir að sendiferðabíll rakst á lest í suðurhluta Ungverjalands í morgun. Talsmaður yfirvalda segir að ökumaður sendiferðabílsins hafi hunsað rautt ljós. Erlent 5.4.2022 09:43
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5.4.2022 09:04
Ever Forward hefur enn ekkert haggast Gámaflutningaskipið Ever Forward hefur enn ekkert haggast eftir að hafa strandað í Chesapeake-flóa á austurströnd Bandaríkjanna fyrir þremur vikum síðan. Erlent 5.4.2022 07:53
Hótar að bregðast við minnstu árás með kjarnorkuvopnum Geri Suður-Kórea nokkurs konar árás á Norður-Kóreu, verður henni svarað með kjarnorkuvopnum. Þetta sagði Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, samkvæmt ríkismiðli Norður-Kóreu. Erlent 4.4.2022 23:43
Einn handtekinn vegna skotárásarinnar í Sacramento Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn og ákærður í tengslum við skotárás í Sacramento í gær. Sex létust í árásinni og tólf til viðbótar særðust. Erlent 4.4.2022 22:37
Heimurinn þarf að breyta um lífsstíl því tíminn er að renna út Sameinuðu þjóðirnar segja að brátt verði of seint að ná þeim markmiðum í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og takmarka hækkandi hitastig jarðar. Í nýrri skýrslu sem gerð var af helstu vísindamönnum heimsins á þessu sviði segir að einungis umfangsmiklar og hnattrænar aðgerðir geti nú komið í veg fyrir gífurlegar hamfarir. Erlent 4.4.2022 21:34
Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa. Erlent 4.4.2022 19:30
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. Erlent 4.4.2022 15:47
Vucic og flokkur hans með örugga sigra í Serbíu Útgönguspár benda til að Aleksandar Vucic Serbíuforseti og Framfaraflokkur hans hafi unnið örugga sigra í forseta- og þingkosningum sem fram fóru í Serbíu um helgina. Erlent 4.4.2022 14:51