Erlent
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 334 ›
Biden segir ólíklegt að flugskeytinu hafi verið skotið frá Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ólíklegt að flugskeyti sem varð tveimur að bana í Póllandi hafi komið frá Rússlandi og vísar til brautar flugskeytisins. Aðspurður vildi hann hins vegar ekkert fullyrða um málið og sagðist vilja bíða og sjá. Erlent 16.11.2022 06:23
Fullyrða að flugskeytið hafi verið rússneskt Utanríkisráðuneyti Póllands fullyrti í kvöld að flugskeyti sem varð tveimur að bana í austanverðu landinu síðdegis í dag hafi verið framleitt í Rússlandi. Varnarmálaráðuneyti Rússlands hafði áður hafnað því að rússnesk vopn hafi valdið mannfallinu. Erlent 15.11.2022 23:41
Katrín segist fylgjast grannt með stöðunni í Póllandi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir íslensk stjórnvöld fylgjast grannt með gangi mála í Póllandi í kjölfar þess að tveir létust þar þegar flugskeyti lenti á bæ nærri landamærunum að Úkraínu. Erlent 15.11.2022 22:37
Bein útsending: Reyna enn að senda far til tunglsins Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla að gera enn eina tilraunina til að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í fyrramálið. Þetta verður í fjórða sinn sem geimskotið verið reynt en síðasta tilraun átti sér stað í september. Erlent 15.11.2022 22:01
Hækka viðbúnaðarstig pólska hersins eftir sprengingarnar Pólska ríkisstjórnin tilkynnti í kvöld að viðbúnaðarstig hersins hefði verið hækkað eftir að tveir létust af völdum flugskeyta sem komu yfir landamærin að Úkraínu í dag. Forseti Úkraínu sakar Rússa um að stigmagna átökin. Erlent 15.11.2022 21:43
Rússnesk flugskeyti sögð hafa fellt tvo í Póllandi Tveir eru sagðir látnir eftir að rússnesk flugskeyti hæfðu þorp í austanverðu Póllandi nærri landamærunum að Úkraínu í dag. Pólska ríkisstjórnin situr á neyðarfundi en rússneska varnarmálaráðuneytið hafnar því að hafa skotið flugskeytunum. Erlent 15.11.2022 18:58
„Spilltasti útsendarinn“ segir fíkniefnastríðið vera leik José Irizarry, sem hefur verið kallaður spilltasti útsendari fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna (DEA), segir fíkniefnastríðið óvinnanlegt og þá sem heyja það gjörspillta. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tekið ásakanir hans til skoðunar. Erlent 15.11.2022 17:08
Ástandið alvarlegt eftir umfangsmestu árás Rússa Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið minnst 85 eldflaugum á skotmörk víða um landið í dag. Stór hluti landsins sé rafmagnslaus og sömuleiðis netleysi víða. Árásin er sögð vera mögulega sú umfangsmesta frá því innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 15.11.2022 16:08
Fyrsti mótmælandinn dæmdur til dauða í Íran Fyrsti mótmælandinn hefur nú verið dæmdur til dauða í Íran vegna mótmæla sem hafa geisað þar í landi. Mótmælandinn er sakaður um að hafa kveikt í byggingu stjórnvalda. Erlent 15.11.2022 14:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn með frumkvæðið og von á frekari gagnárásum Frelsun vesturbakka Dniproár og Kherson-borgar opnar margskonar tækifæri fyrir Úkraínumenn til að herja frekar á Rússa í Úkraínu. Fregnir eru þegar byrjaðar að berast af því að úkraínski herinn sé byrjaður að gera árásir á Rússa á austurbakkanum og undirbúa mögulegar gagnárásir á öðrum stöðum. Erlent 15.11.2022 13:35
Hitamet falla um Evrópu Hlýtt hefur verið í Evrópu á síðustu misserum, hæsti hiti í nóvembermánuði í Finnlandi frá upphafi mældist í Helsinki á dögunum og hafa mikil hlýindi verið í Bretlandi. Hiti hérlendis mælist yfir meðallagi miðað við árstíma. Erlent 15.11.2022 11:20
Jarðarbúar nú orðnir átta milljarðar talsins Sameinuðu þjóðirnar áætla að fjöldi jarðarbúa fari yfir átta milljarða í dag. Erlent 15.11.2022 08:45
Segir tímabært að binda enda á átökin en á forsendum Úkraínumanna Það er tímabært að binda enda á átökin í Úkraínu, sagði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti þegar hann ávarpaði leiðtoga G20-ríkjanna um fjarfundabúnað, á ráðstefnu leiðtoganna í Balí. Erlent 15.11.2022 08:03
Katie Hobbs lagði Kari Lake í Arizona Katie Hobbs, frambjóðandi Demókrata í ríkisstjórakosningum í Arizona hefur verið útnefndur sigurvegari í kosningunum sem fram fóru á dögunum og reyndust afar tvísýnar. Erlent 15.11.2022 07:46
Stríðsreksturinn sagður valda stórfelldri losun Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til gríðarlegrar losunar á gróðurhúsalofttegundum, að sögn fulltrúa Úkraínu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þeir segjast safna upplýsingum um „umhverfisglæpi“ Rússa. Erlent 14.11.2022 23:20
Katrín aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gaf Björk Guðmundsdóttur, söngkonu, aldrei fyrirheit um að gefa út formlega yfirlýsingu um neyðarástand í loftslagsmálum, þvert á fullyrðingar Bjarkar. Þá var forsætisráðherra aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg sem Björk sagði að hefði verið með í ráðum. Erlent 14.11.2022 17:58
Gagnrýndi orðræðu Kínverja í garð Taívans Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Xi Jinping, forseti Kína, funduðu í Indónesíu í dag og var það í fyrsta sinn sem þeir hittast síðan Biden varð forseti. Forsetarnir ræddu meðal annars aukna samkeppni ríkjanna, stríðið í Úkraínu og mótmælti Biden orðræðu kínverskra ráðamanna í garð Taívans. Erlent 14.11.2022 14:36
Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. Erlent 14.11.2022 13:10
Leynilegu geimfari lent aftur eftir langa geimferð Geimher Bandaríkjanna lenti um helgina leynilegu geimfari á jörðinni eftir að það hafði verið út í geimi í 908 daga. Það er mettími en áður hafði geimfarið, sem ber heitið X-37B lengst verið 780 daga í geimnum. Þetta var sjötta geimferð X-37B. Erlent 14.11.2022 11:15
Selenskí heimsótti Kherson Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Kherson-borg í morgun. Hersveitir Rússa hörfuðu nýverið frá borginni en eru þrátt fyrir það í nokkur hundruð metra fjarlægð, hinu megin við Dniproá. Erlent 14.11.2022 10:46
Lavrov sagður hafa farið á sjúkrahús á Balí Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, var fluttur á sjúkrahús í morgun, samkvæmt AP fréttaveitunni. Það var skömmu eftir að hann lenti á Balí á Indónesíu fyrir G-20 fundinn sem fer þar fram en utanríkisráðuneyti Rússlands segir það ekki rétt. Erlent 14.11.2022 09:24
Beina spjótum sínum að Trump Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump. Erlent 14.11.2022 09:21
Segir Rússa seka um stríðsglæpi í Kherson Úkraínuforseti segir að rannsakendur hafi nú þegar fundið sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa í Kherson héraði. Erlent 14.11.2022 07:31
22 handteknir í tengslum við árásina í Istanbul Lögregluyfirvöld í Istanbul hafa handtekið 22 í tengslum við sprengjuárás í borginni í gær, þar sem sex létu lífið og 81 særðist. Innanríkisráðherra Tyrklands segir vígamenn úr röðum Kúrda í norðurhluta Sýrlands ábyrga. Erlent 14.11.2022 07:30
Kjósendum hugnist ekki frambjóðendur sem afneita kosningaúrslitum Prófessor í sagnfræði segir að úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum bendi til þess að pólitískur klofningur sé í algleymingi í landinu. Erlent 13.11.2022 22:35
Lofar að láta Pútín heyra það Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, heitir því að láta ríkisstjórn Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands, heyra það á fundi þjóðarleiðtoga stærstu þjóða heims í vikunni. Erlent 13.11.2022 16:23
Störfuðu sem læknar án þess að vera með réttindi Unglingspiltur í Madrid og tæplega þrítug kona á Norður-Spáni hafa verið handtekin, en þau hafa um nokkurt skeið starfað sem læknar án þess að hafa nokkra slíka menntun. Ungi pilturinn hefur áður þóst vera lögreglumaður og skólastjóri. Erlent 13.11.2022 15:39
Að minnsta kosti sex látin og 53 særð eftir sprengingu í Tyrklandi Sprenging varð í Istanbúl í Tyrklandi fyrr í dag á svæði sem vinsælt er meðal ferðamanna. Tugir eru sagðir særðir og sex látin. Forseti Tyrklands, Erdogan segir sprenginguna „svikula árás“. Erlent 13.11.2022 15:37
Harris gulltryggir öldungadeildina en fulltrúadeildin enn óljós Helstu miðlar vestanhafs greindu frá því í nótt að Demókratinn Catherine Cortez Masto hefði sigrað mótframbjóðanda sinn, Repúblikanann Adam Laxalt og tryggt flokknum öldungadeildarþingsætið í Nevada. Demókratar hafa nú tryggt sér 50 sæti á móti 49 sætum Repúblikana og eiga niðurstöður enn eftir að berast frá Georgíu. Erlent 13.11.2022 14:04
Demókratar halda meirihluta í öldungadeildinni Demókratar hafa tryggt sér fimmtíu sæti í öldungadeild bandaríska þingsins. Flokkurinn vann afar nauman og mikilvægan sigur í Nevada-ríki í nótt. Erlent 13.11.2022 07:40