Eldgos og jarðhræringar
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 133 ›
Vaktin: Eldgosið í andarslitrunum Eldgosið sem braust út í Sundhnúksgígaröðinni í gærmorgun virðist í andarslitrunum. Íbúar á Suðurnesjum verða að líkindum án heits vatns í húsum til sunnudags. Innlent 9.2.2024 06:02
Þrívíddarlíkan sýnir hraunlengjuna Náttúrufræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands hafa birt þrívíddarlíkan af gosstöðvunum sem urðu til í dag við Sundhnúksgíga. Innlent 8.2.2024 23:09
„Þegar maður horfði út um bílgluggann var svona metri í hraunið“ Gunnar Ágúst Halldórsson starfsmaður Ellerts Skúlasonar ehf. var einn þeirra sem vann við að moka yfir nýja hjáveitulögn HS Veitna við hraunjaðarinn í dag. Hann og félagar hans voru aðeins örfáum metrum frá hraunrennslinu. Innlent 8.2.2024 20:33
„Glatað að nýta sér neyð annarra til að græða“ Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna segir aðgerðir almannavarna hafa gengið vel. Hann hvetur fólk til að sýna nágrannakærleik og segir ömurlegt að fólk nýti sér neyð annarra með því að hamstra hitablásara. Innlent 8.2.2024 20:16
„Ég er að bjarga því að börnunum verði ekki kalt“ Grípa þurfti til fjölmargra aðgerða á Keflavíkurflugvelli í dag þegar heitavatnslaust varð á vellinum. Ferðamenn sögðust flestir hafa vitað af því að það gæti gosið meðan þeir væru staddir á landinu. Langar biðraðir mynduðust í verslunum sem seldu hitara, rafmagnsofna og gaskúta í Reykjanesbæ í dag. Innlent 8.2.2024 19:10
Stefna að því að koma heitu vatni á á morgun Stefnt er á að koma heitu vatni aftur á á morgun. Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri HS Orku segist vera bjartsýnn á að það gangi eftir í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 8.2.2024 18:21
Vildi spila í Keflavík í kvöld: „Geta bara farið í sturtu annars staðar“ Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari liðs Hattar í Subway deild karla í körfubolta, hefði viljað sjá leik liðsins gegn Keflavík færðan til Reykjavíkur eða spilaðan í Keflavík fremur en að honum hafi verið frestað líkt og nú er raunin. Lið Hattar lenti í Reykjavík í morgun en nokkrum klukkustundum síðar var leiknum frestað um óákveðinn tíma. Körfubolti 8.2.2024 18:00
Talsvert dregið úr gosinu Talsvert hefur dregið úr eldgosinu á Reykjanesskaga. Um eitt í dag afmarkaðist virknin við norður og suðurenda gossprungunnar. Innlent 8.2.2024 16:22
Slökkt á loftræstingu og snjóbræðslukerfum á Keflavíkurflugvelli Búið er að slökkva á loftræstingu á Keflavíkurflugvelli til að halda hita á byggingunni. Allt flugvallarsvæðið verður brátt án alls heits vatns. Innlent 8.2.2024 16:20
Heitavatnsleysi gæti varað í margar vikur ef ekki tekst að tengja varalögn Varabirgðir af heitu vatni í tönkum á Fitjum klárast á næstu klukkustundum. Þá tekur við heitavatnsleysi í Reykjanesbæ, á Suðurnesjum og í Vogum. Unnið er hörðum höndum við að tengja varalögn, en ef hún fer einnig undir hraun gæti heitavatnsleysi varað í margar vikur. Innlent 8.2.2024 15:45
Skóla- og leikskólastarf fellur niður í Reykjanesbæ Grípa þarf til lokana víða í starfsemi Reykjanesbæjar vegna skorts á heitu vatni. Skóla- og leikskólastarf fellur niður á morgun og öll íþróttamannvirki verða lokuð. Innlent 8.2.2024 14:55
Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum. Innlent 8.2.2024 14:35
Gjóskan út á haf og ætti því ekki að trufla flug Lítið gjóskufall gæti fylgt þeirri atburðarás sem nú er í gangi í eldgosinu á Reykjanesskaga, þar sem nú má sjá merki um samspil kviku og grunnvatns. Dökkan reyk leggur upp af hrauninu. Gjóskunni blæs út á haf og ætti ekki að hafa áhrif á flug. Innlent 8.2.2024 14:32
Merki um leirgos í fyrsta sinn Sú breyting varð á eldgosinu nýlega samkvæmt Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands að hluti sprungunnar gýs nú svörtum gosmekki í bland við vatnsgufu. Úr verður lítilsháttar sprengivirkni að sögn Veðurstofu. Innlent 8.2.2024 14:10
Varðskip og þyrla í viðbragðsstöðu á Reykjanesi Varðskipið Freyja auk þyrlu Landhelgisgæslunnar verða til staðar á Reykjanesi. Þar verða sveitir Landhelgisgæslunnar til taks fyrir almannavarnir ef þurfa þykir. Innlent 8.2.2024 13:45
Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum. Innlent 8.2.2024 13:16
Ætla að vinna með nýjan veruleika í Bláa lóninu Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu- markaðs og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins, segir að forsvarsmenn lónsins ætli að vinna með nýjan veruleika sem eldgos á Reykjanesskaga hafi haft í för með sér. Kerfi Bláa lónsins séu innan varnargarða. Viðskipti innlent 8.2.2024 12:49
„Í rauninni það versta sem gat gerst“ Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar er staddur á Ítalíu og fylgdist með aukafréttatíma Stöðvar 2, sér til mikillar hrellingar. Innlent 8.2.2024 12:35
Ein af sviðsmyndunum sem gert var ráð fyrir Rennsli hraunsins yfir Grindavíkurveg og Norðurljósaveg við Bláa lónið var ein þeirra sviðsmynda sem gert var ráð fyrir í hraunfræðilíkönum. Flæðið eru vondar fréttir fyrir Suðurnes en ágætar fyrir Grindavík. Innlent 8.2.2024 12:33
Fleiri innviðir í hættu Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi. Innlent 8.2.2024 12:25
Hraunið farið yfir heitavatnslögnina Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga. Innlent 8.2.2024 12:14
Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga. Innlent 8.2.2024 11:57
Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn. Líkur á því að gossprungan lengist frekar hafa því minnkað. Innlent 8.2.2024 11:30
Hraunflæðið kemur á óvart Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það hafa komið sér á óvart að sjá hraun renna yfir Grindavíkurveg og veg að Bláa lóninu. Reynt hafi verið að verja heitavatnslögn á síðustu stundu í morgun. Innlent 8.2.2024 11:25
Biðja fólk um að lækka á ofnum og fara ekki í bað Útlit er fyrir að hraunið á Reykjanesi fari yfir stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ á næstu klukkustundum. Gerist það verður heitavatnslaust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Innlent 8.2.2024 11:12
Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07
Verulega ósáttur að fá ekki að fara til Grindavíkur Hafþór Skúlason, íbúi í Grindavík, er verulega ósáttur við skipulag almannavarna en hann hugðist fara í verðmætabjörgun í bænum í dag. Innlent 8.2.2024 10:57
Hádegisfréttatími vegna eldgossins í heild sinni Eldgos hófst upp úr klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Hraun náði Grindavíkurvegi á ellefta tímanum. Innlent 8.2.2024 10:47
Mögulega heitavatnslaust á Suðurnesjum eftir nokkrar klukkustundir Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjóri. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa. Innlent 8.2.2024 10:34
Grunar að gosið sé búið að ná hámarki Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að sig gruni að eldgosið sem hófst í morgun sé búið að ná hámarki sínu. Hann segist telja líklegt að því verði lokið um helgina. Innlent 8.2.2024 10:32