Úkraína
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 79 ›
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Rússar safna í nýjan herafla á Krímskaga Rússar gerðu stórfelldar loftárásir á borgir og raforkuinnviði í Úkraínu í morgun. Þeir segja ákvörðun Vesturlanda um að senda skriðdreka til landsins marka beina þátttöku vestrænna ríkja í vörnum Úkraínu og ögrun við öryggi Rússlands. Erlent 26.1.2023 19:21
Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. Erlent 26.1.2023 13:50
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. Erlent 26.1.2023 08:32
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. Erlent 25.1.2023 19:21
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 31 skriðdreka Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda 31 M1 Abrams skriðdreka til Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa verið tregir til að senda skriðdreka en í gær samþykktu Þjóðverjar að senda 14 Leopard 2A6 skriðdreka á vígvöllinn. Búist er við að fleiri ríki Atlantshafsbandalagsins fylgi þessu fordæmi og sendi skriðdreka til Úkraínu. Erlent 25.1.2023 18:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. Erlent 25.1.2023 10:50
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. Erlent 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. Erlent 24.1.2023 16:52
Biðja formlega um leyfi til skriðdrekasendinga Yfirvöld í Póllandi hafa sent formlega beiðni til Þýskalands um leyfi til þess að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Ráðamenn í Póllandi hafa gefið í skyn að verði beiðninni hafnað muni þeir samt senda skriðdrekana en Þjóðverjar hafa verið undir miklum þrýstingi að undanförnu vegna málsins. Erlent 24.1.2023 11:01
Telur hæpið að Rússar verði reknir á brott á þessu ári Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segist telja óraunhæft að búast við því að Úkraínumenn geti rekið allar rússneskar hersveitir út úr Úkraínu á þessu ári. Hann sagðist ekki telja það ómögulegt en sagðist telja að stríðið í Úkraínu myndi enda við samningaborðið, eins og flest önnur stríð. Erlent 21.1.2023 22:30
Skilgreina Wagner sem alþjóðleg glæpasamtök Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að skilgreina rússneska málaliðahópinn Wagner Group sem alþjóðleg glæpasamtök. Í kjölfar þess verður hópurinn beittur viðskiptaþvingunum sem takmarka eiga umsvif hópsins á heimsvísu. Erlent 21.1.2023 09:07
Macron ætlar í mikla hernaðaruppbyggingu Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í dag áætlun sína um þriðjungs aukningu á fjárútlátum til varnarmála. Samkvæmt áætlun hans á að verja 413 milljörðum evra til hersins á árunum 2024 til 2030, en á síðustu sambærilegu fjárhagsáætlun, frá 2019 til 2025, voru sömu fjárútlát 295 milljarðar. Erlent 20.1.2023 15:56
Samþykkja ekki enn skriðdrekasendingar til Úkraínu Boris Pistorius, nýr varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði við blaðamenn í Ramstein í Þýskalandi í dag að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Hann sagði þó að ráðuneyti hans myndi fara yfir birgðastöðu Þjóðverja og kanna hve marga skriðdreka hægt væri að senda og hve fljótt, verði slík ákvörðun tekin á næstunni. Erlent 20.1.2023 14:25
Rússar segja að sendingar vestrænna skriðdreka muni engu máli skipta Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútíns, forseta Rússlands, segir að hergagnasendingar Vesturlanda til Úkraínu muni ekki hafa nein áhrif á stöðu mála á víglínum landsins. Sendingarnar muni eingöngu auka á vandræði Úkraínumanna. Erlent 20.1.2023 11:17
Ráðherra meðal þeirra sem dóu þegar þyrla brotlenti á leikskóla Denys Monastyrskiy, innanríkisráðherra Úkraínu, aðstoðarinnanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri eru meðal þeirra minnst átján sem dóu í þyrluslysi í Brovary, skammt austur af Kænugarði, í morgun. Erlent 18.1.2023 08:41
Hrapaði við leikskóla í úthverfi Kænugarðs Þyrla eða dróni rakst á byggingu sem hýsir leikskóla í Brovary, úthverfi Kænugarðs, í Úkraínu í morgun. Innlent 18.1.2023 07:50
Ólafur Stephensen og birgðastaðan á dilkakjöti hjá KS Ólafur Stephensen framkvæmdastóri Félags atvinnurekenda skráir eftirfarandi á facebook síðu sína 17. janúar 2023. „Á bls. 13 í Morgunblaðinu í dag er sagt frá nýjasta stríðsglæp Rússa í Úkraínu, eldflaugaárás á íbúðablokk, þar sem minnst 40 manns létu lífið. Af 75 særðum eru 14 börn. Skoðun 18.1.2023 07:01
Á að ákveða hvort Úkraína fái vestræna skriðdreka Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti í morgun að hann myndi skipa Boris Pistorius í embætti varnarmálaráðherra. Sá hefur verið innanríkisráðherra Neðra-Saxlands frá árinu 2013 en hans fyrsta verk í nýju embætti verður að taka ákvörðun um það hvort flytja megi Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 17.1.2023 13:01
Stór hluti af Mudryk-peningunum fer til úkraínska hersins Forseti Shakhtar Donetsk, Rinat Akhmetov, hefur greint frá því að stór hluti upphæðarinnar sem félagið fékk frá Chelsea fyrir Mykhalo Mudryk renni til úkraínska hersins og hans baráttu hans við innrásarlið Rússa. Enski boltinn 16.1.2023 14:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar undirbúa sig fyrir langvarandi stríð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er byrjaður að taka skref í að breyta hinni „sértæku hernaðaraðgerð“, eins og hann kallar innrás Rússa í Úkraínu, í langvarandi stríð. Ríkisstjórn hans vinnur meðal annars að áframhaldandi herkvaðningu og umfangsmiklum breytingum á iðnaðarkerfi Rússlands með því markmiði að halda stríðinu í Úkraínu áfram til lengdar. Erlent 16.1.2023 11:12
Tugir látnir og fleiri saknað eftir eldflaugaárás á íbúðablokk Minnst 29 hafa fundist látnir og 44 er leitað eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás á íbúðablokk í Dnipro í Úkraínu í gær. Ólíklegt er að nokkur finnist á lífi í rústunum. Erlent 15.1.2023 23:23
Kippir sér frekar upp við rafmagnsleysið en sprengingarnar Loftárásir voru gerðar á mikilvæga innviði Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu í morgun. Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari sem er búsettur í borginni, segir nýjustu loftárásir Rússa sýna fram á veikleika í loftvarnarkerfi Úkraínumanna. Hann segist fremur kippa sér upp við rafmagnsleysi en sprengingar. Innlent 14.1.2023 14:07
Loftárásir á innviði Kænugarðs Loftárásir voru gerðar á mikilvæga innviði Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu í morgun. Yfirvöld beina því til íbúa að leita skjóls í loftvarnarbyrgjum. Erlent 14.1.2023 09:40
Segir enn barist í Soledar en sveitum Rússa hafi fjölgað úr 250 í 280 Úkraínumenn halda enn borginni Soledar en hersveitum Rússa í Úkraínu hefur fjölgað úr 250 í 280 frá því í síðustu viku. Þetta sagði Hanna Maliar, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, á blaðamannafundi í morgun. Erlent 12.1.2023 12:36
Úkraínuforseti segir hinn frjálsa heim sigra Rússa Rússneskar hersveitir hafa sótt hart fram við bæinn Soledar skammt frá borginni Bhakmut í austurhluta Úkraínu undanfarna sólarhringa. Mikið mannfall hefur verið á báða bóga í tilraunum Wagner hersveita Rússa til að ná Bhakmut á sitt vald undanfarna mánuði. Erlent 11.1.2023 19:21
Pútín skiptir um herforingja í Úkraínu Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, tilkynnti í dag að Valery Gerasimov, formaður herforingjaráðs Rússlands, muni taka yfir stjórn innrásar Rússa í Úkraínu. Gerasimov tekur við af herforingjanum Sergei Surovikin, sem hefur verið yfir innrásinni undanfarna þrjá mánuði. Erlent 11.1.2023 18:10
Rússar sækja fram í Soledar Hersveitir Rússa hafa náð árangri gegn Úkraínumönnum í bænum Soledar í austurhluta Úkraínu. Bærinn er norður af Bakhmut en gífurlega harðir bardagar hafa geisað á svæðinu um langt skeið. Rússar hafa reynt að ná Bakhmut í marga mánuði en virðast nú ætla að reyna að umkringja borgina. Erlent 10.1.2023 22:30