Bandaríkin
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 334 ›
Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, lýsti því yfir í dag að Úkraínumenn hefðu þjálfað íslamska öfgamenn í Mið-Austurlöndum og bæru ábyrgð á árásinni á tónleikahöllina í Crocus um helgina. Þá bendlaði hann Bandaríkjamenn og Breta við árásina. Erlent 26.3.2024 22:31
Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Gámaflutningaskipið Dali, sem rak á Francis Scott Key brúna í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt, varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á einum brúarstólpanna. Ríkisstjóri Maryland segir að neyðarkall hafi verið sent út frá skipinu í aðdragandanum, sem hafi bjargað lífum. Erlent 26.3.2024 16:13
Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Tveimur hefur verið bjargað úr Patapsco-ánni í Baltimore í Bandaríkjunum eftir að brú yfir hana hrundi í nótt. Talið er að minnst sjö bifreiðar hafi hafnað í ánni en óvíst er hversu margir voru í bílunum. Erlent 26.3.2024 13:17
Assange verður ekki framseldur strax Hæstiréttur í Lundúnum ætlar að gefa yfirvöldum í Bandaríkjunum þriggja vikna frest til að tryggja að Julian Assange njóti stjórnarskrárbundinna réttinda til tjáningarfrelsis. Hann verður ekki framseldur til Bandaríkjanna fyrr en þetta er tryggt. Erlent 26.3.2024 11:20
Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Viðbragðsaðilar leita nú fólks í Patapsco-ánni, sem rennur í gegn um Baltimore í Bandaríkjunum. Talið er að nokkrir bílar hafi hafnað í ánni þegar Francis Scott Key brúin hrundi í kjölfar þess að fraktskip sigldi á hana í nótt. Erlent 26.3.2024 10:24
Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Bandaríski leikarinn Sacha Baron Cohen er æfareiður út í kollega sinn áströlsku leikkonuna Rebel Wilson vegna fullyrðinga um hann sem hún leggur fram í væntanlegri endurminningarbók sinni. Leikkonan segir að hún muni ekki breyta bókinni. Lífið 26.3.2024 10:06
Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Francis Scott Key-brúin í Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum hrundi í nótt eftir að gámaflutningaskipi var siglt á brúna. Erlent 26.3.2024 07:21
Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Alríkislögregla Bandaríkjanna gerði í dag húsleit í fasteignum tónlistarmannsins Diddy. Diddy var í nóvember kærður fyrir kynferðisbrot og hefur verið sakaður um aðild að mansali og sölu og dreifingu fíkniefna. Erlent 25.3.2024 22:32
Beinir spjótunum enn að Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir öfgamenn úr röðum íslamista hafa gert árásina á tónleikahöllina í Crocus um helgina en beinir spjótum sínum þó áfram að Úkraínu og Bandaríkjunum. Í ræðu í kvöld gaf hann í skyn að árásarmennirnir hefðu fengið borgað fyrir árásina og frá Úkraínu. Erlent 25.3.2024 22:01
Netanjahú í fýlu við Biden Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur hætt við að senda hóp erindreka til Bandaríkjanna eins og til stóð, eftir að sendiherra Bandaríkjanna sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasaströndinni. Netanjahú segir hjásetuna koma niður á viðleitni Ísraela til að frelsa gísla úr haldi Hamas. Erlent 25.3.2024 19:15
Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Tryggingin sem Trump þarf að greiða vegna 454 milljóna dala sektar sem honum hefur verið gert að greiða í New York í 175 milljónir. Trump þarf þó að leggja fram trygginguna innan tíu daga og hún gildir eingöngu meðan hann áfrýjar sektarúrskurðinum. Erlent 25.3.2024 18:06
Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna. Viðskipti erlent 25.3.2024 13:09
Fyrirsætulífið úti mikið ævintýri en saknar íslenska vatnsins „Ég elska þennan bransa jafn mikið og ég gerði daginn sem ég byrjaði í honum. Því vinnan mín er svo óútreiknanleg,“ segir fyrirsætan Birta Abiba. Birta er búsett í Los Angeles um þessar mundir og sat nýverið fyrir í auglýsingaherferð fyrir hamborgararisann McDonald's. Blaðamaður ræddi við Birtu um lífið úti. Lífið 23.3.2024 07:02
Hafna tillögu um „brýnt vopnahlé“ Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur hafnað ályktun um vopnahlés á Gasaströndinni. Sendiherrar Rússlands og Kína beittu neitunarvaldi ríkjanna til að koma í veg fyrir samþykkt ályktunarinnar, sem lögð var fram af sendiherra Bandaríkjanna. Erlent 22.3.2024 13:41
Óáreiðanleg Evrópuríki Fullyrðingar þess efnis að ekki sé hægt að treysta á Bandaríkin í varnarmálum standast ekki nánari skoðun. Hið sama á við um fullyrðingar um að hægt sé að treysta á ríki Evrópusambandsins í þeim efnum. Skoðun 22.3.2024 13:32
Landsnefndin notuð til að borga lögfræðikostnað Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur gert nýtt fjáröflunarsamkomulag við Landsnefnd Repúblikanaflokksins (RNC). Það samkomulag felur í sér að fjármunir sem RNC safnar fara í pólitískan aðgerðasjóð Trumps til að borga lögfræðikostnað hans. Erlent 22.3.2024 11:03
Bandaríkin höfða mál gegn Apple vegna einokunar Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur höfðað mál gegn Apple. Tæknirisinn er sakaður um að beita einokunarstöðu sinni á markaði snjallsíma til að koma í veg fyrir samkeppni. Þá hafi staða fyrirtækisins verði notuð til að halda aftur af samkeppni á hugbúnaðarmarkaði og draga úr notagildi annarra síma í samkeppni við iPhone. Viðskipti erlent 21.3.2024 16:50
Íslenskur morðingi nú grunaður um brot gegn barni Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, er nú grunaður um kynferðisbrot gegn börnum. Erlent 21.3.2024 13:21
Dómarinn í skjalamálinu harðlega gagnrýndur Lögmenn og fyrrverandi dómarar hafa lýst yfir mikilli furðu á skipun sem dómarinn í skjalamáli Trumps svokölluðu gaf út í vikunni. Telja þeir aðgerðir dómarans gefa til kynna að réttarhöldin gegn Trump fyrir að taka með sér opinber og leynileg skjöl þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og neita að afhenda þau, muni ekki fara fram í bráð. Erlent 21.3.2024 10:44
Gefur lítið fyrir mögulega dómsátt í máli Bandaríkjanna gegn Assange Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna er sagt velta því fyrir sér að bjóða Julian Assange dómsátt, sem myndi fela það í sér að hann játaði að hafa misfarið með leynileg gögn og yrði þess í stað ekki sóttur til saka fyrir njósnir og fleiri alvarlega glæpi. Erlent 21.3.2024 10:38
Játaði að hafa drepið þúsundir skalla- og gullarna Bandarískur maður hefur játað að hafa skotið þúsundir verndaðra fugla á síðustu árum og selt fjaðrir þeirra og parta á svörtum markaði. Í skilaboðum til kaupanda talaði hann frjálslega um að hafa brotið lög og drepið marga fugla á skömmum tíma. Erlent 21.3.2024 08:00
Valdefling kvenna – öllum til góðs Mér hlotnaðist sá heiður að sækja Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem sett var í New York í síðustu viku. Megin þema fundarins að þessu sinni var að hraða árangri er varða kynjajafnrétti og valdeflingu allra kvenna og stúlkna með því að takast á við fátækt og styrkja stofnanir og fjármögnun með kynjaðri heildarsýn. Skoðun 21.3.2024 07:00
M. Emmet Walsh látinn Bandaríski leikarinn M. Emmet Walsh er látinn, 88 ára að aldri. Hann lék meðal annars í myndunum Blade Runner og Christmas with the Kranks, en hann lék 233 hlutverk á leikaraferli sem hófst á sjöunda áratugnum. Lífið 20.3.2024 22:43
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. Viðskipti innlent 20.3.2024 21:35
Fresta aftur gildistöku strangra laga í Texas Ætlanir yfirvalda í Texas í Bandaríkjunum um að handtaka og vísa úr landi hælisleitendum sem farið hefðu yfir landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó með ólöglegum hætti voru stöðvaðar í morgun. Það var einungis nokkrum klukkustundum eftir að dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna vísuðu málaferlum vegna laganna aftur til neðra dómstigs en neituðu í leiðinni að koma í veg fyrir gildistöku laganna. Erlent 20.3.2024 11:41
Þróa lestarkerfi fyrir tunglið Forsvarsmenn DARPA, rannsóknarstofnunar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hafa leitað til fyrirtækisins Northrop Grumman varðandi þróunarvinnu fyrir mögulegt lestarkerfi á tunglinu. Kerfi þetta ætti að vera hægt að nota til að flytja menn og birgðir milli staða á tunglinu í framtíðinni. Erlent 20.3.2024 10:47
Segja Rafah síðasta virki Hamas og eru staðráðnir í að fara inn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, ávarpaði þingmenn í gær og sagðist enn staðráðinn í því að ráðast inn í Rafah þrátt fyrir viðvaranir Bandaríkjanna og fleiri ríkja. Erlent 20.3.2024 07:06
Ströng innflytjendalög í Texas samþykkt af hæstarétti Hæstiréttur Bandaríkjanna samþykkti í dag gildistöku laga sem heimila lögregluyfirvöldum í Texas-ríki að handtaka fólk sem grunað er um að hafa farið ólöglega yfir landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Erlent 20.3.2024 00:08
Daði Freyr og Laufey spila á Lollapalooza Tveir Íslendingar munu koma fram á Lollapalooza tónlistarhátíðinni í Chicago-borg í Bandaríkjunum í sumar, Daði Freyr og Laufey. Lífið 19.3.2024 22:21
HÍ mátti reka nemanda í geðrofi sem hótaði samnemanda lífláti Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðaði í dag að Háskóla Íslands hafi verið heimilt að víkja nemanda úr skólanum. Nemandinn, sem stundaði nám við Lyfjafræðideild háskólans, krafðist þess að ákvörðun forseta Heilbrigðisvísindasviðs um að víkja honum úr skólanum yrði felld úr gildi, og yrði breytt þannig að honum yrði ekki heimiluð skólavist. Áfrýjunarnefndin féllst ekki á það. Innlent 19.3.2024 13:39