E. coli-sýking á Mánagarði
Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar. Innlent 28.10.2024 11:55
Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik. Innlent 28.10.2024 10:46
Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp „Dóttir mín var þá tveggja að verða þriggja ára og fékk allan pakkann og vorum við rúmlega mánuð á spítalanum áður en hún fékk að fara heim, en var alls ekki fullfrísk og er ekki fimm árum seinna. Okkur langar svo að geta gefið af okkur til aðstandenda og veitt stuðning svo við ákváðum að stofna vettvang þar sem aðstandendur geti leitað stuðnings og fengið upplýsingar.“ Innlent 27.10.2024 21:11
Tvö börn til viðbótar lögð inn á spítala vegna E.coli Tvö börn til viðbótar hafa verið lögð inn á Landspítala vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja sex börn inni á spítala og þar af eru tvö enn á gjörgæslu. Innlent 26.10.2024 13:40
Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti Tæplega þrjátíu leikskólabörn eru í virku eftirliti vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja fjögur börn inni á spítala en tvö þeirra eru enn á gjörgæslu. Þetta staðfestir Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans. Innlent 25.10.2024 19:39
Starfsfólk Mánagarðs í áfalli Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar. Leikskólastjórinn segir alla starfsmenn skólans vera í áfalli vegna málsins. Innlent 24.10.2024 19:16
Tveimur deildum á leikskóla í Hveragerði lokað vegna E.coli smits Tvær deildir á leikskólanum Óskalandi í Hveragerði verða lokaðar á morgun eftir að barn á leikskólanum greindist með E.coli í dag. Fjallað er um málið á vef RÚV en þar kemur fram að barnið var í leikskólanum Mánagarði en hóf aðlögun í Óskalandi á mánudag. Innlent 24.10.2024 18:31
Nú 27 börn veik vegna e.coli sýkingarinnar Alls eru nú 27 börn á leikskólanum Mánagarði veik vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum. Af þeim eru fjögur inniliggjandi. Tvö þeirra sem eru inniliggjandi eru á gjörgæslu og þurfa bæði að öllum líkindum að fara í nýrnaskilun. Þetta staðfestir Andri Ólafsson samskiptastjóri Landspítalans. Innlent 24.10.2024 17:20
Veikindi á fimm af sjö deildum leikskólans Sóttvarnalæknir segir rannsókn á uppruna E.coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði í fullum gangi og þar séu matvæli helst til skoðunar. Tvö börn liggja á gjörgæslu vegna veikindanna og fara að líkindum í nýrnaskilun. Innlent 24.10.2024 13:57
Fjölgar í hópi alvarlega veikra barna Af sjö börnum úr leikskólanum Mánagarði sem liggja inni á Barnaspítala Hringsins með staðfesta E.coli-sýkingu eru tvö alvarlega veik. Tíu eru með staðfesta sýkingu. Innlent 24.10.2024 10:47
Eitt barnanna alvarlega veikt og óvissa fram yfir helgi Eitt barn er alvarlega veikt eftir að E.coli sýking kom upp á leikskólanum Mánagarði, en tólf hafa leitað á spítala vegna hennar. Læknir á Barnaspítala Hringsins segir óvissuástand uppi um umfang smitsins, sem muni líklega vara fram yfir helgi. Óráðlegt sé að gefa börnum sýklalyf við þessar aðstæður, og mikilvægast að tryggja að þau fái nægan vökva. Innlent 23.10.2024 15:42
Greina matinn sem börnin á Mánagarði borðuðu Mikil vinna stendur yfir hjá Matvælastofnun, embætti sóttvarnalæknis og heilbrigðiseftirlitinu við að leita að uppruna sýkingar sem leitt hefur til veikinda barna á leikskólanum Mánagarði. Þó nokkur börn hafa verið lögð inn á Landspítalann. Sterkar vísbendingar eru um orsök smitsins. Leikskólastjóri lítur málið alvarlegum augum en fyrsta barnið greindist síðdegis í gær. Innlent 23.10.2024 12:58
Sex börn inniliggjandi vegna E.Coli-sýkingar Mikið álag er á barnaspítalanum vegna E.coli-sýkingar meðal leikskólabarna samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Sex börn eru inniliggjandi eða voru það að minnsta kosti á tímabili í morgun. Starfsfólk býst við að innlögnum fjölgi. Innlent 23.10.2024 11:56
Tíu börn með einkenni E.Coli-sýkingar Tíu börn á leikskólanum Mánagarði höfðu í gærkvöldi leitað á sjúkrahús með einkenni E.Coli-sýkingar. Fjögur eru nú inniliggjandi til eftirlits og fjögur til viðbótar höfðu leitað á bráðamóttöku Landspítalans. Innlent 23.10.2024 09:09
Segist ekki geta tjáð sig um innlagnir vegna E. coli sýkingar „Við erum rétt mætt og að fara yfir stöðuna,“ segir Soffía Emelía Bragadóttir, leikskólastjóri Mánagarðs, sem var lokað í gær vegna alvarlegrar E. coli sýkingar. Innlent 23.10.2024 07:58
Leikskóla lokað vegna E.coli sýkingar Leikskólanum Mánagarði í Reykjavík hefur verið lokað samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis vegna alvarlegrar E.coli sýkingar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 23.10.2024 00:03