Snjóflóð á Íslandi
1 2 3 4 5 … 5 ›
Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu. Innlent 17.3.2026 11:52
Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Gular viðvaranir eru nú í gildi vegna veðurs á Faxaflóa, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þær eru annars vegar til 14 og 17. Þar er norðvestan stormur og hríð og á Faxaflóa er vindhraðinn allt að 25 metrum á sekúndu. Veður 17.3.2026 07:18
Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Ólafsfjarðarvegi við Ólafsfjarðarmúla á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðs. Innlent 16.3.2026 20:20
Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Vestfjörðum, Faxaflóa og Norðurlandi vestra. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er víða um land. Veður 16.3.2026 11:46
Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar. Veður 15.3.2026 18:53
Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Tvö snjóflóð hafa fallið skammt frá Siglufirði síðan í nótt. Leiðargarðar við bæinn hafa sannað gildi sitt og skýlt byggðinni frá snjóflóðum að sögn ofanflóðasérfræðings á svæðinu. Annað snjóflóðið var töluvert stórt. Innlent 15.3.2026 15:46
Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun. Innlent 15.3.2026 09:57
Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verða rýmd í fyrramálið vegna snjóflóðahættu, að sögn Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis verður Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti, en í nótt taka gular veðurviðvaranir gildi á norðvesturhorni landsins. Veður 14.3.2026 21:40
Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Símon Símonarsson, íbúi á Steinaflötum við Siglufjörð, segist engar áhyggjur hafa þótt honum og syni hans hafi verið gert að yfirgefa heimilið vegna snjóflóðahættu á svæðinu. Hann bíður rólegur eftir því að fá leyfi til að fara aftur heim. Innlent 14.3.2026 16:20
„Þetta er ekkert grín“ Ofanflóðasérfræðingur á Siglufirði segist aldrei hafa séð annað eins á þeim slóðum og vísar þar til stærðarinnar snjóflóðs sem féll í nótt. Mikil lukka er að enginn hafi verið á ferli þegar það féll. Ískyggilegt er að sjá snjóflóðið innan við kílómetra frá byggð. Innlent 14.3.2026 14:34
„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Innlent 14.3.2026 12:53
Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. Innlent 14.3.2026 11:01
Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði. Innlent 12.3.2026 17:03
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. Innlent 12.3.2026 11:01
Óvissustig í Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Innlent 11.3.2026 22:01
Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu. Eitt snjóflóð féll á veginn og verður lokað um umferð fram á morgundag. Innlent 7.3.2026 11:58
Á rannsókn á Flateyri að bíða? Snjóflóðið sem féll á Flateyri árið 1995 hefur aldrei verið tekið til sjálfstæðrar og heildstæðrar rannsóknar. Ég lifði sjálf af flóðið og missti systur mína í því. Skoðun 4.3.2026 11:01
Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Kona sem komst lífs af í snjóflóðinu á Flateyri árið 1995 hefur lagt fram formlegt erindi til Alþingis um rannsókn á snjóflóðinu líkt og gert var í tilfelli snjóflóðsins sama ár í Súðavík. Sé rannsókn réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga hljóti sami mælikvarði að gilda á Flateyri. Annað kalli á skýran og rökstuddan mun. Innlent 16.2.2026 11:23
Af hverju var snjóflóðið á Flateyri ekki rannsakað? Árið 1995 féllu tvö mannskæð snjóflóð á Íslandi, í Súðavík í janúar og á Flateyri í október sama ár. Bæði leiddu til manntjóns og víðtækra samfélagslegra afleiðinga. Atburðirnir áttu sér stað innan sama stjórnsýslulega ramma og á tímabili þar sem hættumat og viðbúnaður voru í mótun. Skoðun 15.2.2026 23:31
Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Lítið snjóflóð féll á snjótroðara sem var við vinnu í Hlíðarfjalli í gær. Starfsmaður slasaði sig ekki og ekkert tjón varð á troðaranum þegar flóðið féll á hliðina á honum. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segir starfsmann hafa komið sér niður af fjallinu eftir flóðið. Innlent 19.12.2025 15:03
Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Ástæða er fyrir fólk að fara varlega á ferð um brattlendi í Eyjafirði þar sem snjóflóð hafa fallið síðustu daga. Innlent 19.12.2025 14:31
Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Ljósi er varpað á málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík í skýrslu rannsóknarnefndar sem var kynnt í dag. Formaður nefndarinnar segir hægt að draga lærdóm af skýrslunni. Innlent 15.12.2025 19:32
Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 segir nýja skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var í dag ekki til neins ef ekki verði brugðist við henni. Hann segir ekki dag líða þar sem hann hugsi ekki til dagsins örlagaríka í janúar þetta ár, stjórnvöld hafi með því að neita að horfast í augu við ábyrgð látið eins og fráfall íbúa í Súðavík hafi ekki skipt neinu máli. Innlent 15.12.2025 19:12
Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík árið 1995 er hvorki að finna álit né vangaveltur nefndarinnar um mögulega ábyrgð einstaklinga á atburðum 16. janúar 1995, þegar fjórtán fórust. Í skýrslunni segir hins vegar að auðvelt sé að vera vitur eftir á. Innlent 15.12.2025 16:23
Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni og afhent forseta Alþingis skýrsluna. Skýrslan verður kynnt opinberlega klukkan 15. Innlent 15.12.2025 13:18
Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Í dag mun rannsóknanefnd sem Alþingi skipaði til að rannsaka aðdraganda og eftirmál snjóflóðsins í Súðavík fyrir þrjátíu árum skila skýrslu sinni. Kona sem missti dóttur sína í flóðinu segist vona að sannleikurinn fái loksins að koma í ljós. Innlent 15.12.2025 12:01
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11.12.2025 21:51
Snjóhengjur geti skapað hættu Enn er viðvörun um aukna snjóflóðahættu í gildi á Suðvesturlandi. Gefin var út slík viðvörun í gær vegna mikillar snjókomu. Þá var hættan metin töluverð en er nú búin að lækka hana í nokkra hættu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er viðvörunin í gildi þar til klukkan 19 í kvöld. Innlent 29.10.2025 13:12
Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Talsverð snjókoma hefur verið á suðvesturhorni landsins og áfram er spáð mikilli snjókomu í dag. Svæðisbundin snjóflóðaspá hefur verið uppfærð í appelsínugulan, sem þýðir töluverð hætta á snjóflóðum. Innlent 28.10.2025 13:34
Hinna látnu minnst í Flateyrarkirkju Minningarstund fer fram í Flateyrarkirkju í dag í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá því að tuttugu manns létust þar í snjóflóði. Sóknarprestur segir það gefa samfélaginu mikið að finna samhug þjóðarinnar, sorg sé í lofti í bænum í dag. Innlent 26.10.2025 12:02