
Landslið kvenna í fótbolta

Sara fékk ekki þann stuðning sem hún vonaðist eftir frá Lyon
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, yfirgefur Lyon í sumar þegar samningur hennar við félagið rennur út.

Fannst ömurlegt á körfuboltaæfingum og veit ekki hvaðan löngu innköstin komu
Sveindís Jane Jónsdóttir, nýkrýndur Þýskalandsmeistari, veit ekki hvaðan hæfileiki hennar til að grýta boltanum langt inn í vítateig andstæðinganna kemur. Í yngri flokkunum stundaði hún það að kasta boltanum í mótherja og inn.

Glódís byrjaði fyrir löngu að undirbúa lífið eftir ferilinn: „Getur alltaf eitthvað komið upp á“
Þrátt fyrir að vera enn á besta aldri sem fótboltakona er langt síðan Glódís Perla Viggósdóttir byrjaði að búa sig undir lífið eftir að skórnir fara á hilluna.

Baráttusætin í EM-hópnum
Í dag, 10. maí, eru tveir mánuðir þar til íslenska kvennalandsliðið mætir Belgíu í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu á Englandi. En hvernig myndi hópur Íslands líta út á EM? Vísir kannaði málið.

„Slæ metið hennar Söru og hætti svo“
Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára hefur Glódís Perla Viggósdóttir spilað 101 A-landsleik fyrir Íslands hönd. Hún er ekki viss hvort hún nái tvö hundruð landsleikjum en vill allavega bæta leikjamet landsliðsins.

Hæstánægð eftir skiptin til Puma: „Fannst Nike ekki gera nógu mikið“
Puma hafði gengið með grasið í skónum eftir Söru Björk Gunnarsdóttur í tvö ár áður en hún samdi við íþróttavöruframleiðandann. Hún segir að Puma geri meira fyrir sig en Nike sem hún var áður samningsbundinn.

Kristín Dís með slitið krossband | EM úr sögunni
Kristín Dís Árnadóttir sleit krossband í hné þegar hún meiddist í leik með Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta á dögunum.

Gagnrýni Söru á mótshaldara EM vekur heimsathygli
Gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur á mótshaldara EM 2022 hefur vakið heimsathygli. Hún er afar ósátt við að tveir leikir Íslands á mótinu fari fram á akademíuleikvangi Manchester City.

Sara gagnrýnir gestgjafa EM: „Veit ekki hvað er í gangi í hausnum á þeim“
Sara Björk Gunnarsdóttir segir að gestgjafar Evrópumótsins í fótbolta í sumar virðist ekkert vera að fylgjast með því sem sé í gangi í knattspyrnu kvenna í heiminum. Hún segir vanvirðingu fólgna í því á hvaða völlum Ísland spili sína leiki.

Þakka stelpunum okkar fyrir stuðninginn
Um leið og íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann sigrana tvo gegn Hvíta-Rússlandi og Tékklandi, og steig stórt skref í átt að HM, sýndi liðið stuðning við úkraínsku þjóðina með táknrænum hætti.

Umfjöllun: Tékkland - Ísland 0-1 | Handarmark Gunnhildar kom Íslandi skrefi nær HM
Ísland steig stórt skref í átt að því markmiði sínu að komast á HM á næsta ári með 0-1 sigri á Tékklandi í Teplice í dag.

„Ég ætla að fara á HM áður en ég hætti“
„Þessi leikur fór kannski bara eins og við bjuggumst við,“ sagði landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir eftir mikilvægan sigur íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í dag.

„Ef þú verst vel og færð ekki á þig mark þá geturðu alltaf unnið“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var eins og gefur að skilja gríðarlega ánægður með 1-0 sigur liðsins gegn Tékkum í undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.

„Elskum við ekki svona?“
Sif Atladóttir segir að sigurinn á Tékklandi í undankeppni HM í dag hafi verið einn sá sætasti sem hún hefur upplifað með landsliðinu.

„Boltinn fór í lærið og eitthvað“
„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Þær eru með drullugott lið. Við skoruðum eitt mark þótt það hafi ekki verið það fallegasta. Við gáfum allt í þetta og ég er svo stolt af liðinu,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, eftir sigurinn á Tékklandi í dag.

Þýskir aðdáendur Íslands ferðuðust á leikinn í Teplice
Þeir eru ekki margir stuðningsmenn Íslands í stúkunni á Teplice leikvanginum þar sem Íslendingar og Tékkar eigast við í undankeppni HM.

Allt klárt í Teplice fyrir stórleikinn
Íslenska landsliðið er mætt á leikvanginn í Teplice þar sem framundan er stórleikurinn við Tékkland í undankeppni HM.

Sandra inn fyrir Cecilíu en annað óbreytt
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu fyrir leikinn Tékklandi í undankeppni HM í Teplice í dag.

Búast við þrjú þúsund manns á leiknum mikilvæga
Búist er við að þrjú þúsund áhorfendur verði á leik Íslands og Tékklands í undankeppni HM í dag.

„Þær breyta kannski hvernig þær spila“
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, sem hefur verið fyrirliði fótboltalandsliðsins undanfarin misseri, segir Tékka engin lömb að leika sér við þótt Íslendingar hafi unnið þá tvisvar síðasta hálfa árið.

„Þurfum að þora að vera við sjálfar inni á vellinum“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, á von á sókndjarfari Tékkum en í fyrri leikjum liðanna. Tékkland verður að vinna leik liðanna í undankeppni HM 2023 til að eygja von um að komast í umspil.

„Það vilja allir spila svona leik“
Þorsteinn Halldórsson segir andann í íslenska liðinu vera góðan fyrir leikinn mikilvæga gegn Tékklandi í undankeppni HM á morgun.

„Við erum kannski aðeins sterkari en samt eru þetta svipuð lið“
Dagný Brynjarsdóttir á von á erfiðum leik gegn Tékklandi í undankeppni HM á morgun.

Kann vel við sig hjá Bayern: „Hjálpar mjög mikið að hafa Karólínu og Glódísi þarna“
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, kveðst ánægð með lífið hjá Bayern München þar sem hún er í láni frá Everton á Englandi.

„Rosaleg samkeppni í hópnum og alls ekki gefið að fá að spila“
Guðrún Arnardóttir hefur átt góðu gengi að fagna með fótboltalandsliðinu í undankeppni HM eftir að hafa verið inn og út úr landsliðshópnum í nokkur ár.

„Þakklát fyrir öll tækifæri sem ég hef fengið“
Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð á milli stangana þegar Ísland vann 0-5 sigur á Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM á fimmtudaginn. Ísland mætir Tékklandi í Teplice á morgun í afar mikilvægum leik.

„Þær gætu tekið smá áhættu“
Guðrún Arnardóttir, miðvörður íslenska fótboltalandsliðsins, hlakkar til leiksins mikilvæga gegn Tékklandi í undankeppni HM á þriðjudaginn.

Dagný: Væri ótrúlega gaman að ná Fríðu og skora fjörutíu landsliðsmörk
Dagný Brynjarsdóttir lék landsleikur númer hundrað þegar Ísland vann stórsigur á Hvíta-Rússlandi, 0-5, í undankeppni HM á fimmtudaginn. Hún hélt upp á áfangann með því að skora.

„Vonast auðvitað til að fá einhverjar mínútur“
Selma Sól Magnúsdóttir er gíruð fyrir leikinn stóra gegn Tékklandi í undankeppni HM á þriðjudaginn. Með sigri í honum færist íslenska fótboltalandsliðið nær því markmiði sínu að komast á sitt fyrsta heimsmeistaramót.

Rifjar upp gamla bakvarðatakta: „Þarf að aflæra vörnina“
Sif Atladóttir spilaði sem hægri bakvörður í leiknum gegn Hvít-Rússum í undankeppni HM á fimmtudaginn. Undanfarin ár hefur hún spilað sem miðvörður og hefur því þurft að læra bakvarðartökin á ný.