Stéttarfélög
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 27 ›
Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6.5.2024 15:50
Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, segir að öflugt umbótastarf í vinnuanda á skrifstofunni hafa gengið vel og að félagið sé á réttri leið. Óánægju hefur gætt meðal stafsmanna félagsins, meðal annars með framgöngu Þórarins. Innlent 5.5.2024 12:21
Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Ríkissáttasemjari hefur boðað stéttarfélög starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtök atvinnulífsins á fund í Karphúsinu á hádegi. Að óbreyttu hefjast aðgerðir á flugvellinum að síðdegis á fimmtudag. Innlent 5.5.2024 09:59
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1.5.2024 21:01
Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var harðorð í garð íslenskra stjórnvalda í ræðu hennar á útifundi á Ingólfstorgi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins í dag. Hún segir íslensk stjórnvöld haldin sjúkri undirgefni gagnvart Bandaríkjunum. Innlent 1.5.2024 15:27
Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Hátíðarhöld fara fram um allt land í dag vegna Verkalýðsdagsins 1. maí. Formaður VR segir verkalýðsbaráttuna sjaldan hafa verið jafn mikilvæga og í dag. Innlent 1.5.2024 11:55
Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands fer hörðum orðum um úttekt endurskoðunarfyrirtækis á reikningum félagsins í stjórnartíð hans. Hann furðar sig meðal annars á ávirðingum fyrir að hafa ekki fengið leyfi fyrir vínarbrauðskaupum fyrir eldri félagsmenn. Innlent 23.4.2024 12:04
Æpandi vanþekking Ég hlýt að þakka stjórn Blaðamannafélags Íslands fyrir að hafa sent svokallaða skýrslu KPMG til félagsmanna BÍ þannig að þeir geti kynnt sér þá aðför að æru minni sem þarna er á ferðinni beint og milliliðalaust. Skoðun 23.4.2024 12:01
Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Fyrrverandi framkvæmdastjóri og formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ) er sagður hafa greitt sjálfum sér milljónir í fyrirframgreidd laun og stofnað til annarra útgjalda án heimildar í úttekt sem endurskoðunarfyrirtæki gerði á bókhaldi félagsins. Innlent 19.4.2024 18:32
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Katrín Björg Ríkarðsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í kjara- og réttindamálum hjá Visku - stéttarfélagi. Katrín hefur verið framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu frá árinu 2017. Viðskipti innlent 19.4.2024 08:21
Flettu ofan af launamun kynja á Barnaspítalanum Þrír barnalæknar á Landspítalanum flettu ofan af kynbundnum launamun á Barnaspítalanum. Karllæknar hafi fengið fleiri viðbótarþætti metna til launa. Laun kvennanna hafa verið leiðrétt og þeim bættur skaðinn afturvirkt. Dæmi séu um að fleiri konur hafi fengið launaleiðréttingu. Innlent 9.4.2024 08:00
Freyja nýr framkvæmdastjóri blaðamanna Freyja Steingrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Hún tekur við starfinu af Hjálmari Jónssyni sem lét af störfum í janúar. Innlent 5.4.2024 10:58
„Fréttir eru ekki ókeypis“ Formaður Blaðamannafélags Íslands segir minnst tíu milljarða króna fari út úr íslenskum fjölmiðlamarkaði árlega í formi auglýsinga til Google og Meta. Hún viðrar hugmyndina um að almenningur borgi áskrift fyrir fréttir til þess að blaðamennskunni verði haldið á floti en starfsgreinin hefur samkvæmt nýrri vitundarherferð félagsins aldrei verið mikilvægari. Innlent 3.4.2024 18:46
Samningar yfir 40 þúsund opinberra starfsmanna lausir Formaður BSRB vonar að aukinn þungi færist í kjaraviðræður við ríki og sveitarfélög (LUM) eftir að samningar ríflega fjörtíu þúsund félagsmanna bandalagsins og BHM losnuðu nú um mánaðamótin. Innlent 2.4.2024 19:41
Ólíklegt að öll aðildarfélög BHM gangi saman til viðræðna Kjarasamningar aðildarfélaga BHM losna þann 1. apríl. Formaður telur ólíklegt að öll 24 aðildarfélög gangi saman til viðræðna. Ekki hefur verið boðað til funda við viðsemjendur en hún á von á því að það skýrist eftir páska. Innlent 25.3.2024 12:00
Félagsmenn VR samþykktu kjarasamning við SA Félagsmenn VR hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda. Samningurinn var samþykktur með 78,56 prósent atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag. Innlent 21.3.2024 14:00
Félagsmenn í félögum SGS samþykkja kjarasamning Kjarasamningur SGS og SA hefur verið samþykktur með miklum meirihluta, eða 82,72 prósent atkvæða. Nei sögðu 12,85 prósent og 4,43 prósent tóku ekki afstöðu. Kjarasamningurinn hefur nú verið samþykktur hjá öllum 18 aðildarfélögum SGS. Innlent 20.3.2024 13:53
Eflingarfólk samþykkir kjarasamning með miklum meirihluta Um 76 prósent þeirra félagsmanna Eflingar sem greiddi atkvæði um Stöðugleikasamninginn svokalla greiddi atkvæði með samþykkt samningsins. Um 13 prósent greiddi atkvæði gegn samþykkt samningsins og 10 prósent skilaði auðu. Kosningaþátttakan var tíu prósent. Innlent 20.3.2024 12:29
Fólk í fagfélögunum sagði upp til hópa já Félagsfólk í Fagfélögunum Matvís, VM og RSÍ hefur samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. Innlent 19.3.2024 15:03
Samningar Samiðnar samþykktir Mikill meirihluti félagsmanna Samiðnar greiddi atkvæði með nýlegum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslu lauk í dag en samningarnir náðu til tæplega 8700 manns. Innlent 19.3.2024 13:36
Engir langtímakjarasamningar án gjaldfrjálsra skólamáltíða Formaður Starfsgreinasambandsins segir það ekki koma til greina að sleppa gjaldfrjálsum skólamáltíðum í langtímakjarasamningum við sveitarfélögin. Hann sakar Sjálfstæðismenn um að notfæra sér verkalýðshreyfinguna í pólitískri skák. Innlent 16.3.2024 12:38
Af hverju er útspil SA um verkbann alvarlegt fyrir þig? Fyrir Verkalýðshreyfinguna hafa síðustu dagar verið æsispennandi, streituvaldandi, tilfinningaþrungnir, en jafnframt opnað augu margra fyrir aðstæðum á íslenskum vinnumarkaði. Skoðun 15.3.2024 15:01
Engin svör Manni sýnist að þrátt fyrir að skrifað hafi verið undir kjarasamninga, með aðkomu sveitarfélaga og 80 milljarða meðgjöf frá ríkisvaldinu, að þá standi þetta allt frekar tæpt. Atburðarásin er ekki sannfærandi, satt best að segja. Sem er miður því kjarasamningar til langs tíma eru nauðsynlegir. Það er ljóst eftir útspil Sjálfstæðisflokksins á sveitastjórnarstiginu að lítil sátt er um skólamáltíðir, sem þó er partur af samkomulaginu. Skoðun 15.3.2024 08:02
Fordæmir offors SA gagnvart starfsmönnum Icelandair Samninganefnd verslunarmanna fordæmir það „offors“ sem hún segir Samtök atvinnulífsins hafa sýnt af sér gagnvart fámennum hópi starfsmanna við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair í Keflavík í vikunni. Þrátt fyrir þetta hafi ásættanleg niðurstaða náðs í kjaraviðræðum í nótt. Innlent 14.3.2024 17:56
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins um allt land krefja Heiðu skýringa Tuttugu og sex oddvitar Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélögum út um allt land gagnrýna formann Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir að fara gegn vilja sveitarfélaganna í aðkomu sinni að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Innlent 14.3.2024 06:34
SA og verslunarmenn hafa undirritað kjarasamning Samtök atvinnulífsins og verslunarmenn undirrituðu kjarasamning nú á fyrsta tímanum. Samningurinn byggir að miklu leyti á þeim kjarasamningum sem undirritaðir voru í síðustu viku og gildir til fjögurra ára. Ekkert verður af boðuðum verkföllum VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli og verkbanni Samtaka atvinnulífsins á skrifstofufólk í VR. Innlent 14.3.2024 00:39
Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, hlaut flest atkvæði í kosningum til stjórnar VR sem lauk í hádeginu. Hún hefur átt sæti í stjórn VR frá árinu 2022. Viðskipti innlent 13.3.2024 14:56
Fagfélögin fordæma verkbann Fagfélögin fordæma ákvörðun stjórnar Samtaka atvinnulífsins að boða vinnubann gagnvart félaga VR vegna kjaradeilu samtakanna við framlínufólk hjá Icelandair. Innlent 13.3.2024 14:05
Fundi frestað til morguns Fundi samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og verslunarmanna hjá ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns. Hann hefst aftur klukkan níu en samningsaðilar hafa setið í Karphúsinu í þrettán klukkustundir í dag. Innlent 12.3.2024 23:27
Segja SA reyna að kúga láglaunafólk í nafni stöðugleika Samninganefnd VR fordæmir ákvörðun Samtaka atvinnulífsins um að hefja atkvæðagreiðslu um verkbann gagnvart skrifstofufólki innan VR, sem sé kúgun gagnvart öllu skrifstofufólki í röðum félagsins. Innlent 12.3.2024 18:17