
Bylgjan

Bylgjan órafmögnuð snýr aftur í kvöld
Í kvöld fer aftur af stað tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Næstu sjö fimmtudagskvöld verða tónleikar með nýjum tónlistarmönnum á dagskrá.

FM957 sigraði í leiknum Leikið um landið
Eftir skemmtilega og fjöruga keppni lauk leiknum Leikið um landið á fimmtudag en þar skoraði starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Spennan í hámarki fyrir lokadaginn
Spennan er í hámarki fyrir lokadag leiksins Leikið um landið en kvöld ráðast úrslitin. Þegar keppnin hélt áfram í gærmorgun leiddi lið FM957 keppnina en bæði Bylgjan og X977 voru skammt undan og því ljóst að staðan gæti breyst í lok dags.

Kaldur sjór, drykkjukeppni og húsverkin á öðrum keppnisdegi
Lið FM957 leiðir áfram keppnina í leiknum Leikið um landið en annar keppnisdagurinn var í gær þriðjudag. Í leiknum skorar starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Gleðin ræður ríkjum á fyrsta degi keppninnar
Leikurinn Leikið um landið hófst í gær og stendur yfir fram á fimmtudag. Þar skorar starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Lið FM957 byrjar vel í leiknum Leikið um landið
Lið FM957 sigraði fyrstu þrautina í leiknum Leikið um landið sem fór fram fyrr í dag. Í leiknum skora Bylgjan, FM957 og X977 á hver aðra í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Æsispennandi slagur milli útvarpsstjarna berst um landið
Bylgjan, FM957 og X977 hafa skorað á hver aðra í þrautabraut Leikið um landið. Þrjú vel mönnuð lið lögðu af stað í dag í fjögurra daga hringferð þar sem stórskemmtilegar áskoranir bíða þeirra víða um land og við ætlum ekki að missa af neinu.

Mögnuð stemning á tónleikum Bylgjunnar á Menningarnótt
Menningarnæturtónleikar Bylgjunnar fóru fram í Hljómskálagarðinum í kvöld. Tónleikarnir vvoru í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi og Vísi en horfa má á klippur af tónleikunum hér fyrir neðan.

Tónlistarveisla Bylgjunnar á Menningarnótt
Árleg tónlistarveisla Bylgjunnar fer fram í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt, laugardaginn 19. ágúst.

Allt sem þú þarft að vita um dagskrána á Menningarnótt
Menningarnótt Reykjavíkurborgar verður haldin hátíðleg næstkomandi laugardag, þann 19. ágúst. Miðborgin breytist þá í iðandi vettvang menningar og lista og dagskráin er stútfull af viðburðum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Bylgjulestin verður á Húsavík næsta laugardag
Lokaáfangastaður Bylgjulestarinnar þetta sumarið er Húsavík en þær ætlar Bylgjubíllinn að koma sér vel fyrir á hafnarsvæðinu næsta laugardag, 29. júlí.

Fjör með Bylgjulestinni í Hljómskálagarðinum
Það var mikið um dýrðir í Hljómskálagarðinum í Reykjavík síðustu helgi þar sem hin árlega Götubitahátíð fór fram.

Bylgjulest og götubiti í Hljómskálagarðinum
Bylgjulestin verður í Hljómskálagarðinum í Reykjavík næsta laugardag en sömu helgi fer fram þar hin árlega Götubitahátíð.

Fjör með Bylgjulestinni í Hafnarfirði síðasta laugardag
Bylgjulestin mætti í Hafnarfjörð síðasta laugardag. Góð stemning var í bænum enda mikið um að vera auk þess sem veðrið lék við bæjarbúa


Sól og fjör með Bylgjulestinni á Selfossi
Frábært sumarveður og sólarstemning var á Selfossi síðasta laugardag þegar Bylgjulestin mætti í bæinn.

Bein útsending: Bylgjulestin á Kótelettunni á Selfossi
Bylgjulestinni verður ekið á Selfoss í dag þar sem bæjarhátíðin Kótelettan stendur yfir. Veðrið leikur við Sunnlendinga í dag og verður mikið um að vera.

Bylgjulestin mætir í sólina á Selfossi næsta laugardag
Það verður geggjuð stemning á Selfossi á laugardag þegar Bylgjulestin mætir í bæinn. Bæjarhátíðin Kótelettan 2023 hefst í dag, fimmtudaginn 6. júlí og stendur yfir til sunnudagsins 9. júlí.

Fjör með Bylgjulestinni á Írskum dögum
Bylgjulestin heimsótti bæjarhátíðina Írska daga á Akranesi síðasta laugardag en hátíðin fór fram þar síðustu helgi.

Gulli búinn að vinna síðustu vaktina
Útvarps -og sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Gulli Helga vann sína síðstu vakt í dag. Síðastliðin tíu ár hefur hann vaknað snemma og vakið þjóðina ásamt félögum sínum í Bítinu. Hann segist þakklátur fyrir tímann en framundan séu jafnframt spennandi verkefni.

Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi um helgina
Laugardaginn 1. júlí mun Bylgjulestin heimsækja Akranes en búast má við fjölmenni í bænum enda fer bæjarhátíðin Írskir dagar fram sömu helgi.

Það var líf og fjör í Hólminum á Dönskum dögum
Bylgjulestin mætti í Stykkishólm síðasta laugardag. Mikið var um að vera í bænum um helgina en þá fór fram bæjarhátíðin Danskir dagar auk þess sem Landsmót 50+ var haldið á sama tíma.

Bylgjulestin mætir á Danska daga
Laugardaginn 24. júní mun Bylgjulestin heimsækja Stykkishólm en búast má við óvenju miklu fjöri í bænum um helgina þegar bæjarhátíðin Danskir dagar fer fram auk þess sem Landsmót 50+ er haldið í bænum á sama tíma.

Frábær stemning í brakandi blíðu
Bylgjulestin var á Akureyri síðasta laugardag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Veðrið lék við bæjarbúa og aðra gesti svo ekki er skrýtið að stemningin hafi verið einstaklega góð í bænum þennan daginn.

Bylgjulestin verður á Akureyri 17. júní
Bylgjulestin heimsækir höfuðstað Norðurlands á sjálfan þjóðhátíðardaginn, laugardaginn 17. júní.

Mikið fjör í Hveragerði síðustu helgi
Það var frábær stemning í Hveragerði síðasta laugardag þegar Bylgjulestin mætti í bæinn.

Ljóstrar upp um ástæður andremmu og lausnir við henni
Tannlæknir segir nokkrar ástæður geta verið fyrir andremmu en aðalorsökin séu bakteríur. Fólk veigri sér oft við að benda öðrum á andremmu en það eigi ekki að vera feimnismál. Hægt sé að losna við hana með góðri munnhirðu og þar sé tannþráðurinn lykilatriði.

Bylgjulestin mætir í blómabæinn
Bylgjulestin verður í Hveragerði á laugardag þar sem Hengill Ultra utanvegahlaupið fer fram.

Kveður Bítið en reiknar með að vakna áfram snemma
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, mun í lok mánaðar segja skilið við Bítið á Bylgjunni. Þá verða liðin tíu ár síðan hann hóf að vekja þjóðina alla virka morgna, þá ásamt Heimi Karlssyni og Huldu Bjarnadóttur.

Grindvíkingar fögnuðu Sjómannadeginum með pompi og prakt
Sjóarinn síkáti, sjómanna- og fjölskylduhátíð Grindvíkinga var haldin með pompi og prakt um helgina. Bylgjulestin kíkti við og hélt uppi fjörinu ásamt fjölbreyttri dagskrá heimamanna.