Júlíus Vífill ákærður fyrir peningaþvætti

Hæstiréttur dæmir Júlíus Vífil í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi
Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en mildað refsingu hans úr tíu mánaða fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundna.

Dómur staðfestur yfir Júlíusi Vífli fyrir peningaþvætti
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gerðist sekur um peningaþvættimeð því að geyma ávinning af skattalagabroti inn á erlendum bankareikningi í sínu nafni og ráðstafa ávinningnum síðar á nýjan bankareikning í eigu vörslusjóðs sem hann var rétthafi að.

Ekki var krafist upptöku fjár því skattalagabrot Júlíusar Vífils var fyrnt
Af þeim tíu dómum sem kveðnir hafa verið upp vegna peningaþvættis undanfarinn áratug og eru aðgengilegir á vef héraðsdómstólanna var krafist upptöku fjár í sjö málum. Ekki var krafist upptöku fjár í máli Júlíusar Vífils Ingvarssonar því frumbrot hans sem var skattalagabrot var löngu fyrnt og vildi saksóknari gæta meðalhófs en málið á sér engin fordæmi hér á landi.

Ágóði af peningaþvætti yfirleitt gerður upptækur
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Júlíus Vífill áfrýjar til Landsréttar
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem í morgun var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar.

Júlíus Vífill í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti.

Saksóknari telur að Júlíus Vífill hafi gerst sekur um skipulagt peningaþvætti
Verjandi Júlíusar Vífils telur að fjölmiðlaumfjöllun um mál Júlíusar hafi verið gagnrýnislaust byggð á rakalausum ósannindum.

Júlíus Vífill telur að skrif og stjórnmálaþátttaka rannsakandans hafi litað rannsókn á meintu peningaþvætti
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, krefst þess að hann verði sýknaður af ákæru um peningaþvætti. Hann telur að stjórnmálaskoðanir og skrif stjórnanda lögreglurannsóknarinnar á máli hans kunni að hafa litað rannsóknina og útgáfu ákærunnar.

Júlíus Vífill neitaði sök og segist sigurviss
Ákæra gegn honum fyrir peningaþvætti þingfest í héraði.

Júlíus sakaður um peningaþvætti upp á 49 til 57 milljónir króna
Sagður hafa viðurkennt að um væri að ræða tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts en gaf ekki upp hvenær þeirra var aflað.

Júlíus Vífill ákærður fyrir peningaþvætti
Segist þó hreinsaður af ásökunum um að hafa skotið undan eignum foreldra sinna.

Júlíus Vífill til rannsóknar vegna meintra skattsvika og peningaþvættis
Hann er sagður hafa átt peninga á erlendum bakareikningum og skotið þeim undan skatti á árunum 2010 til 2015.

Óheimilt að láta rannsóknarfyrirtæki leita að týndum sjóðum
Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis skiptastjóra dánarbús Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur sé heimilt að veita erlendu rannsóknarfyrirtæki umboð til þess að leita að týndum sjóðum sem kunna að vera í eigu dánarbúsins.

Ágreiningur í erfðamálum fjölskyldu Júlíusar Vífils fer fyrir dóm
Skiptastjóri hefur skotið ágreiningi um hvort að breskt rannsóknarfyrirtæki fái umboð til þess að leita að týndum sjóðum Ingvars Helgasonar og fjölskyldu til héraðsdóms.

Júlíus Vífill segir mál sín fjölskylduharmleik
Gagnrýnir Kastljós enn og aftur harðlega en svarar engum spurningum.

Umfjöllun Kastljóss beinlínis ósönn að sögn barna Júlíusar Vífils
"Það er rangt að hann hafi sölsað undir sig fjármuni annarra.“

Menn geta ekki stofnað einkalífeyrissjóði eins og þeim sýnist
Ríkisskattstjóri segir alla reikninga Íslendinga erlendis vera skattskylda.

Segir systkinin hafa tekið tugi milljóna af bankareikningi móður sinnar
Júlíus Vífill Ingvarsson segir ótrúlega ófyrirleitið að halda því fram að hann hafi með einhverjum hætti gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu annarra.

Guðmundur Ágúst segir ásakanir í Kastljós-þætti kvöldsins þvælu
Bróðir Júlíusar Vífils Ingvarssonar segir ásakanir um að hafa falið margar milljónir sem tilheyrðu föður hans erlendis bull.

Júlíus Vífill sagður hafa viðurkennt að Panama-peningarnar væru eftirlaunasjóður Ingvars Helgasonar
Borgarfulltrúinn fyrrverandi segir að um ósannindi sé að ræða og illmælgi.