Erlend sakamál
1 2 3 4 5 6 … 26 ›
Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Nærri því hálfri öld eftir að Jeanette Ralston fannst látin í bíl sínum í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur 69 ára maður verið handtekinn og ákærður fyrir að myrða hana. Það var eftir fingrafar sem tekið var árið 1977, af sígarettukartoni, var greint á nýjan leik. Erlent 14.5.2025 11:11
Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, bar í gær vitni í réttarhöldunum gegn tónlistarmanninum umdeilda. Þar sagði hún meðal annars frá ofbeldi sem hann beitti hana, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, og að hann hafi þvingað hana til að taka þátt í dagalöngum kynlífspartíum. Erlent 14.5.2025 10:05
Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Dómari í Los Angeles hefur stytt dóm yfir Menendez bræðrunum sem nú afplána lífstíðardóm fyrir að hafa myrt foreldra sína árið 1989 í Beverly Hills. Vegna þess að dómurinn var styttur eiga þeir nú möguleika á því að sækja um reynslulausn sem þeir gátu ekki gert á meðan þeir afplánuðu lífstíðardóm. Erlent 14.5.2025 07:56
Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Háttsettur sænskur diplómati hefur verið handtekinn grunaður um njósnir. Samkvæmt heimildum sænska ríkisútvarpsins hefur hann starfað hjá mörgum sendiráðum víða um heim. Grunur er um að málið tengist nýlegri afsögn varnarmálaráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Erlent 13.5.2025 23:37
Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Tveir borgarstjóraframbjóðendur ríkisstjórnarflokks Mexíkó hafa verið myrtir í Veracruz-ríki. Ofbeldi að þessu tagi er gífurlega algengt í Mexíkó og sérstaklega í tengslum við kosningar en sveitarstjórnarkosningar fara fram í ríkinu í næsta mánuði. Erlent 13.5.2025 15:50
Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Kim Kardashian, raunveruleikastjarnan og athafnakonan fræga, mætti í dag í dómsal í París þar sem hún mætir mönnunum sem rændu hana vopnaðir byssum árið 2016. Kardashian hefur sagt frá því að hún hafi verið sannfærð um að hún myndi deyja og segir ránið hafa haft gífurlega mikil og slæm áhrif á hana. Erlent 13.5.2025 12:10
Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Franski leikarinn Gerard Depardieu var í morgun fundinn sekur um að hafa beitt tvær konur kynferðisofbeldi árið 2021. Dómur féll í París í morgun en konurnar tvær voru samstarfskonur leikarans við tökur á myndinni Les Volets Verts árið 2021. Leikarinn var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi. Erlent 13.5.2025 08:57
Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Loks hefur tekist að bera kennsl á lík manns sem fannst í vegarkanti í Oregon fyrir tæpum 45 árum. Talið er að maðurinn hafi verið fórnarlamb alræmds raðmorðingja frá Kaliforníu, sem gekk undir nafninu „skorkorts morðinginn“. Erlent 10.5.2025 13:54
Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ „Þeir eiga eftir að drepa mig,“ segir Stefán Gíslason við föður sinn þar sem hann situr handjárnaður í yfirheyrsluherbergi lögreglunnar í Pensacola í Flórída, grunaður um að hafa skotið vin sin til bana. Stefán var árið 2023 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpinn. Innlent 10.5.2025 08:02
Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Réttarhöld yfir tónlistar- og athafnamanninum Sean Combs, betur þekktum sem Puff Daddy, hefjast í dag. Lífið 5.5.2025 15:21
Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Breskir sérsveitarmenn og lögregluþjónar eru sagðir hafa í naumindum komið í veg fyrir hryðjuverkaárás á breskri grundu. Farið var í nokkur áhlaup um Bretland í um helgina, vegna tveggja mismunandi rannsókna, og voru átta menn handteknir. Þar af eru sjö frá Íran. Erlent 5.5.2025 10:47
Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Faðir manns sem auðgast hefur mjög á sölu rafmynta var frelsaður í lögreglu aðgerð í París í gær. Hann hafði verið frelsissviptur og haldið í gíslingu af glæpasamtökum í tvo sólarhringa gegn gjaldi. Erlent 4.5.2025 11:02
Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Hjón hafa verið handtekin í Oviedo á Spáni fyrir að hafa haldið þremur börnum sínum læstum á heimili þeirra frá árinu 2021. Lögregla segir aðstæður á heimilinu heilsuspillandi og að börnunum hafi verið haldið frá skóla og látin sofa í rimlarúmum. Fjölmiðlar á Spáni hafa gefið húsinu nafnbótina „hryllingshúsið.“ Erlent 1.5.2025 11:55
Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Drengurinn sem handtekinn var vegna gruns um að hann hafi myrt þrjá í Uppsölum í Svíþjóð í gær er sextán ára gamall. Allir þrír eru taldir hafa verið skotmörk drengsins en lögreglan skoðar nú hvort fleiri komi að málinu. Erlent 30.4.2025 11:59
Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Verjendur ástralskrar konu sem er sökuð um að hafa drepið tengdafjölskyldu sína með eitruðum sveppum segja að hún muni halda því fram að það hafi verið „hörmulegt óhapp“. Réttarhöld yfir konunni hófust í dag en hún er ákærð fyrir þrjú morð og tilraun til manndráps. Erlent 30.4.2025 11:24
Árásarmannsins enn leitað Lögreglan í Uppsölum í Svíþjóð leitar enn árásarmanns sem er grunaður um skotárás við hárgreiðslustofu í miðbæ borgarinnar í dag. Að minnsta kosti þrír létu lífið. Erlent 29.4.2025 23:05
Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Saksóknarar í Ástralíu hafa fellt niður hluta af ákæru á hendur fimmtugri konu sem er sökuð um að hafa drepið þrennt með því að gefa þeim eitraða sveppi. Hún á enn yfir höfði sér ákæru um þrjú mannsdráp og eina tilraun til manndráps. Erlent 29.4.2025 14:36
Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Stúlka á leikskólaaldri og móðir hennar eru alvarlega særðar eftir að sprengingu á heimili þeirra í Tumba, úthverfi Stokkhólms í gærkvöldi. Enginn hefur verið handtekinn vegna sprengingarinnar en ekki er talið að mæðgurnar hafi verið skotmark hennar. Erlent 28.4.2025 11:06
Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Árið 2016 var brotist á hótelherbergi raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, hún bundin á höndum og fótum og skartgripum hennar rænt. Réttarhald yfir mönnunum hefst um miðjan maí og mun Kardashian bera vitni. Þjófunum hefur verið gefið viðurnefnið „afa-ræningjarnir“ en þeir vissu ekki að um stórstjörnu var að ræða fyrr en daginn eftir ránið. Erlent 27.4.2025 22:57
Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Nemandinn sem grunaður er um að hafa stungið skólasystur sína til bana í Nantes í Frakklandi í dag er sagður hafa lýst yfir dýrkun á hugmyndum Adolfs Hitler. Hann sendi samnemendum sínum tölvupóst skömmu fyrir árásina þar sem hann segir hnattvæðingu spilla mannkyninu. Erlent 24.4.2025 21:48
Diddy ekki veittur aukafrestur Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hafnaði í dag beiðni rapparans Sean „Diddy“ Combs um að fresta réttarhöldunum yfir honum um tvo mánuði. Þannig eru réttarhöldin áfram fyrirhuguð þann 5. maí næstkomandi. Erlent 18.4.2025 19:25
Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Ollanta Humala, fyrrverandi forseti Perú, og Nadine Heredia, eiginkona hans, voru bæði dæmd í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti í gær. Humala er annar fyrrverandi forseti Perú sem hlýtur þungan fangelsisdóm á aðeins nokkrum mánuðum. Erlent 16.4.2025 09:02
Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Karlmaður á fertugsaldri sem er í haldi lögreglunnar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum sagðist hafa ætlað að berja ríkisstjórann til bana með hamri ef hann næði til hans. Töluverðar skemmdir urðu á ríkisstjórasetrinu þegar maðurinn kastaði eldsprengju inn um glugga. Erlent 15.4.2025 11:20
Menendez bræðurnir nær frelsinu Dómari í Los Angeles í Bandaríkjunum samþykkti í gær að halda í næstu viku réttarhöld um það hvort breyta eigi dómi Menendez bræðranna. Lyle og Erik Menendez gætu því mögulega gengið lausir á næstunni. Erlent 12.4.2025 13:40
Mafían, CIA eða Fidel Castro? Ný skjöl um morðið kynda undir samsæriskenningar Morðið á John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna, árið 1963 heldur áfram að hræra upp í fólki, hneyksla og æsa til umræðu – meira en hálfri öld síðar. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið kafa prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann dýpra ofan í þetta hrollvekjandi sögulega dráp – var það kannski samsæri? Þetta er annar þáttur í þriggja þátta röð Skuggavaldsins um svokallaða Kennedy-bölvun. Lífið 3.4.2025 15:33
Grunaður um að verða mæðgum að bana Dánarorsök mæðgna sem fundust látnar í bænum Lindesnes á suðurströnd Noregs voru skotsár. Lögreglan í Noregi greindi frá þessu í dag. Erlent 3.4.2025 11:51
„Kokkurinn“ í Bandidos látinn Michael Rosenvold, forseti mótorhjólagengisins Bandidos í Evrópu, er látinn 57 ára að aldri. Rosenvold var danskur, og gekk undir nafninu „kokkurinn“. Erlent 3.4.2025 09:03
Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Pam Bondi, ríkissaksóknari Bandaríkjanna, segir að dómsmálaráðuneytið vestanhafs muni fara fram á að Lugi Mangione, sem er grunaður um að verða forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna að bana, verði dæmdur til dauða verði hann sakfelldur fyrir manndrápið. Innlent 1.4.2025 16:25
Einn sagður hafa drepið hina tvo Lögreglan í Noregi telur nú að einn þeirra þriggja sem fundust látnir í suðurhluta Noregs í morgun hafi banað hinum tveimur. Enn er til rannsóknar hvernig hinn grunaði dó og hvort hann hafi mögulega einnig verið myrtur. Erlent 31.3.2025 13:46
Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Manndrápum fækkaði mjög í Svíþjóð í fyrra og hefur morðtíðni þar í landi ekki verið lægri í áratug. Í heildina var 92 banað í Svíþjóð í fyrra en árið 2023 var 121 myrtur. Heilt yfir hefur ofbeldisglæpum fækkað töluvert milli ára. Erlent 31.3.2025 11:51