Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 16:54 Lindsay Clancy og lögmaður hennar Kevin Reddington í dómsal fyrr í mánuðinum. AP/Greg Derr, The Patriot Ledger Saksóknarar í Plymouth-sýslu í Bandaríkjunum hafa ekki ákveðið enn hvort þeir ætli að reyna að rétta aftur yfir. Clancy mætti í dag aftur í dómsal í fyrsta sinn síðan dómari sleit réttarhöldunum gegn henni án niðurstöðu þar sem kviðdómendur komust ekki að einróma niðurstöðu um það hvort hún væri sakhæf fyrir að myrða þrjú börn sín.
Lítið nýtt kom fram við þinghaldið í dag en báðar fylkingar lögðu fram ýmsar kröfur, sem dómarinn ætlar að svara þegar þau mæta næst í dómsal þann 2. nóvember. Á meðal þeirra er krafa verjanda Clancy um að dómarinn ákveði upp á sitt eindæmi að Clancy sé ekki sakhæf. Undir lok þinghaldsins velti dómarinn vöngum yfir því hvenær ný réttarhöld gætu hafist en bæði verjandi Clancy og saksóknarar sögðu of snemmt að spá í slíkt. Fyrst þyrfti hann að úrskurða um kröfur þeirra. Áhugasamir geta horft á þinghaldið hér. Eftir þinghaldið í dag sagði Tim Cruz, saksóknari, við héraðsmiðilinn WBZ-TV að ekki væri búið að taka lokaákvörðun um það hvort rétta ætti aftur yfir Clancy. Hann gaf þó til kynna að svo stæði til og sagði að gengið væru út frá því að ný réttarhöld myndu fara fram en nauðsynlegt væri að bíða eftir svörum dómarans við áðurnefndum kröfum. Leitaði sér ítrekað aðstoðar fyrir morðin Eins og frægt er var Clancy ákærð fyrir að myrða þrjú ung börn sín með því að kyrkja þau með æfingarteygjum í janúar 2023. Hún reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð en lamaðist við það. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Hún hafði ítrekað leitað sér aðstoðar og skömmu fyrir morðin fór hún sjálfviljug á geðdeild. Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin. Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Nokkrir kostir í stöðunni Ný réttarhöld gegn henni gætu reynst erfið vegna þeirrar athygli sem málið og kviðdómendur hafa fengið. Erfitt gæti reynst að finna kviðdómendur sem hafa ekki þegar tekið afstöðu um það hvort þeim finnist hún sakhæf eða ekki. Nokkrir kostir eru í stöðunni, eftir að réttarhöldunum lauk án niðurstöðu. Saksóknarar gætu ákveðið að rétta aftur yfir Clancy og gera aðra tilraun til að reyna að fá hana sakfellda. Þeir gætu reynt að gera samkomulag við hana og lögmann hennar eða þeir gætu jafnvel ákveðið að fella ákærurnar gegn henni niður.
Bandaríkin Mál Lindsay Clancy Erlend sakamál Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira