Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2026 10:35 Carles Puigdemont var forseti katalónsku héraðsstjórnarinnar þegar hún hélt ólöglega atkvæðagreiðslu og reyndi að lýsa yfir sjálfstæði árið 2017. Hann flúði til Belgíu á meðan félagar hans voru margir sóttir til saka. Vísir/EPA Hæstiréttur Spánar aflétti í gær handtökuskipun á hendur Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu. Hann gæti því snúið aftur úr tæplega níu ára langri sjálfskipaðri útlegð frá því að hann stóð fyrir ólöglegri atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu.
Dómari dró handtökuskipunina til baka tímabundið á meðan hann tekur afstöðu til þess hvort að Puigdemont eigi að hljóta sakaruppgjöf á grundvelli fordæmis sem var sett í máli annars katalónsks ráðherra árið 2024. Puigdemont flúði til Belgíu eftir atkvæðagreiðsluna sem héraðsstjórn Katalóníu, sem hann var í forsæti fyrir, hélt árið 2017 um að skilja sjálfstjórnarhéraðið frá Spáni í trássi við vilja landsstjórnarinnar og niðurstöðu stjórnlagadómstóls Spánar. Hann komst hjá því að vera framseldur til Spánar í krafti stöðu sinnar sem Evrópuþingmaður. Fjöldi annarra katalónskra stjórnmálamanna sem stóðu að atkvæðagreiðslunni hlutu fangelsisdóma. Spænska þingið samþykkti naumlega að veita þeim sakaruppgjöf árið 2024. Það gerði þingið að tillögu minnihlutastjórnar Pedro Sánchez forsætisráðherra sem þurfti að reiða sig á stuðning Junts, stjórnmálaflokks Puigdemont, til þess að verja stjórn sína falli. Greiddu atkvæði gegn stóru máli ríkisstjórnarinnar Puigdemont lýsir ákvörðun spænska dómarans nú sem ósigri spænska ríkisins. Hún væri þó ekki lausn á ágreiningi spænsku landsstjórnarinnar og katalónsku héraðsstjórnarinnar. Sánchez forsætisráðherra boðaði til skyndikosninga í kjölfar þess að þingmenn Junts greiddu atkvæði gegn húsnæðisfrumvarpi ríkisstjórnarinnar ásamt stjórnarandstöðunni í síðustu viku. Mikil mótmæli hafa geisað á Spáni vegna húsnæðiskreppu þar. Þingkosningarnar fara fram 29. nóvember og segir evrópska blaðið Politico að endurkoma Puigdemont til Spánar gæti orðið að stóru kosningamáli.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Spánn Erlend sakamál Tengdar fréttir Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, boðaði skyndilega til þingkosninga í sjónvarpsútsendingu í morgun. Húsnæðiskreppa í landinu hefur valdið ríkisstjórninni vandræðum. 5. október 2026 07:28 Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona. 3. október 2026 15:52 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, boðaði skyndilega til þingkosninga í sjónvarpsútsendingu í morgun. Húsnæðiskreppa í landinu hefur valdið ríkisstjórninni vandræðum. 5. október 2026 07:28
Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona. 3. október 2026 15:52