Fasteignamarkaður
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 28 ›
Áhrif hækkandi matvælaverðs eiga eftir að „koma inn af fullum þunga“ Verðbólguhorfurnar eru dökkar fyrir næstu mánuði og útlit er fyrir að áhrif hærra matvælaverðs, sem hefur hækkað um 5,2 prósent síðasta árið, muni þá koma inn af fullum þunga. Þær miklu verðhækkanir sem hafa orðið á mörgum hrávörum á heimsvísu að undanförnu, meðal annars á sólblómaolíu, hveiti og sojabaunum, eru vart komin inn í matvælaverðið hér á landi. Innherji 3.5.2022 13:07
Tekst að kæla heitasta markað landsins? Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,1% í mars sem er næstum því fjórföld hækkun m.v. meðalmánuðinn undanfarin 7 ár. Skoðun 2.5.2022 07:31
Söguleg hækkun á aðföngum sé forsendubrestur sem gæti hægt á uppbyggingu Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í mánuðinum og verð á stáli hefur fjórfaldast á skömmum tíma. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að sögulegar hækkanir á aðföngum séu í mörgum tilvikum forsendubrestur. Ríki og sveitarfélög verði að grípa inn í til að ófremdarástand á húsnæðismarkaði versni ekki enn meira. Viðskipti innlent 27.4.2022 14:22
Verðhækkun á innfluttu byggingarefni brýst fram með látum Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í apríl en ekki hefur sést viðlíka hækkun á verði innflutts byggingarefnis frá því að Hagstofan byrjaði að birta sundurliðun byggingarvísitölunnar í byrjun árs 2010. Innherji 27.4.2022 06:00
Arion: Hækkanir íbúðaverðs gætu reynst þrálátari en árið 2017 Ný verðbólguspá Arion banka gerir ráð fyrir því að aprílmæling Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sýni 7,1 prósenta verðbólgu samanborið við 6,7 prósent í mars. Samkvæmt spánni verður verðbólga yfir 7 prósentum í sumar. Innherji 22.4.2022 09:20
Íbúðaverð stigmagnast þvert á væntingar Íbúðaverð hækkaði um 3,1 prósent á milli febrúar og mars. Verðhækkanir milli mánaða hafa aukist á síðustu mánuðum, þvert á væntingar. Viðskipti innlent 20.4.2022 10:29
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 869,9 stig í mars og hækkar um 3,1 prósent milli mánaða. Þetta er mesta hækkunin á einum mánuði frá því í mars 2021, þegar vísitalan hækkaði um 3,3 prósent milli mánaða. Viðskipti innlent 19.4.2022 17:41
Húsnæðisverð haldi áfram að hækka Gert er ráð fyrir því að húsnæðisverð muni halda áfram að hækka samkvæmt nýútkominni fjárhagsáætlun fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Frá upphafi árs 2020 hefur íbúðaverð á landsvísu hækkað um 29%. Viðskipti innlent 14.4.2022 22:04
Brimgarðar bæta við sig í Reitum og fara með tæplega 5 prósenta hlut Fjárfestingafélagið Brimgarðar, sem er á meðal stærstu hluthafa í öllum skráðu fasteignafélögunum, bætti enn við eignarhluti sína í liðnum mánuði og fer núna með tæplega fimm prósenta hlut í Reitum. Hlutabréfaverð Reita, stærsta fasteignafélags landsins, hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og frá áramótum hefur það hækkað um rúmlega 23 prósent. Innherji 11.4.2022 09:30
Mikil spenna á markaði þrátt fyrir að sveitarfélög eigi þúsundir lóða Þótt sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafi samþykkt þúsundir lóða til íbúðabygginga er skortur á húsnæði og mikil spenna á markaðnum. Mögulega þurfi að setja kvaðir á byggingatíma við úthlutun lóða. Innlent 8.4.2022 21:00
Íbúðaskipti í Vesturbænum: „Verðhugmynd allt að 120 milljónir“ Á Fasteignavef Vísis er nú til sölu fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi í Lynghaga. Athygli vekur að ekkert verð er skráð á auglýsinguna, eignin er eingöngu til sölu í skiptum fyrir stærri íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur eða næsta nágrenni. Lífið 7.4.2022 16:30
Óverðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna stóraukast, ekki verið meiri frá 2019 Heimilin eru á ný farin að sækjast í auknum mæli eftir því að taka óverðtryggð íbúðalán hjá lífeyrissjóðunum samhliða því að þau eru að greiða upp slík lán á breytilegum kjörum hjá bönkunum eftir brattar vaxtahækkanir Seðlabankans á undanförnum mánuðum. Lífeyrissjóðirnir bjóða þannig í dag í flestum tilfellum betri kjör á breytilegum óverðtryggðum íbúðalánum en bankarnir. Innherji 6.4.2022 11:47
Vonbrigði ef seðlabankastjóri vill „losna við lífeyrissjóði“ af lánamarkaði Þótt það kunni að vera kostir og gallar við þátttöku lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði þá eru það „ákveðin vonbrigði“ að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri taki undir þann málflutning forsvarsmanna bankanna sem getur leitt til þess að þátttakendum á samkeppnismarkaði fækki verulega. Innherji 5.4.2022 17:43
Stefna á tvö þúsund nýjar íbúðir á ári í Reykjavík „Því stefnir í að allt að 2.000 íbúðir verði byggðar árlega á næstu árum í Reykjavík einni,“ segir í nýrri tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Borgin hyggist hraða uppbyggingu og muni úthluta lóðum fyrir um þúsund íbúðir á ári. Þá hyggist einkaaðilar byggja annað eins árlega. Innlent 30.3.2022 18:06
Seðlabankastjóri óttast mögulega endurkomu verðtryggingar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur áhyggjur af því að hækkandi vextir og nýjar reglur um hámark greiðslubyrðar geti leitt til þess að heimilin færi sig aftur yfir í verðtryggð lán og að lífeyrissjóðir verði á ný atkvæðamiklir á lánamarkaði. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Innherji 30.3.2022 13:01
Greiddi 620 milljónir fyrir íbúðina Félagið Dreisam ehf., sem er í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar fjárfestis, greiddi 620 milljónir króna fyrir 353,7 fermetra þakíbúð við Austurhöfn nærri Hörpu. Viðskipti innlent 29.3.2022 19:11
Sögðu Alþingi að huga að fyrstu kaupendum frekar en íbúðareigendum Stjórnendur Seðlabanka Íslands hafa áhyggjur af því að skortur á fasteignum og miklar hækkanir fasteignaverðs geri það að verkum að ómögulegt verði fyrir ungt fólk að komast inn á markaðinn. Að þeirra mati eiga aðgerðir stjórnvalda frekar að beinast að fyrstu kaupendum heldur en þeim sem hafa nú þegar keypt sér fasteign. Innherji 29.3.2022 15:01
Festi kaup á einni dýrustu íbúð sem selst hefur á Íslandi Félagið Dreisam ehf., sem er í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar fjárfestis, hefur keypt 353,7 fermetra þakíbúð við Austurhöfn nærri Hörpu. Um er að ræða stærstu lúxusíbúðina við Austurhöfn og fullyrt að þetta sé dýrasta íbúð sem seld hefur verið á Íslandi. Gengið var frá kaupunum fyrr í þessum mánuði. Viðskipti innlent 28.3.2022 14:17
Fasteignamartröð sem endaði farsællega Hjón í fasteignaleit voru við það að leggja upp laupana og fara til Tenerife þegar tilboð þeirra var samþykkt eftir nítján mánaða þrautagöngu. Þau segja flestallt vinna á móti fyrstu kaupendum og ekkert útlit fyrir að staðan á fasteignamarkaði komi til með að skána á næstunni. Þegar séreignaúrræði stjórnvalda brást tóku þau yfirdrátt til að brúa bilið á lokametrunum. Viðskipti innlent 27.3.2022 10:01
Aðfangaverð flækist fyrir uppbyggingu húsnæðis, stálvirki upp um 65 prósent Miklar hækkanir á aðfangaverði munu hækka byggingarkostnað almennt, þar með talið á íbúðahúsnæði, og líklega leiða af sér tafir í uppbyggingu. Jafnframt gætu þær fælt verktaka frá þátttöku í útboðum. Þetta segir Þorvaldur H. Gissurarson, eigandi og forstjóri ÞG Verks. Innherji 25.3.2022 12:45
Seðlabankinn „full bjartsýnn“ á þróun fasteignaverðs Efasemdir eru um hvort hertar kröfur Seðlabanka Íslands um veðsetningu og greiðslubyrði lántaka muni hafa afgerandi áhrif á þróun fasteignaverðs. Viðmælendur Innherja benda á að heimilin geti hæglega breytt lánaformi úr óverðtryggðu í verðtryggt til að minnka greiðslubyrðina og þannig dregið úr tilætlaðri virkni aðgerðanna. Auk þess sé framboðsskortur á húsnæði svo alvarlegur að hertar kröfur dugi skammt. Innherji 24.3.2022 06:50
Bankarnir ekki lánað meira til fyrirtækja í þrjú ár Verulega er farið að hægja á íbúðalánavexti bankanna um þessar mundir en ný lán þeirra með veði í fasteign námu rúmlega 9,6 milljörðum króna í febrúar og hafa þau ekki aukist minna á einum mánuði frá því í ársbyrjun 2020 áður en faraldurinn hófst. Á sama hafa ný útlán bankanna til atvinnulífsins hins vegar ekki aukist meira í nærri þrjú ár. Innherji 23.3.2022 10:46
Bennifer með augastað á 6,5 milljarða króna ástarhreiðri Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez standa um þessar mundir í fasteignakaupum. Talið er að parið hafi boðið um 6,5 milljarða íslenskra króna í eignina sem inniheldur meðal annars sautján baðherbergi. Lífið 22.3.2022 11:31
Stjórnarformaður Reita segir seinagang tefja uppbyggingu á 1100 íbúðum Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður Reita fasteignafélags, telur ámælisvert að ekki sé settur meiri kraftur í afgreiðslu skipulagstillagna svo að hægt sé að bregðast við verulegri vöntun á íbúðarhúsnæði. Þetta kom fram í ávarpi Þórarins á aðalfundi Reita. Innherji 21.3.2022 14:01
Þörf fyrir skrifstofur hefur ekki minnkað eftir faraldurinn, segir forstjóri Regins Kórónuveirufaraldurinn hafði ekki marktæk áhrif á eftirspurn eftir skrifstofuhúsnæði eða að minnsta kosti ekki eftir húsnæði sem uppfyllir auknar kröfur fyrirtækja og starfsfólks um gæði. Þetta segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins. Innherji 20.3.2022 13:27
Sérbýli hækkar um 27% milli ára: Stórauka þarf uppbyggingu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um ríflega fimmtung milli ára samkvæmt upplýsingum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Meðalverð á fermetra í fjölbýli er rúmlega hundrað og tuttugu þúsund hærra nú en fyrir ári. Forsætisráðherra segir aðgerða þörf hjá ríki og sveitarfélögum. Innlent 20.3.2022 12:31
Seðlabankastjóri segir að samfellt kaupmáttarskeið sé mögulega komið á enda Það er „engin ástæða til að örvænta yfir þessari þróun,“ að sögn Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra, þegar hann er spurður út í hækkandi verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði en þær hafa rokið upp á síðustu vikum, til fimm ára mælast þær núna um 5,5 prósent, og hafa ekki verið hærri frá því eftir fjármálahrunið. Innherji 18.3.2022 06:01
Um helmingur íbúða á höfuðborgarsvæðinu seldist yfir ásettu verði í janúar Rétt tæplega 40 prósent íbúða á landinu öllu seldust yfir ásettu verði í janúarmánuði og um 44,9 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallið hefur aldrei mælst hærra. Viðskipti innlent 17.3.2022 08:52
Vilja nú fjörutíu milljónum meira fyrir hús sem var keypt í júlí Hús á Lindarbraut á Seltjarnarnesi, sem hefur verið á sölu í fimm mánuði, hefur hækkað um rúmar tuttugu milljónir króna í verði frá því það var sett á sölu. Húsið er 183,4 fermetrar og er til sölu fyrir 192 milljónir króna. Neytendur 16.3.2022 12:58
Vísitala íbúðaverðs hækkað um 22,5 prósent síðastliðið ár Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 844,0 stig í febrúar og hækkar um 2,5% á milli mánaða. Þetta er meiri hækkun en í janúar og desember þegar vísitalan hækkaði um 1,7% og 1,8% frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 15.3.2022 18:20