Ítalski boltinn

Þrjú mörk undir lok leiks björguðu Inter frá slæmum úrslitum annan leikinn í röð
Þrjú mörk undir lok leiks tryggðu Inter Milan sigur í dag gegn Cagliari en það virtist sem leikmenn liðsins séu ekki enn búnir að jafna sig á að detta út úr Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni. Lokatölur leiksins 3-1 Inter í vil.

Láta sárir Inter-menn reiði sína bitna á Sardiníustrákunum?
Eftir vonbrigðin í Meistaradeild Evrópu fer Inter til Sardiníu og mætir Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í hádeginu í dag.

Lazio tapaði á heimavelli
Lazio og Hellas Verona mættust í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum en liðin voru á svipuðum slóðum rétt fyrir aftan efstu lið þegar kom að leik kvöldsins.

Birkir kom inn af bekknum og skoraði í sigri
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason lék 22 mínútur í 3-1 sigri Brescia í ítölsku B-deildinni í dag. Nýtti hann tækifærið vel en miðjumaðurinn öflugi skoraði þriðja mark Brescia í leiknum.

Dagskráin í dag: Baráttan um Wales og Madríd
Tíu beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports og hliðarrásum í dag. Golf, enski fótboltinn, spænski fótboltinn og ítalski boltinn er á dagskránni í dag og það er stórleikur í kvöld.

Enn eitt markið hjá Elíasi
Elías Már Ómarsson skoraði enn eitt markið fyrir Excelsior í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Patrik Gunnarsson stóð vaktina í marki Viborg í jafntefli gegn HB Køge.

Dreymir um Messi í Napoli treyjunni
Kevin-Prince Boateng, leikmaður A.C. Monza, vonar að sinn fyrrum samherji hjá Barcelona, Lionel Messi, skipti til Napoli. Það gæti verið fallegt að sjá hann spila í sömu treyju og Maradona.

Fyrirliði Napoli mætti með nýtt risa Maradona húðflúr
Lorenzo Insigne, fyrirliði Napoli, heiðraði Diego Armando Maradona, með sérstökum og varanlegum hætti.

Dagskráin í dag: Domino's Körfuboltakvöld, spænskur fótbolti og körfubolti
Sjö beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports og hliðarrása í dag. Þar er hægt að finna golf, spænskan körfubolta, ítalskan og spænskan fótbolta sem og Domino's Körfuboltakvöld.

Conte reiður út í Capello: „Hugsaðu áður en þú spyrð“
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Inter, var langt frá því að vera sáttur eftir að hans menn duttu út úr Meistaradeild Evrópu og reifst meðal annars við Fabio Capello í sjónvarpsviðtali.

Paolo Rossi kvaddi okkur í gær
Árið 2020 heldur áfram að taka. Ítalska knattspyrnugoðsögnin Paolo Rossi lést í gær 64 ára að aldri.


Ekkert fær AC Milan stöðvað
Gamla stórveldið AC Milan er að gera sig gildandi aftur í ítalska boltanum.

Balotelli að endurnýja kynnin við Berlusconi
Ítalinn litríki Mario Balotelli er loksins að finna sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið Brescia síðasta sumar en samkvæmt fréttum frá Ítalíu mun hann skrifa undir við ítalska B-deildarliðið Monza innan skamms.

Fyrstur til að fara taplaus í gegnum fyrstu tíu leikina
Andrea Pirlo er á sínu fyrsta ári í þjálfun og hefur enn ekki upplifað það að tapa deildarleik.

Dagskráin í dag - Tíu beinar útsendingar
Amerískur fótbolti, evrópskur fótbolti, körfubolti og golf eru þær íþróttagreinar sem boðið verður upp á, á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Mögnuð endurkoma Juventus í nágrannaslagnum
Ítalíumeistarar Juventus lentu í kröppum dansi þegar þeir fengu nágranna sína í Torino í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

AC Milan staðfestir kaupin á Guðný - Lánuð til Napoli
Íslenska landsliðskonan Guðný Árnadóttir hefur yfirgefið Val og samið við ítalska stórveldið AC Milan.

Mörkin 750 á ferli Ronaldo | Bætir hann við listann í dag?
Cristiano Ronaldo skoraði á dögunum sitt 750. mark á ferlinum. Ótrúlegt afrek og það virðist ekkert vera hægja á kappanum þrátt fyrir að verða 36 ára á næsta ári.

Dagskráin í dag: Martin, Messi, Ronaldo og nóg af golfi
Það er nóg um að vera í dag. Við bjóðum upp á þrjá leiki í spænska fótboltanum og einn í spænska körfuboltanum. Þá eru þrír leikir í ítalsak boltanum, einn í ensku B-deildinni og nóg af golfi.

Napoli endurskírir völlinn í höfuðið á Maradona
Ítalska knattspyrnufélagið Napoli staðfesti í kvöld að það hefði endurskírt knattspyrnuvöll sinn í höfuðið á Argentínumanninum Diego Armando Maradona sem lést þann 25. nóvember.

Ronaldo þakkaði fyrrum þjálfurum, liðsfélögum og mótherjum eftir 750. markið
Cristiano Ronaldo varð í gær þriðji leikmaðurinn í 750 mörk.

Napoli lék í sérstakri Maradona-treyju og heiðraði hann með stórsigri
Napoli lék í sérstakri treyju til heiðurs Diego Maradona í leiknum gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Og leikmenn Napoli heiðruðu argentínska goðið með öruggum 4-0 sigri.

Skírði barnið ekki í höfuðið á Messi og Ronaldo en fáir trúa því
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eiga sér nýjan nafna en samt ekki ef þú spyrð föðurinn sjálfan sem spilar með þýska liðinu Bayer Leverkusen.

Dagskráin í dag - Tvíhöfði á Ítalíu
Notalegt mánudagskvöld framundan á sportstöðvum Stöðvar 2.

Napoli valtaði yfir Rómverja
Minning Diego Maradona var heiðruð á San Paolo leikvangnum í kvöld og liðsmenn Napoli tóku sig til og völtuðu yfir AS Roma í ítölsku úrvalsdeildinni.

Milan ekki í vandræðum án Zlatan | Með fimm stiga forystu á toppnum
AC Milan vann þægilegan 2-0 sigur á Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Dagskráin í dag: Fjöldinn allur af fótboltaleikjum, NFL-deildin og golf
Nóg um að verja að venju á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Við sýnum einn leik úr ensku B-deildinni, þrjá úr spænsku úrvalsdeildinni, einn úr ítölsku úrvalsdeildinni og að lokum þrjá úr NFL-deildinni.

Slakt gengi Juventus heldur áfram
Ítalíumeistarar Juventus eru langt frá því sannfærandi þessa dagana. Meistararnir gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Benevento á útivelli í dag.

Inter rúllaði yfir spútnikliðið
Inter Milan hristi af sér vonbrigði vikunnar í Meistaradeild Evrópu með sannfærandi útisigri á Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.