Ítalski boltinn
191 192 193 194 195 196 197 … 197 ›
Walter Samuel til Inter Argentínski varnarmaðurinn Walter Samuel, er genginn til liðs við ítölsku bikarmeistaranna í Inter Milan frá spænska risanum Real Madrid. Samuel er 27 ára gamall og lék afleitlega með Real á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:36
Mutu skoraði Rúmenski landsliðsmaðurinn Adrian Mutu skoraði í fyrrakvöld sitt fyrsta mark fyrir Juventus sem sigraði Cesena naumlega í æfingaleik 1-0. Mutu skoraði sigurmarkið á 88.mínútu í leik sem fer ekki í sögubækurnar að öðru leyti. Mutu kom til Juventus í janúar á frjálsri sölu eftir að hafa afplánað leikbann vegna lyfjamisnotkunar. Sport 13.10.2005 19:35
Gilardino leikur með Milan í kvöld Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Inzaghi ætlar að hjálpa Gilardino Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist ekki geta beðið eftir því að fá að spila við hlið Alberto Gilardino sem nýgenginn er í raðir félagsins. Gilardino var keyptur frá Parma fyrir 17,2 milljónir punda en hann er 23 ára. Inzaghi segist vera rétti maðurinn til að kenn honum enn meira. Sport 13.10.2005 19:35
Inter aflýsir vegna hryðjuverka Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan aflýsti í dag fyrirhugaðri æfingaferð sinni til Englands af öryggisástæðum í ljósi hryðjuverkanna í London. Liðið átti að leika við Portsmouth, Leicester, Norwich og Crystal Palace á Englandi á komandi vikum. Ákvörðun félagsins hefur valdið miklum vonbrigðum og reiði meðal félaganna fyrrnefndu. Sport 13.10.2005 19:34
Schevchenko ekki á förum Andriy Schevchenko, knattspyrnumaður Evrópu árið 2004, er ekki á förum frá A.C.Milan eins og fjölmiðlar greindu frá í gær. "Ég hef alltaf sagt Roman Abramovich að það sé ekkert hægt að ræða um félagaskipti yfir í Chelsea. A.C.Milan vill mig og ég vil Milan. Það er nóg fyrir mig," sagði Schevchenko. Sport 13.10.2005 19:33
Gilardinho til AC Milan Alberto Gilardinho er gengin í raðir AC milan fyrir um 2 milljarða króna. Hinn 23 ára gamli Gilardinho kemur frá Parma og hefur verið næst markahæsti leikmaður ítölsku seríu A deildinni undanfarin 2 ár. Sport 13.10.2005 19:32
Gilardino til A.C. Milan Markahrókurinn Alberto Gilardino er genginn til liðs við A.C. Milan frá Parma fyrir 17.2 milljónir punda. Gilardino, 23 ára, gerði 23 mörk á nýafstöðnu tímabili fyrir Parma og hélt nánast Parma í A deild eins síns liðs. Sport 13.10.2005 19:32
Jon Dahl Tomasson til Stuttgart Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni. Sport 13.10.2005 19:31
Viera verður okkur mikilvægur Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að Patrick Vieira verði algjör lykilmaður í liði sínu á næstu leiktíð og hlakkar til að sjá hann spila með liðinu. Sport 13.10.2005 19:31
Vieira á förum til Juventus Arsenal hefur staðfest að félagið hefur tekið tilboði frá ítalska stórliðinu Juventus í fyrirliða sinn Patrick Vieira. Tilboðið hljóðar upp á 13,75 milljónir punda í þennan 29 ára miðjumann. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Figo til Inter? Massimo Moratti, forseti itölsku bikarmeistaranna í Inter Milan, vill fá Portúgalann Luis Figo frá Real Madrid. Figo, sem Evrópumeistarar Liverpool höfði áhuga á allt þar til í gær, er nú að leita sér að nýju liði því krafta hans er ekki lengur óskað á Bernabeau. Sport 13.10.2005 19:30
Vieira á leiðinni til Torínó Ítalska stórliðið Juventus er ákveðið í því að klófesta miðjumanninn Patrick Vieira frá Arsenal. Viðræður milli félaganna tveggja hafa staðið yfir undanfarna daga og talað er um að þær þokist í rétta átt fyrir Juventus. Samkvæmt fréttum er Juventus búið að bjóða átta milljónir punda í leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:29
Crespo spilar með Chelsea Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo verður í herbúðum Englandsmeistara Chelsea á næstu leiktíð en hann var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð. Milan keypti Christian Vieri á dögunum en hann lék með Inter á síðasta tímabili. Sport 13.10.2005 19:28
AC Milan fær Christian Vieri AC Milan gerði í dag 2 ára samning við ítalska landsliðssóknarmanninn Christian Vieri en aðeins nokkrir dagar eru síðan hann fékk sig lausan undan samningi hjá erkifjendunum í Inter Milan. Sport 13.10.2005 19:28
Roma má ekki kaupa í eitt ár Alþjóða knattspyrnusambandið hefur bannað ítalska liðinu Roma að kaupa leikmenn í eitt ár. Romaliðið braut reglur þegar það keypti franska leikmanninn Philp Mexes í fyrra. Mexes var búinn að ganga frá samningi við franska liðið Auxerre en forráðamenn Roma settu sig í samband við leikmanninn og hvöttu hann til þess að hætta við félagaskiptin. Sport 13.10.2005 19:27
Samningi Vieris rift Ítalska knattspyrnuliðið Internazionale hefur rift samningi við framherjann Christian Vieri. Vieri átti ár eftir af samningi en það varð að samkomulagi milli leikmannsins og félagsins að leiðir myndu skilja. Sport 13.10.2005 19:27
Zola hættur Einn skemmtilegasti knattspyrnumaður undanfarinna ára, Ítalinn Gianfranco Zola, tilkynnti í morgun að hann væri hættur í boltanum. Zola verður 39 ára í næsta mánuði og lék síðast með Cagliari á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:26
Zola leggur skóna á hilluna Hinn smái en knái knattspyrnusnillingur Gianfranco Zola er hættur knattspyrnuiðkun, nokkrum dögum fyrir 39 ára afmæli sitt, en hann gerði garðinn frægan hjá Chelsea á árum áður. Sport 13.10.2005 19:26
Crespo aftur til Chelsea? Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo, sem var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð frá Chelsea, er hugsanlega á leiðinni aftur til Englandsmeistaranna að sögn forráðamanna Mílanóliðsins. Sport 13.10.2005 19:26
Parma áfram í úrvalsdeildinni Parma hélt sæti sínu í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á kostnað Bologna. Parma vann seinni einvígisleikinn við Bologna, 2-0, í gær. Í leikslok þurfti lögreglan að beita táragasi eftir að stuðningsmenn Bologna ruddust inn á völlinn. Sport 13.10.2005 19:23
Fyrsti titill Inter í sjö ár Inter tryggði sér í gær ítalska bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu þegar liðið lagði Roma 1-0 í síðari leik liðanna og samanlagt 3-0 í báðum leikjunum. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1998 sem Inter vinnur titil en það ár sigraði Inter í Evrópukeppni félagsliða. Sport 13.10.2005 19:22
Bologna skrefi nær efstu deild Bologna sigraði Parma með einu marki gegn engu í umspili liðanna um að halda sæti sínu í ítölsku fyrstu deildinni í knattspyrnu, en þetta var fyrri leikur liðanna. Igli Tare skoraði eina mark leiksins, þjálfarar liðanna fengu báðir að líta rauða spjaldið og fá ekki að stýra liðum sínum um næstu helgi þegar það ræðst hvort liðið heldur sæti sínu í efstu deild. Sport 13.10.2005 19:22
Inter sigraði í fyrri leiknum Adriano skoraði bæði mörk Inter Milan í 2-0 útisigri á Roma í fyrri leik liðanna um Ítalska bikarinn í knattspyrnu í gær. Sport 13.10.2005 19:21
Genoa og Empoli upp í Serie A Genoa tryggði sér um helgina sæti í efstu deild í ítalska fótboltanum eftir 10 ára fjarveru þegar liðið lagði Venezia 3-2 í Serie B. Empoli sem höfnuðu í 2. sæti fylgja Genoa upp í Serie A en 4 lið berjast um þriðja lausa sætið í umspili. Þau eru Ascoli, Torino, Treviso og Perugia. Sport 13.10.2005 19:21
Totti áfram hjá Roma Francesco Totti fyrirliði Roma tók af allan vafa um framtíð sína hjá félaginu þegar hann skrifaði undir brakandi nýjan 5 ára samning. Útlit var fyrir að "herra Roma" væri á förum frá félaginu. Sport 13.10.2005 19:17
Trapattoni fékk heimþrá og fór Fyrrverandi landsliðsþjálfari Ítala, Giovanni Trapattoni fékk svo mikla heimþrá að hann er hættur sem knattspyrnustjóri portúgalska liðsins Benfica. Engu skipti þó Trappatoni leiddi liðið til sigurs í portúgölsku efstu deildinni sem er fyrsti landstitill félagsins í 11 ár. Sport 13.10.2005 19:17
Mutu spilaði aftur í dag Adrian Mutu lék aftur í dag eftir sjö mánaða keppnisbann þegar Juventus lagði Cagliari að velli 4-2. Rúmenski framherjinn var rekinn frá Chelsea í október síðastliðinn eftir að kókaín fannst í blóði hans og var hann umsvifalaus settur í leikbann. Sport 13.10.2005 19:17