Hernaður
1 2 3 4 5 6 … 62 ›
Stærsta árásin á Kharkív hingað til Rússar gerðu í nótt umfangsmestu árásir þeirra á borgina Kharkív frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst. Notast var við tugi dróna, hefðbundnar sprengjur sem varpað er úr lofti og að minnsta kosti eina eldflaug og eru að minnsta kosti þrír sagðir liggja í valnum í borginni. Tveir til viðbótar féllu í árásum á borgina Kherson í suðurhluta Úkraínu. Erlent 7.6.2025 08:01
Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins verða að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Þá verður Evrópa og Kanada að hætta að reiða sig á hermátt Bandaríkjanna og standa á eigin fótum. Erlent 5.6.2025 08:08
Með sömu óásættanlegu kröfurnar Rússneskir erindrekar lögðu í gær fram sömu umfangsmiklu kröfurnar til Úkraínumanna og þeir hafa gert áður. Þessar kröfur hafa Úkraínumenn áður sagt vera óásættanlegar þar sem þær geri ríkið berskjaldað gegn annarri innrás og að Úkraína verði í raun leppríki Rússlands. Um uppgjöf væri að ræða. Erlent 3.6.2025 07:22
Vill sameina þjóðina um hernaðaruppbyggingu Bretar ætla að fjölga kjarnorkuknúnum kafbátum sínum og gera aðrar breytingar sem ætlað er að auka getu ríkisins til að heyja nútímastríð. Keir Starmer, forsætisráðherra, segist ætla að auka fjárútlát til varnarmála í þrjú prósent af landsframleiðslu en vill ekki segja hvernær ná á þeim áfanga. Erlent 2.6.2025 10:30
Koma aftur saman eftir sögulegar árásir í Rússlandi Úkraínskir og rússneskir erindrekar munu setjast við samningaborðið í Istanbúl í dag. Er það í kjölfar umfangsmikillar árásar Úkraínumanna á nokkra flugvelli í Rússlandi, þar sem mikilvægar sprengjuflugvélar og eftirlitsvélar eru meðal annars hýstar. Erlent 2.6.2025 08:18
„Köngulóarvefur“ sem skrifað verður um í sögubókum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði Úkraínuher gera allt til að láta Rússa finna fyrir þörf til að enda stríðið. Úkraínuher gerði umfangsmiklar árásir á nokkra herflugvelli Rússa í dag. Forsetinn segist yfir sig ánægður með aðgerðina. Erlent 1.6.2025 18:36
Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Úkraínumenn hafa gert umfangsmiklar árásir með smáum sjálfsprengidrónum á að minnsta kosti tvo herflugvelli í Rússlandi og mögulega fjóra. Úkraínumenn segjast hafa grandað tugum flugvéla, eins og langdrægnum sprengjuflugvélum og eftirlitsvélum, sem eru Rússum gífurlega mikilvægar. Yfirlýsingar Úkraínumanna eru studdar af myndefni í dreifingu á samfélagsmiðlum eystra. Erlent 1.6.2025 12:14
Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu Skortur á starfsfólki hefur komið niður á viðleitni forsvarsmanna hergagnaframleiðenda Evrópu til að auka framleiðslu. Fjármagnið og pantanirnar eru í mörgum tilfellum til staðar en fleiri hendur vantar til að framleiða sprengikúlurnar, skriðdrekana og annarskonar hergögn. Erlent 29.5.2025 15:00
Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar Þjóðverjar ætla að hjálpa Úkraínumönnum að smíða langdrægar skotflaugar til þess að verjast árásum Rússa. Þetta sagði Friedrich Merz, nýr kanslari Þýskalands, þegar Volodýmýr Selenskíj Úkraínuforseti sótti hann heim í Berlín í dag. Erlent 28.5.2025 13:49
Mestu árásirnar hingað til, aftur Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt sína umfangsmestu dróna- og eldflaugaárás á Úkraínu hingað til. Notast var við 355 dróna, bæði sjálfsprengjudróna og tálbeitur, auk níu stýriflauga. Var það í kjölfar umfangsmikillar árásar á Kænugarð og önnur héruð þar sem notast var við dróna og stýriflaugar. Erlent 26.5.2025 11:32
Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Ríkisstjórn Bretlands hefur tilkynnt að viðræðum við Ísraela um fríverslunarsamning yrði hætt. Er það vegna „grimmilegra“ aðgerða Ísraela á Gasaströndinni, þar sem neyðaraðstoð eins og matvælum, vatni og lyfjum hefur ekki verið hleypt inn í ellefu vikur. Sendiherra Ísrael í Bretlandi var einnig kallaður á teppið. Erlent 20.5.2025 18:27
Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Samtök sem veita verðlaun fyrir fréttaljósmynd ársins hafa ákveðið af fjarlægja nafn ljósmyndara sem hlaut verðlaunin fyrir heimsfræga mynd af börnum að flýja napalmárás í Víetnamstríðinu. Nýleg heimildamynd hefur vakið upp spurningar um hver raunverulegur höfundur myndarinnar er. Erlent 20.5.2025 09:06
Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa Ráðamenn í Finnlandi tilkynntu í dag að þær ætli að nota níutíu milljónir evra af vöxtum frá frosnum sjóðum Rússa til að fjármagna kaup á skotfærum fyrir Úkraínumenn á þessu ári. Erlent 19.5.2025 21:34
„Frábært“ símtal en án niðurstöðu Bæði Donald Trump og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, segja rúmlega tveggja klukkustunda símtal þeirra hafa gengið vel. Trump, sem segir að tónn símtalsins og andi „frábær“ segir að Rússar og Úkraínumenn muni hefja viðræður um mögulegt vopnahlé og svo í kjölfarið frið. Mögulegt er að þær viðræður fari fram í Vatíkaninu. Erlent 19.5.2025 19:26
Níu drepnir í drónaárás á rútu Níu eru látnir og sjö slasaðir eftir rússneska drónaárás á almenningsrútu í Sumy héraði í norðausturhluta Úkraínu. Erlent 17.5.2025 08:01
Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Viðræðum úkraínskra og rússneskra erindreka í Istanbúl lauk eftir aðeins tveggja tíma fund. Rússar eru sagðir hafa lagt fram óásættanlegar kröfur. Á næstu dögum munu ríkin skiptast á stærstu fangaskiptum frá 2022. Erlent 16.5.2025 23:46
Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir umfangsmiklar árásir hafa verið gerðar á Húta í Jemen í dag. Miklar skemmdir hafi verið unndar á höfnum undir stjórn Húta og flugvellinum í Sanaa. Erlent 16.5.2025 15:52
Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Viðræðunum milli úkraínskra og rússneskra erindreka í Istanbúl í Tyrklandi er lokið, innan við tveimur tímum eftir að þær hófust. Rússar eru sagðir hafa lagt fram mjög umfangsmiklar kröfur sem Úkraínumenn gætu ekki sætt sig við. Erlent 16.5.2025 13:42
Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Yfirvöld á Indlandi eru að íhuga að draga verulega úr flæði áa sem flæða til ræktunarlands í Pakistan. Á að gera það til að refsa Pakistönum fyrir mannskæða hryðjuverkaárás í indverska hluta Kasmír í síðasta mánuði. Indverskir ráðamenn eru þar að auki sagðir ósáttir við framgöngu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og embættismanna hans í aðdraganda og eftir vopnahlé. Erlent 16.5.2025 09:37
„Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa ákveðið að senda erindreka á fund við rússneska sendinefnt í Istanbúl í Tyrklandi, þótt Vladimír Pútin, forseti Rússlands, hafi sent lágt setta erindreka. Það segist Selenskí hafa gert af virðingu við Donald Trump og Recep Tayyip Erdogan, forseta Bandaríkjanna og Tyrklands. Erlent 15.5.2025 15:43
Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Ráðherra Atlantshafsbandalagsins komu saman á óformlegum fundi í Tyrklandi. Þar ræddu þeir meðal annars væntanlega mikla aukningu í framlögum til varnarmála, sem Bandaríkjamenn hafa farið fram á, og undirbúning fyrir leiðtogafund NATO sem haldinn verður í Haag í sumar. Erlent 15.5.2025 14:06
Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í morgun vilja gera Gasaströndina að „frelsissvæði“. Það gæti gerst ef Bandaríkin myndu taka yfir stjórn svæðisins, eins og hann hefur áður talað um. Erlent 15.5.2025 11:22
Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Sendinefndir frá bæði Úkraínu og Rússlandi verða í Tyrklandi í dag en óljóst er hvort þær munu í raun hittast. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, neitaði að hitta Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í persónu og sendi þess í stað tiltölulega lágt setta erindreka. Erlent 15.5.2025 10:22
Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag kemst ekki inn í tölvupóstinn sinn og bankareikningar hans hafa verið frystir vegna refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar. Félagasamtök hafa hætt að vinna með dómstólnum og starfsmenn hans eiga yfir höfði sér handtöku ef þeir ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 15.5.2025 09:06
Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Tugir eru sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Ísraela í norðurhluta Gasastrandarinnar í gærkvöldi og í nótt. Forsvarsmenn indónesíska sjúkrahússins segja að minnsta kosti 22 börn og fimmtán konur meðal þeirra sem dóu. Erlent 14.5.2025 11:36
Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir undirbúning fyrir mögulegar viðræður við Úkraínumenn í Istanbúl á fimmtudaginn yfirstandandi. Í samtali við blaðamenn vildi Peskóv ekki gefa upp hvort Pútín ætlaði sér að mæta á fundinn og ræða við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 13.5.2025 10:46
Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Forsætisráðherra Póllands fullyrðir að útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar hafi vísvitandi kveikt í stærstu verslunarmiðstöð landsins sem brann nærri til grunna í fyrra. Sökudólgarnir eru taldir hafa átt þátt í eldsvoða í nágrannaríkinu Litháen skömmu áður. Erlent 12.5.2025 10:38
Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn Rúmlega tveir af hverjum fimm telja stríð og átök mikilvægasta vandamálið sem heimurinn stendur frammi fyrir í skoðanakönnun. Þrátt fyrir að fátækt hafi verið nefnd næstoftast fækkar þeim töluvert sem nefna efnahagsleg vandamál sem helsta meinið. Innlent 12.5.2025 09:10
Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Háttsettir embættismenn frá Indlandi og Pakistan munu hittast á fundi síðar í dag til að fínpússa skilmála um vopnahlé ríkjanna sem samið var um á laugardag. Erlent 12.5.2025 06:41
„Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst. Erlent 11.5.2025 12:07