Spænski boltinn

Ancelotti: Aldrei áður séð komið jafn illa fram við einn leikmann
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, fordæmir það hvernig farið er með brasilíska knattspyrnumanninn Vinícius Júnior og segist aldrei hafa séð annað eins.

Girona heldur enn í titilvonina
Girona vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur er liðið tók á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Atlético Madrid missteig sig gegn fallbaráttuliði Cádiz
Atlético Madrid mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti fallbaráttulið Cádiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

„Það hjálpar ekki Lamine að líkja honum við Messi“
Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, viðurkenndi að hann sæi vissulega Messi-glampa í leik táningsins Lamine Yamal en varaði engu að síður við slíkum samanburði.

Sextán ára skaut Barcelona í silfursætið
Hinn sextán ára gamli Lamine Yamal heldur áfram að slá í gegn með Barcelona í spænsku 1. deildinni í fótbolta en hann skoraði afar snoturt mark í kvöld.

Bellingham segir bannið fáránlegt: Eru að gera mig að víti til varnaðar
Enski landsliðsmiðjumaurinn Jude Bellingham er allt annað en sáttur við tveggja leikja bannið sem hann var dæmdur í vegna framkomu sinnar eftir leik Real Madrid og Valencia um síðustu helgi.

Af hverju svíkja fótboltamenn á Spáni undan skatti?
Ítalinn Carlo Ancelotti var í gær ákærður fyrir skattsvik af skattayfirvöldum á Spáni og lengist enn listi fótboltamanna og þjálfara sem sæta kæru fyrir slíkt þar í landi.

Bellingham í tveggja leikja bann
Jude Bellingham, miðjumaður Real Madrid, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk eftir leikinn gegn Valencia í spænsku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Fara fram á fimm ára fangelsi yfir Ancelotti
Saksóknarar á Spáni hafa sakað Ítalann Carlo Ancelotti, þjálfara Real Madrid, um skattsvik og krefjast tæplega fimm ára fangelsisdóms vegna meintra brota hans.

Real Madrid áfrýjar rauða spjaldinu hjá Jude Bellingham
Real Madrid ætlar að mótmæla formlega og áfrýja rauða spjaldinu sem stórstjarnan Jude Bellingham fékk eftir lokaflautið í 2-2 jafnteflisleiknum á móti Valencia í spænsku deildinni um helgina.

Barcelona mistókst að komast upp í annað sæti
Barcelona sótti Athletic Bilbao heim á San Mamés í lokaleik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í körfubolta. Leiknum lauk með markalausu jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið sem eru í harðri Meistaradeildarbaráttu.

Bellingham rekinn af velli eftir leik sem dómarinn flautaði of snemma af
Það varð uppi fótur og fit þegar leikur Valencia og Real Madríd í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, var flautaður af á laugardagskvöld.

Vinícius kom til bjargar eftir að Real lenti tveimur mörkum undir
Real Madríd, topplið La Liga – spænsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu – náði í stig gegn Valencia eftir að lenda 2-0 undir.

Bræðurnir lögðu upp fyrir hvor annan er Athletic Bilbao flaug í úrslit
Athletic Bilbao tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum spænska konungsbikarsins í knattspyrnu er liðið vann sannfærandi 3-0 sigur gegn Atlético Madrid í seinni undanúrslitaviðureign liðanna í kvöld.

Forseti La Liga vill halda Greenwood á Spáni
Javier Tebas, forseti spænsku úrvalsdeildarinnar La Liga, segist vona að Mason Greenwood spili áfram í spænska boltanum eftir að lánsdvöl hans hjá Getafe lýkur.

„Gerði mig sterkari“
Spænska knattspyrnukonan Jenni Hermoso segir það hafi verið sárt að vera sett út úr landsliðinu eftir að hún kærði fyrrum forseta spænska knattspyrnusambandsins fyrir kynferðislegt áreiti í verðlaunaafhendingunni á HM í Ástralíu .

Hleypa Netflix-fólki Vinícius Júnior ekki inn á leikvanginn
Fólkið sem eru að gera heimildarmynd um brasilíska fótboltamanninn Vinícius Júnior verður meinaður aðgangur að leik Valencia og Real Madrid um næstu helgi.

Sú besta í heimi segir að HM-titill Spánverja hafi litlu breytt
Kvennafótboltinn á Spáni hefur ekki grætt neitt á heimsmeistaratitli spænska landsliðsins. Þetta er skoðun Aitana Bonmatí sem var kosin besta knattspyrnukona heims á síðasta ári.

Stuðningsmenn Real Madrid fá fleiri góðar fréttir
Real Madrid hefur náð munnlegu samkomulagi við Alphonso Davies, leikmann Bayern München.

Sat eftir alblóðug í leik Athletic og Betis
Leikur Real Betis og Athetic Bilbao var athyglisverður fyrir margar sakir. Betis vann góðan 3-1 sigur en ótrúlegt atvik skildi Guadalupe Porras, annan af aðstoðardómurum leiksins, eftir alblóðuga.

Modrić hetja Real Madríd
Gamla brýnið Luka Modrić reyndist hetja toppliðs Real Madríd þegar hann skoraði eina markið í sigri á Sevilla í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Sigurinn þýðir að Real er nú með 8 stiga forskot á toppi deildarinnar.

Barcelona tímabundið í annað sæti eftir stórsigur
Barcelona lagði Getafe örugglega í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Lokatölur í Katalóníu 4-0 heimaliðinu í vil.

Vilja breyta leikdegi lokaumferðarinnar vegna Taylor Swift tónleika
Real Madrid hefur sent inn beiðni til spænska knattspyrnusambandsins um flýkkun á síðasta leik tímabilsins svo vallarstarfsmönnum á Santiago Bernabeu gefist meiri tími til að undirbúa Taylor Swift tónleika.

Fresta Valencia leiknum vegna stórbrunans
Leikur Valencia í spænsku deildinni fer ekki fram um helgina en liðið átti útileik á móti Granada í La Liga.

Ancelotti bauð Modric þjálfarastarf á næsta tímabili
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur boðið Luka Modric starf í þjálfarateymi félagsins ef leikmaðurinn ákveður að hætta að tímabilinu loknu.

Xavi: Vitum ekki við hverju á að búast
Napoli tekur á móti Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Napoli skipti um þjálfara á mánudag, í annað sinn á tímabilinu. Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, sagðist ekki vita hvernig ætti að skipuleggja liðið fyrir leikinn.

Mbappe semur við Real Madrid og fær 22 milljarða bónus
Franski knattspyrnumaðurinn og stórstjarnan Kylian Mbappe hefur komist að samkomulagi við Real Madrid. Hann gengur til liðs við spænska félagið þegar samningur hans við Paris Saint-Germain rennur út í sumar.

Girona mistókst að minnka forskot Real Madríd á toppnum
Athletic Bilbao vann 3-2 sigur á Girona í eina leik dagsins í spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Bilbao er farið að daðra við Meistaradeildarsæti og Girona fjarlægist topplið Real Madríd.

Bitið kom í veg fyrir að Benzema færi til Arsenal
Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Luis Suárez kveðst í raun hafa komið í veg fyrir að franski framherjinn Karim Benzema færi frá Real Madrid til Arsenal á sínum tíma.

Real tapaði stigum án Bellingham
Real Madrid mistókst að auka forskot sitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar en liðið mætti Real Vallecano á útivelli í dag.