Ástin á götunni
270 271 272 273 274 275 276 277 278 … 334 ›
ÍR fer upp Áfrýjunardómstóll KSÍ komst í dag að niðurstöðu í leiðindamáli Þórs/KA og ÍR í 1. deild kvenna og var niðurstaðan sú að ÍR leikur í Landsbankadeild kvenna að ári en ekki Þór/KA. ÍR vann sér sæti í deildinni með sigri á norðanliðnu í umspili, en ÍR tefldi fram ólöglegum leikmanni og kærði Þór/KA það til KSÍ. Það var hinsvegar knattspyrnusambandið sem gaf grænt ljós á að leikmaðurinn spilaði og því standa úrslitin og ÍR fer upp um deild. Íslenski boltinn 24.10.2006 14:00
Arnar og Bjarki semja við FH Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gerðu í dag eins árs samning við Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Bræðurnir eru 33 ára gamlir og léku sem kunnugt er með uppeldisfélagi sínu ÍA á síðustu leiktíð, þar sem þeir gegndu einnig þjálfarastarfi. Íslenski boltinn 20.10.2006 16:02
Atli og Óskar til KR Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust. Íslenski boltinn 20.10.2006 15:49
Arsenal lagði Breiðablik Arsenal vann í kvöld 4-1 sigur á Breiðablik í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Enska liðið vann fyrri leikinn 5-0 hér heima á dögunum og því eru Blikar úr leik. Það var Laufey Björnsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins í kvöld. Íslenski boltinn 19.10.2006 21:16
Pesic semur við Fram Miðjumaðurinn Igor Pesic, sem leikið hefur með Skagamönnum undanfarin tvö ár, hefur gengið frá þriggja ára samningi við nýliða Fram í Landsbankadeildinni. Pesic leikur því á ný undir stjórn Ólafs Þórðarsonar sem þjálfaði hann hjá ÍA lengst af. Íslenski boltinn 16.10.2006 15:01
Baldur Bett semur við Val Knattspyrnudeild Vals hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gert þriggja ára samning við FH-inginn Baldur Bett. Baldur hefur leikið með FH síðan árið 2000 og á að baki 99 leiki í efstu deild. Íslenski boltinn 16.10.2006 14:35
Viktor Bjarki og Margrét Lára leikmenn ársins Viktor Bjarki Arnarsson úr Víkingi og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val voru í gær valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í knattspyrnu á lokahófi HSÍ sem haldið var á Hótel Íslandi. Íslenski boltinn 15.10.2006 15:00
Stórsigur Arsenal Arsenal vann í dag sannfærandi 5-0 sigur á Breiðablik í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar á Kópavogsvelli. Enska liðið var einfaldlega of stór biti fyrir Blika, en eftir að staðan hafði verið 1-0 í hálfleik, skoraði Arsenal fjögur mörk á 15 mínútum um miðjan síðari hálfleik og gerði út um leikinn. Íslenski boltinn 12.10.2006 17:46
Formaður UMFG kallar Sigurð Jónsson aumingja Gunnlaugur Hreinsson, formaður aðalstjórnar Ungmennafélags Grindavíkur, vandar Sigurði Jónssyni fyrrum þjálfara meistaraflokks félagsins í knattspyrnu ekki kveðjurnar í pistli á heimasíðu UMFG í dag. Gunnlaugur kallar Sigurð meða annars aumingja. Íslenski boltinn 12.10.2006 17:00
Arsenal hefur forystu gegn Blikum Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureign Breiðabliks og Arsenal í 8-liða úrslitum Evrópukeppninni í knattspyrnu og hefur enska stórliðið 1-0 forystu. Það var enski landsliðsmaðurinn Kelly Smith sem skoraði mark Lundúnaliðsins eftir hálftíma leik eftir frábært einstaklingsframtak. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Íslenski boltinn 12.10.2006 16:42
Leikmenn Arsenal hitta aðdáendur í dag Leikmenn kvennaliðs Arsenal munu klukkan 16 í dag hitta áhugasama aðdáendur liðsins í Landsbankanum í Smáralindinni, en enska liðið mætir kvennaliði Breiðabliks í Evrópukeppninni á morgun. Allir eru velkomnir í Smáralindina í dag og þar verður lið Breiðabliks einnig að gefa eiginhandaráritanir. Íslenski boltinn 11.10.2006 15:17
Mjög mikilvægt fyrir félagið Íþróttafélagið ÍBV hefur gert stóran samning við Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðina hf. sem kveður á um að fyrirtækin verði styrktaraðili félagsins næstu tvö árin. Skrifað var undir samninginn á lokahófi knattspyrnudeildar ÍBV sem fram fór á föstudag en fjármununum verður skipt á milli karla- og kvennaliða félagsins í fótbolta og handbolta. Handbolti 8.10.2006 20:19
4-0 fyrir Lettum Eiður Smári misnotar góð færi og okkur er refsað um hæl. Enn ein varnarmistökin, Indriði rennur til, Visnjakovs fær frítt skot fyrir utan teig og skorar. Íslenski boltinn 7.10.2006 19:13
Martröð í Ríga 3-0 3-0 fyrir Lettum og ekki hálftími er liðinn af leiknum. Það stendur ekki steinn yfir steini í leik íslenska liðsins sem virðist vera áhorfandi af eigin útför á meðan Lettar hafa skorað þrjú mörk á 12 mínútna kafla. Íslenski boltinn 7.10.2006 18:29
Lettar komnir í 2-0 Lettar hafa skorað tvö mörk með mínútu millibili. Karlsons skoraði eftir mistök í vörinni, Eiður fékk ágætt færi en nánast í sömu andrá gerði Ívar Ingimarsson slæm mistök og Verpakovskis kom Lettum í 2-0. Aðeins eru liðnar 20 mínútur af leiknum. Íslenski boltinn 7.10.2006 18:18
Stuðningurinn metinn á 40 milljónir Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðin hf. hafa gert samstarfssamning við ÍBV íþróttafélag um stuðning við starfsemi meistaraflokka og unglingaráða karla og kvenna í knattspyrnu og handknattleik. Samningarnir gilda til ársloka 2008 og voru undirritaðir í lokahófi knattspyrnudeildar ÍBV í gærkvöld. Stuðningur fyrirtækjanna tveggja á samningstímanum er metinn á um 40 milljónir króna og skiptir í raun sköpum fyrir rekstur ÍBV íþróttafélags. Handbolti 7.10.2006 17:57
Tommy Nielsen framlengir við FH Danski varnarmaðurinn Tommy Nielsen hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara FH til tveggja ára, en þetta staðfesti Pétur Stephensen framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH við NFS nú síðdegis. Íslenski boltinn 6.10.2006 16:38
Hópurinn sem mætir Bandaríkjamönnum Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshóp sinn sem mætir sterku liði Bandaríkjanna í æfingaleik ytra á sunnudaginn og í hópnum er að finna einn nýliða, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur úr Stjörnunni. Íslenski boltinn 4.10.2006 15:26
Meiddist á æfingu hjá Norrköping Knattspyrnumaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson hjá ÍA er nú á leið heim frá Svíþjóð þar sem hann var til reynslu hjá liði Norrköping. Hafþór meiddist á æfingunni og þarf um viku til að jafna sig, en honum hefur verið boðið að koma aftur út þegar hann nær sér og mun hann þá væntanlega einnig fara til Noregs og reyna sig hjá Aalesund. Íslenski boltinn 4.10.2006 15:10
Þór/KA heldur stöðu sinni í deildinni Lið Þórs/KA frá Akureyri heldur stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna en ÍR þarf að láta sætta sig við að vera áfram í 1. deildinni þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í efstu deild í umspili á dögunum. Íslenski boltinn 4.10.2006 13:54
Ætlar ekki að láta nördana skora hjá sér Varnarmaðurinn sterki Auðunn Helgason hjá Íslandsmeisturum FH á von á því að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn KF Nörd þegar liðin eigast við á Laugardalsvellinum annað kvöld. Auðunn á ekki von á því að fá sæti í byrjunarliðinu en segir ekki koma til greina að láta nördana skora hjá sér meðan hann er innan vallar. Íslenski boltinn 3.10.2006 19:42
Lofar markaveislu annað kvöld Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag. Íslenski boltinn 3.10.2006 15:52
Samdi við Duisburg í Þýskalandi Landsliðskonan og markamaskínan Margrét Lára Viðarsdóttir skrifaði um helgina undir samning við þýska liðið Duisburg sem gildir til ársins 2008. Margrét Lára fór á kostum með liði Vals í Landsbankadeildinni í sumar og sló meðal annars markametið í deildinni með því að skora 34 mörk. Íslenski boltinn 2.10.2006 16:39
Ólafur framlengir við Blika Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi frá sér fréttatilkynningu í kvöld þar sem fram kemur að deildin hafi gert nýjan þriggja ára samning við Ólaf Kristjánsson þjálfara. Ólafur tók við liðinu af Bjarna Jóhannssyni í sumar og stýrði nýliðunum í fimmta sæti í deildinni eftir að það hafði verið í æsilegri fallbaráttu lengst af í sumar. Íslenski boltinn 1.10.2006 21:01
Keflvíkingar bikarmeistarar Keflvíkingar eru bikarmeistarar árið 2006 eftir frækinn 2-0 sigur á KR-ingum á Laugardalsvelli í úrslitaleik. Guðjón Antoníusson og Baldur Sigurðsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir að KR-ingar hafi lagað leik sinn í þeim síðari, var sigur Keflvíkinga fyllilega verðskuldaður. Þetta er fjórði bikarmeistaratitill félagsins og annar á þremur árum. Íslenski boltinn 30.9.2006 15:48
Keflvíkingar yfir í hálfleik Keflvíkingar hafa góða 2-0 forystu gegn KR þegar flautað hefur verið til leikhlés í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Keflvíkingar hafa ráðið ferðinni í fyrri hálfleik og verðskulda fyllilega forystu sína. Guðjón Antoníusson og Baldur Sigurðsson skoruðu mörk Suðurnesjamanna og komu þau bæði eftir hornspyrnur. KR-inga bíður því gríðarleg vinna í síðari hálfleiknum ef þeir ætla sér að ná einhverju út úr leiknum. Íslenski boltinn 30.9.2006 14:44
2-0 fyrir Keflavík Keflvíkingar eru komnir í 2-0 gegn KR-ingum í úrslitaleik Visa bikarsins á Laugardalsvelli og aftur kom mark eftir hornspyrnu. Að þessu sinni var það Baldur Sigurðsson sem skoraði og aðeins nokkrum augnablikum síðar fengu Keflvíkingar dauðafæri en náðu ekki að nýta sér það. Íslenski boltinn 30.9.2006 14:29
Keflvíkingar komnir yfir Keflvíkingar hafa náð 1-0 forystu gegn KR-ingum í úrslitaleik Visa bikarsins á Laugardalsvelli. Það var Guðjón Antoníusson sem skoraði markið með skalla eftir að Kenneth Gustavsson hafði framlengt boltann inn á teiginn eftir hornspyrnu. Þar stóg Guðjón einn og yfirgefinn á markteignum og skallaði fram hjá Kristjáni Finnbogasyni. Keflvíkingar hafa ráðið ferðinni fyrstu 25 mínútur leiksins og verðskulda forystu sína. Íslenski boltinn 30.9.2006 14:20
Keflvíkingar byrja betur Nú eru liðnar um 15 mínútur af úrslitaleik KR og Keflavíkur í Visa bikarnum í knattspyrnu. Staðan er enn jöfn 0-0, en það eru Keflvíkingar sem ráða ferðinni fyrstu mínúturnar og hafa verið mun líklegri til afreka en þeir röndóttu. Keflvíkingar pressa ofarlega á vellinum og reyna án afláts að sækja, á meðan Reykjavíkurliðið lætur sér nægja að sitja til baka. Íslenski boltinn 30.9.2006 13:50
Ráðstefna Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands og KSÍ Ráðstefna í tengslum við úrslitaleik VISA-bikars karla Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands heldur sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bikarúrslitaleik karla þann 30. september næstkomandi. Íslenski boltinn 29.9.2006 10:33