Ástin á götunni
222 223 224 225 226 227 228 229 230 … 334 ›
Elín Metta skoraði fjögur og Ísland í 5. sæti Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu lagði Svíþjóð 5-3 í leik um 5. sætið á Norðurlandamótinu í Finnlandi. Íslenska liðið lenti 0-3 undir snemma leiks en sneri leiknum sér í hag. Elín Metta Jensen skoraði fjögur mörk Íslands. Íslenski boltinn 9.7.2011 15:13
BÍ/Bolungarvík steinlá í Ólafsvík Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík töpuðu 4-1 gegn Víkingum í Ólafsvík í kvöld. Vestfirðingar komust yfir snemma leiks en Ólafsvíkingar komu tilbaka og tryggðu sér glæsilegan sigur. Íslenski boltinn 8.7.2011 22:08
Fjölnir mætir liðum frá Búlgaríu, Danmörku og Noregi Í dag var dregið í riðla í undankeppni Futsal Cup, Evrópukeppninnar í innanhússknattspyrnu. Fjölnir mætir BGA Futsal frá Danmörku, Vegakameratene frá Noregi auk MFC Varna frá Búlgaríu sem eru gestgjafar riðilsins. Íslenski boltinn 6.7.2011 14:28
Guðjón Þórðarson áminntur - BÍ/Bolungarvík fær sekt Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur hefur verið áminntur af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna ummæla hans að loknum leik Vestfirðinga gegn Þrótti Reykjavík þann 26. júní síðastliðinn. Knattspyrnudeild BÍ/Bolungarvíkur var sektuð um 25 þúsund krónur vegna ummælanna. Íslenski boltinn 6.7.2011 13:22
Hermann semur við Portsmouth til eins árs Hermann Hreiðarsson mun skrifa undir nýjan eins árs samning við enska knattspyrnufélagið Portsmouth. Steve Cotterill knattspyrnustjóri Portsmouth er hæstánægður með að fá Hermann aftur til félagsins og segir að Eyjamaðurinn skrifi líklegast undir innan 48 klukkustunda. Enski boltinn 6.7.2011 12:36
Ótrúlegur viðsnúningur þegar U17 landsliðið tapaði gegn Frökkum Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri beið lægri hlut gegn Frakklandi 3-2 á Norðurlandamóti stúlkna í Finnlandi í dag. Íslensku stúlkurnar voru 2-0 yfir í hálfleik og með undirtökin í leiknum. Íslenski boltinn 5.7.2011 14:18
Kolbeinn fetar í fótspor Van Basten "Ég tel Ajax vera eitt stærsta félag í Evrópu og jafnvel í heiminum. Þetta er stórt tækifæri fyrir mig að spila fyrir svona sögufrægt félag,“ segir Kolbeinn Sigþórsson. Kolbeinn skrifaði undir fjögurra ára samning við hollensku meistaranna í gær en kaupverðið er talið vera um fjórar milljónir evra. Fótbolti 4.7.2011 21:33
Kolbeinn búinn að skrifa undir - fær treyju númer níu Kolbeinn Sigþórsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við hollenska stórliðið Ajax Amsterdam. Kolbeinn sagði í samtali við Vísi fyrir stundu að draumur hans væri að rætast. Fótbolti 4.7.2011 16:13
Gunnar: Höfum ekki fengið heimaleik í nokkur ár Gunnar Borgþórsson þjálfari kvennaliðs Vals var nokkuð sáttur við dráttinn en lið hans sækir Aftureldingu heim í undanúrslitum Valitor-bikarsins. Hann hefði þó kosið að fá heimaleik. Íslenski boltinn 4.7.2011 14:38
Bjarni: Stóð eins og stafur í bók Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR vaknaði í nótt og honum var heitt. Hann hafði dreymt að KR hefði dregist gegn BÍ/Bolungarvík í bikarnum og leikið yrði fyrir vestan. Nú er draumurinn orðinn að staðreynd en liðin mætast á Torfnesvelli þann 28. júlí. Íslenski boltinn 4.7.2011 14:00
Guðjón: Líklega eins erfitt og það getur orðið Vestfirðingar taka á móti KR-ingum á heimavelli 28. júlí. Guðjón sá sjálfur um að draga mótherjana upp úr hattinum. Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur var nokkuð sáttur við dráttinn og lýsti honum að nokkru leyti sem draumadrætti. Íslenski boltinn 4.7.2011 13:50
Feðgarnir mætast fyrir vestan í bikarnum KR-ingar sækja BÍ/Bolungarvík heim í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu. Feðgarnir Guðjón Þórðarson þjálfari Vestfirðinga og Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR-inga munu því mætast. Í hinni viðureigninni tekur Þór á móti ÍBV. Íslenski boltinn 4.7.2011 12:26
Bikarmeistarar Vals fara í Mosfellsbæ Bikarmeistarar Vals í knattspyrnu sækja Aftureldingu heim í undanúrslitum Valitor-bikars kvenna í knattspyrnu. Í hinni viðureigninni tekur Fylkir á móti KR. Íslenski boltinn 4.7.2011 12:21
KR vann Keflavík í roki og rigningu - myndir KR-ingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi með 3-2 sigri á Keflavík. Leikurinn var hin mesta skemmtun þrátt fyrir að aðstæður til knattspyrnu hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á staðnum. Íslenski boltinn 4.7.2011 10:52
Dregið í undanúrslit Valitor-bikarsins í hádeginu Dregið verður í undanúrslit í Valitor-bikarsins í knattspyrnu í hádeginu í dag. Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst klukkan 12. Íslenski boltinn 4.7.2011 09:06
Bjarni: Höfðum yfirhöndina allan leikinn "Þetta var hörkuleikur og sennilega frábær skemmtun,“ sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, eftir leikinn. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:51
Willum: Strákarnir eiga hrós skilið "Þetta var frábær leikur og við fengum óskabyrjun sem við náum ekki að nýta okkur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, í kvöld. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:44
Baldur: Ég var stressaður fyrir þennan leik "Þetta er frábært og mér líður gríðarlega vel,“ sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:37
Bikarævintýri BÍ/Bolungarvíkur heldur áfram Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík halda áfram að fara á kostum í Valitor-bikarnum. BÍ er komið í undanúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 3-2 sigur á Þrótti á Torfnesvelli í dag. Íslenski boltinn 3.7.2011 15:52
Kristinn dæmir á Emirates Cup Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson hefur fengið boð um að koma til Englands og dæma á hinu sterka Emirates Cup. Þetta kom fram í viðtali við Gylfa Þór Orrason í þættinum fótbolti.net á X-inu í dag. Íslenski boltinn 2.7.2011 15:02
Eiður Smári ekki á leið til Bandaríkjanna Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður og faðir Eiðs Smára Guðjohnsen, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að ekkert nýtt væri að frétta af málum sonar síns. Sögusagnir hafa verið uppi þess efnis að hugur Eiðs Smára leitaði til MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum en Arnór segir þær sögusagnir ekki eiga við rök að styðjast. Fótbolti 1.7.2011 22:01
Guðjón Þórðarson: Mér ber skylda til þess að verja mína leikmenn „Ég er ekki enn búinn að sjá bréfið frá KSÍ. Ég mun fara yfir málið og síðan mun ég skýra mitt mál. Það er ekki flókið. Þessi ummæli áttu ekki að meiða neinn,“ sagði Guðjón við Fréttablaðið í gær. Íslenski boltinn 1.7.2011 22:01
Bikarmeistarar Vals lögðu Stjörnuna Valskonur komust í undanúrslit Valitor-bikars kvenna í knattspyrnu í kvöld með 1-0 útisigri á Stjörnunni í Garðabæ. Það var Bandaríkjamaðurinn Caitlin Miskel sem skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleiknum. Miskel hefur verið iðin við kolann í sumar en þetta var hennar fimmta mark í öllum keppnum. Íslenski boltinn 1.7.2011 21:49
Fylkir í undanúrslit Valitor-bikars kvenna Fylkir komst í kvöld í undanúrslit Valitor-bikars kvenna í knattspyrnu þegar liðið sigraði FH 3-2 í dramatískum leik á Árbæjarvelli. Fylkir lenti tvívegis undir en skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. Íslenski boltinn 1.7.2011 20:11
Ummæli Guðjóns kærð til aga - og úrskurðanefndar KSÍ Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ sendi inn kæru s.l. þriðjudag til aga – og úrskurðanefndar KSÍ vegna ummæla Guðjóns Þórðarsonar þjálfara BÍ/Bolungarvíkur í sjónvarpsfréttum Stöðvar 2. Guðjón sagði eftir leik BÍ/Bolungarvíkur gegn Þrótti í 1. deildinni að hann vissi ekki hvort dómurum líkaði litarhátturinn á framherja liðsins. Fótbolti 1.7.2011 11:02
Finnur: Sterkt að halda hreinu Finnur Ólafsson, leikmaður ÍBV, segir að það hafi verið fyrir öllu ná sigri gegn St. Patrick's í forkeppni Evrópudeildar UEFA í dag og að það hafi ekki skemmt fyrir að ÍBV hélt einnig hreinu. Fótbolti 30.6.2011 21:06
Utan vallar: Flotið sofandi að feigðarósi Miðvikudagurinn 29. júní 2011 er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu. Þá hrundi íslenska karlalandsliðið niður í 122. sætið á styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Versti árangur Íslands á listanum fram að þessum degi var 117. sæti. Ekki er hægt að segja að listinn sé marklaus. Hann tekur mið af árangri landsliðanna og árangur Íslands síðustu ár er nákvæmlega enginn. Íslenski boltinn 29.6.2011 22:33
Fuglafirðingar á lágflugi í Færeyjum KR hefur í kvöld keppni í undankeppni Evrópudeildar UEFA þegar liðið mætir ÍF Fuglafjørður í Þórshöfn í Færeyjum. Liðin mætast svo aftur í næstu viku en þá á KR-vellinum. Íslenski boltinn 29.6.2011 22:33
Niðurlægjandi að þurfa að spila leikinn í bænum "Þetta er stór stund fyrir okkur hjá ÍBV en það er ekki hægt að neita því að það er niðurlægjandi að þurfa að koma í bæinn til þess að spila Evrópuleik,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, en hans lið tekur á móti írska liðinu Saint Patrick's í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn fer fram á heimavelli Vals, Vodafone-vellinum. Íslenski boltinn 29.6.2011 22:33
Víkingur sigraði KA - HK náði í stig gegn Haukum Tveir leikir fóru fram í 9. umferð 1. deildar í knattspyrnu í kvöld. Í Ólafsvík sigruðu heimamenn KA 2-1 eftir að hafa lent marki undir og á gervigrasinu í Hafnarfirði skildu Haukar og HK jöfn 1-1. Íslenski boltinn 29.6.2011 22:22