„Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Lárus Orri Sigurðarson stýrði í dag sínum síðasta leik sem þjálfari ÍA, en eftir 4-4 jafntefli liðsins við Keflavík í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta tilkynnti félagið að leiðir Lárusar Orra og Skagamanna myndu skilja nú í lok tímabilsins. Íslenski boltinn 24.10.2026 18:24
Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Skagamenn tilkynntu eftir lokaleik tímabilsins að Lárus Orri Sigurðsson hefði stýrt liðinu í síðasta sinn. Íslenski boltinn 24.10.2026 17:20
Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni ÍA og Keflavík skildu jöfn,4-4, þegar liðin leiddu saman hesta sína í Akraneshöllina í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta í dag. Skagamenn hafna þar af leiðandi í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2007. Keflavík hafði þegar náð sínum besta árangri frá árinu 2010. Íslenski boltinn 24.10.2026 13:15
Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Tveir leikir fóru fram í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur tóku á móti Skagamönnum og í Kópavogi mættust Breiðablik og Keflavík. Íslenski boltinn 12. október 2026 10:02
Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Víkingur og ÍA gerðu 2-2 jafntefli á Víkingsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig. Íslenski boltinn 11. október 2026 18:32
Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Rúnar Már Sigurjónsson segir heiður að hafa verið hluti af íslenska landsliðinu á ferli sínum og hann sé lítið að spá í fjölda landsleikja á hans ferli, sem hefðu eflaust getað verið fleiri. Það situr enn í honum að hafa ekki fengið að fara á HM 2018 í Rússlandi. Íslenski boltinn 29. september 2026 10:32
Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Rúnar Már Sigurjónsson tilkynnti í vikunni að fótboltaferli hans myndi ljúka þegar keppni í Bestu deild karla klárast í október. Hann bindur þar enda á 20 ára feril sem flutti hann víðsvegar um heim. Íslenski boltinn 27. september 2026 10:16
Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Sport 22. september 2026 12:45
Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Rúnar Már Sigurjónsson mun leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir síðasta leik ÍA á yfirstandandi tímabili. Rúnar segir ákvörðunina erfiða, hugurinn vilji halda áfram en líkaminn segi stopp. Íslenski boltinn 22. september 2026 09:41
Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Nóg var skorað er fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Alls voru mörkin 18 talsins. Íslenski boltinn 21. september 2026 13:31
Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Guðjón Þórðarson, einn reynslumesti og sigursælasti knattspyrnuþjálfari Íslands frá upphafi, segist eiga í „bölvuðu basli“ með heilsuna. Íslenski boltinn 21. september 2026 08:26
„Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Viktor Jónsson skoraði tvö marka ÍA í öruggum 4-1 sigri á Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á Akranesi síðdegis. Hann fer sáttur í frí. Íslenski boltinn 20. september 2026 19:20
Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum ÍA vann öruggan 4-1 sigur á Breiðabliki á Akranesi í 24. umferð Bestu deildar karla. Sigurinn var síst of stór en með honum jafnaði Skaginn Blika að stigum. Íslenski boltinn 20. september 2026 18:30
Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Tómas Orri Róbertsson skoraði sannkallað draumamark í dýrmætum sigri FH gegn KA í gær. KR, Valur og Stjarnan fögnuðu einnig sigri. Öll mörkin úr Bestu deildinni má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 14. september 2026 11:02
„Mótið í rauninni búið“ „Eru ekki öll töp þung? Við erum búnir að vera á siglingu síðan í lok júlí þetta voru komnir sjö leikir án taps. Það er ekkert gott að fá áminningu um það hvernig er að tapa. Þetta var ekki gott,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir 5-1 tap fyrir KR í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 13. september 2026 17:37
„Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með öruggan 5-1 sigur sinna manna á ÍA í Bestu deild karla í fótbolta í dag. KR svaraði fyrir slæmt tap á Skaganum síðustu helgi. Íslenski boltinn 13. september 2026 17:06
Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni KR vann í dag öruggan sigur á ÍA þegar að liðin mættust á Meistaravöllum í annað sinn á nokkrum dögum í Bestu deildinni. Lokatölur 5-1 sigur KR sem lyftir liðinu upp í 2. sæti Bestu deildarinnar. Lærisveinar Óskars Hrafns hefndu sín eftir tap gegn ÍA á Skaganum. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:30
Árni Gautur heiðraður af ÍA Fyrir leik ÍA og KR í Bestu deild karla í fótbolta í gær veitti ÍA, Árna Gauti Arasyni heiðursviðurkenningu fyrir glæsilegan knattspyrnuferil og framlag hans til knattspyrnunnar á Akranesi. Íslenski boltinn 7. september 2026 23:01
„Vorum on it frá upphafi til enda“ Lárus Orri Sigurðarson, þjálfari ÍA, var kampakátur eftir 3-1 sigur liðsins gegn KR í 22. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 16:42
Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Akranes verður í efri hlutanum þegar deildinni verður skipt upp en það var ljóst eftir 3-1 sigur liðsins gegn KR í leik liðanna í 22. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Elkem-vellinum á Akranesi í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 13:15
Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Ellefu mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Kristófer Konráðsson skoraði mark dagsins. Íslenski boltinn 31. ágúst 2026 11:01
Af Skaganum til Lyngby Markvörðurinn Jón Sölvi Símonarson hefur skrifað undir lánssamning við danska félagið Lyngby, hvert hann kemur frá ÍA í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 31. ágúst 2026 10:32
„Stálheppnir að ná í þetta stig“ Lárus Orri Sigurðarson, þjálfari ÍA, var hreinskilinn aðspurður um álit á spilamennsku sinna manna þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Val í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 22:39
Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Það var ótrúleg dramatík í lok leiks Vals og ÍA í Bestu deildinni í kvöld. Dæmd var leiktöf á Frederik Schram, markvörð Vals, og upp úr því kom jöfnunarmark ÍA á síðustu stundu. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 21:57