„Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Valur Páll Eiríksson skrifar 20. september 2026 19:20 Viktor Jónsson var öflugur í dag. vísir/Anton Viktor Jónsson skoraði tvö marka ÍA í öruggum 4-1 sigri á Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á Akranesi síðdegis. Hann fer sáttur í frí.
Viktor lofaði fréttamanni að hann myndi setja nokkur mörk fyrir leik og stóð við það. „Já, já, en ég held það hafi klikkað á þrennunni bara,“ segir Viktor sem fékk færi til að skora þriðja markið. „Já, heldur betur. Það var þreytt að vera tekinn út af en Lárus var nú búinn að láta mig vita samt að ég fengi níu mínútur til þess að klára þrennuna en tókst ekki í þetta skiptið. Maður má ekki vera of frekur,“ segir Viktor léttur. „Ég er náttúrulega bara sáttur með niðurstöðuna, en mér fannst þetta nú samt svona hálf orkulítið einhvern veginn allt og hérna. Kannski bara svolítið svona eins og mótið er að spilast akkúrat núna, en mér fannst við gera vel. Við vorum mjög orkumiklir á köflum en svona heilt yfir þá er þetta svona. Ánægður með okkur og að hafa mótiverað okkur í þetta og og komið inn með bara hausinn rétt skrúfaðan á,“ segir Viktor. Skagamenn svöruðu þá fyrir slæmt 5-1 tap fyrir KR í síðasta leik. „Já, það er fyrst og fremst það sko að við náðum að svara fyrir það. Það var náttúrulega gjörsamlega óboðleg frammistaða hjá okkur og það er gott að geta svona rifið okkur upp á rassgatinu og komið svona til baka,“ segir Viktor. Þrjár vikur eru í næsta leik og langt landsleikjahlé fram undan. Smá frí, hvernig ætlarðu að nýta það? „Ég hugsa að ég geri bara ekki rassgat sko. Það er bara eins og það er. Tímabilið er ennþá í gangi þótt það séu þrjár vikur í næsta leik. En náttúrulega skrítið að fara inn í frí núna á þessum tímapunkti og svona hausinn kannski ekki alveg kominn þangað að leyfa sér að fara í eitthvað frí. En maður fer að gera eitthvað með fjölskyldunni.“
ÍA Besta deild karla Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira