Keflavík ÍF

Keflavík ÍF

Fréttir af íþrótta- og ungmennafélaginu Keflavík frá Reykjanesbæ.

Fréttamynd

Kefla­vík - KR 2-3 | Gabríel gull­tryggði annað sæti

KR tryggði sér annað sætið í Bestu deild karla með dramatískum 3-2 sigri á Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. KR-ingar komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu metin eftir hlé áður en Gabríel Hrannar Eyjólfsson tryggði gestunum sigurinn á 89. mínútu.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Fal­leg stund að fá að keppa á móti litla bróður“

Bræðurnir Arnór Ingvi og Viktor Árni Traustasynir mættust í sitt hvorum búningnum þegar KR lagði Keflavík að velli, 3–2, í Bestu deild karla í dag. Arnór Ingvi átti stóran þátt í sigri KR-inga en hann lagði upp sigurmark liðsins undir lok leiks og tryggðu KR-ingar sér þar með annað sætið í deildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Við fórum að spila al­vöru körfu­bolta“

Keflavík vann gríðarlega öflugan og öruggan sextán stiga sigur 106-90 á nýliðum Sindra þegar liðin mættust í annarri umferð Bónus deild karla í kvöld. Bragi Guðmundsson átti flottan leik fyrir Keflavík og hann ræddi við Vísi eftir leik.

Sport
Fréttamynd

Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“

Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Grinda­vík hóf tíma­bilið á stór­sigri

Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Hver einasti maður á­kveðið að við færum beint niður“

„Ég held að hver einasti maður sem fylgdist með hafi ákveðið að við færum beint niður aftur. Það var klárlega ekki planið og við héldum okkur sannfærandi í deildinni,“ segir Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur, sem þvert á allar spár mun í versta falli enda í 6. sæti Bestu deildarinnar í ár.

Íslenski boltinn