Innlent
Stálheppinn að enda ekki í gili
Litlu mátti muna að alvarlegt slys yrði þegar erlendur ferðamaður sofnaði undir stýri og velti bíl sínum skammt frá Húsafelli síðdegis í gær.

Vantar fleiri Sæluvikur
Fréttavefurinn Skagafjörður.com stóð fyrir könnun þar sem Skagfirðingar voru spurðir að því hvað hefði verið best við nýafstaðinn júlímánuð. Af niðurstöðunum má hæglega álykta sem svo að lífið hafi verið heldur lítilfjörlegt í Skagafirðinum þann mánuðinn því tæpum 39 prósentum svarenda þótti best að hann væri liðinn. Zinedine Zidane kryddaði þó aðeins tilveruna því tæpum 29 prósentum þótti það mesta gleðiefni mánaðarins þegar hann skallaði Marco Materazzi.

Fimm teknir með fíkniefni
Fimm menn voru handteknir í Kópavogi á þriðjudagskvöld og aðfaranótt miðvikudags vegna þriggja fíkniefnamála. Öll málin komu upp við reglubundið umferðareftirlit.
Hlaut meiðsl á höfði í bílveltu
Erlend kona á fertugsaldri slasaðist á höfði þegar hún velti bíl sínum á Landvegi norðan við Búrfell um tvöleytið í gær. Konan, sem var á ferð ásamt eiginmanni sínum, ók bílaleigubíl og missti stjórn á honum með fyrrgreindum afleiðingum. Eiginmaðurinn slasaðist minna

Strokufangi gengur laus
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hilmari Ragnarssyni, 43 ára gömlum fanga af Litla-Hrauni sem strauk af læknastofu í Lágmúla á þriðjudaginn. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir að hafa upplýsingar við lögregluna í Reykjavík.

Penguin kaupir Forðist okkur
Hin virta bókaútgáfa Penguin hefur gengið frá samningi við JPV um útgáfu á bókinni Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson. Penguin kaupir útgáfurétt fyrir bókina á ensku fyrir allan heiminn að Íslandi undanskildu. Forðist okkur kom út á síðasta ári, sett var upp leikrit eftir bókinni sem Hugleikur hlaut Grímuverðlaunin fyrir.

Sjófuglar taldir á næstu árum
Engar óyggjandi rannsóknir eru til um það hvort sjófugli hafi fækkað hér á landi undanfarin ár. Helstu rannsóknarstofnanir landsins í náttúrufræði ætla að ráða bót á því og hafa hafið talningu í stærstu sjófuglabjörgum landsins sem ekki hefur farið fram í 20 ár.

Leitað út fyrir landssteinana að eldislaxi
Skortur á laxi hér landi hefur leitt til þess að menn hafa gripið til þess ráðs að flytja inn eldislax frá Noregi. Líklegt er þó að það rætist úr ástandinu á næstu vikum.

Stoppaðir með handfarangur
Flugfarþegar sem millilenda í Bretlandi geta lent í því að vera stoppaðir með handfarangur sinn þar. Sérfræðingar um öryggismál segja að sennilega verði flugfarþegar að vera viðbúnir því að hertar reglur verði varanlegar.

Rukkuðu Impregilo meira en aðra
Heilbrigðiseftirlit Austurlands braut jafnræðisreglu stjórnsýslulaga í viðskiptum sínum við verktakafyrirtækið Impregilo. Eftirlitið breytti gjaldskrá sinni á þann veg að Impregilo þurfti að borga 30 prósent umfram aðra viðskiptavini.

Lýst eftir strokufanga
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hilmari Ragnarssyni 43 ára, sem strauk frá Litla-Hrauni síðastliðinn þriðjudag. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó.
Elín Arnar ritstjóri Vikunnar
Elín Arnar hefur verið ráðin ritstjóri á tímaritinu Vikunni.
Nauðgunartilraun í Breiðholti
Ráðist var á tuttugu og tveggja ára konu klukkan fögur í fyrri nótt í Breiðholti. Konan var á leið til vinnu þegar maður, ógnaði henni með hníf og keyrði hana í götuna þar sem hann reyndi að nauðga henni.

Húsaleiga hækkar til muna
Húsaleiga hefur hækkað til muna á þessu ári. Leiga á tveggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10-20 þúsund krónur að meðaltali frá því í ágúst í fyrra.

Guðni segir flokksþingið velja forystu
Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem býður sig fram til áframhaldandi varaformennsku, segist hvorki styðja Jón Sigurðsson né Siv Friðleifsdóttur til formennsku, það sé flokksþingsins að velja sér forystu.

Spá því að Seðlabankinn hækki stýrivexti um 50 punkta
Sérfræðingar KB banka spá því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 50 punkta á næsta fundi sínum um vaxtaákvarðanir í næstu viku.

Norskir dagar á Seyðisfirði
Norskir dagar verða haldnir á Seyðisfirði á morgun, 12. ágúst og í ár er einnig haldið upp á 100 ára afmæli símasambands við útlönd.
Samfylkingin minnir á lýðræðisleg réttindi borgaranna
Rétt er að minna yfirvöld á mikilvægi þess að virða lýðræðisleg réttindi borgaranna, segir í ályktun samráðsfundar Samfylkingarfélaganna í Reykjavík, í tilefni frétta af aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og ferðafólki við Kárahnjúka.
Mark Webber formúlukappi á Íslandi
Formúlukappinn Mark Webber frá Williams Formúlu1 liðinu er mættur til Íslands.

Kona vinnur Hummer-jeppa
Kona nokkur sem hafði í tuttugu ár styrkt DAS með því að kaupa happdrættismiða fékk í gær afhentan fyrsta vinninginn, spánýjan Hummer-jeppa.

Ökumaður stöðvaður í fjórða skipti á mánuði
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gær ökumann vegna hraðaksturs og var þetta í fjórða sinn á hálfum mánuði , sem hann er stöðvaður fyrir slíkt og í sjötta skipti á árinu.

Erlendir ferðamenn teknir fyrir hraðakstur
Erlendur ferðamaður á bílaleigubíl var stöðvaður á rösklega 160 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi , skammt frá Hvolsvelli í gær og þrír aðrir útlendingar á 110 til 130 kílómetra hraða.

Fagna framboði Sivjar
Stjórnir Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði fagna fram komnu framboði Sivjar Friðleifsdóttur , oddvita Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, til embættis formanns flokksins.
Bíll valt við Kirkjubæjarklaustur
Tveir menn sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum vestan við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi og valt.

Flug til Lundúna á áætlun
Flug milli Íslands og Lundúna er allt á áætlun í dag eftir miklar tafir í gær í kjölfar aðgerða gegn meintum hryðjuverkamönnum.

Herbergi leigð á 35 þúsund
Leiguverð tveggja herbergja íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10-20 þúsund krónur að meðaltali frá í fyrra, að sögn Elísabetar Björgvinsdóttur, sölumanns hjá Fasteignamiðluninni Ársölum. „Meðalleiguverð tveggja herbergja íbúða nú er 70 þúsund krónur á mánuði en í fyrra var meðalverðið 50-60 þúsund krónur.“
Siv og Jón bjóða sig fram
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í gær um framboð sitt til formanns flokksins.