Innlent
169 170 171 172 173 174 175 176 177 … 334 ›
Hringhlaup í miðbænum Vangaveltur eru meðal íslenskra langhlaupara um að halda hundrað kílómetra hlaup á Íslandi og yrði það í fyrsta sinn sem svo langt hlaup er haldið hér. Gunnlaugur A. Júlíusson langhlaupari segir að mikill spenningur séu fyrir því að halda hlaupið á næsta ári eða þarnæsta ári og allar líkur að af því verði. Líklegast sé að hlaupið verði hringhlaup í miðbænum. Innlent 5.11.2006 22:36
Slæmt þegar kalt loft mætir hlýju „Það sem gerist er að lægð, sem var rétt við landsteinana, er með mjög kalt loft norðan við sig og mjög hlýtt loft sunnan við sig. Þegar slíkar aðstæður fara saman, að ískalt loft mætir hlýju lofti, þá er fjandinn laus,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur hjá NFS, um óveðrið í gær. Innlent 5.11.2006 22:36
Margir fatlaðir í brýnni þörf Nú bíða í kringum 30 manns eftir viðeigandi búsetuúrræði fyrir fatlaða á Suðurlandi. Sighvatur Blöndahl, formaður Þroskahjálpar á Suðurlandi, segir þennan hóp fara stækkandi vegna fólksfjölgunar á svæðinu. Innlent 5.11.2006 22:37
Sálfræðingar sinni sálgæslu Ung vinstri græn lýsa sig algjörlega mótfallin trúboði í skólum og vísa hér til hinnar svokölluðu „vinaleiðar“ sem fram fer í opinberum skólum. Ung vinstri græn krefjast þess að gætt sé hlutleysis í öllu starfi grunnskóla landsins. Innlent 5.11.2006 22:36
Nánast enginn leki við stífluna Lekinn í gegnum Kárahnjúkastíflu er margfalt minni heldur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum, segir Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar. Innlent 5.11.2006 22:36
Námið í fleiri en einum skóla Mennta- og fjármálaráðuneyti leggja til, við aðra umræðu um frumvarp til fjárlaga, að fjölgað verði um tíu nema í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og fimmtán við Háskóla Íslands. Þetta er breyting því í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir að nemendum á fyrsta ári í hjúkrunarfræði verði fjölgað um 25 og þeir nemar verði allir í Háskóla Íslands. Innlent 5.11.2006 22:36
Einnig kölluð hrafnreyður Fátt hefur verið meira rætt á kaffistofum landsins að undanförnu en hvalveiðar í atvinnuskyni. Þar hefur veiði á langreyði fengið mesta athygli en minna er talað um nákominn ættingja hennar hrefnuna, sem einnig er leyfilegt að veiða undir merkjum atvinnuveiða. Innlent 5.11.2006 22:37
Bílvelta á Öxnadalsheiði Bíll valt á Öxnadalsheiði í gær. Að sögn lögreglu var krapi á veginum og fauk bíllinn hreinlega af veginum í veðurofsanum. Bílstjórinn var einn í bílnum og slapp lítið meiddur. Innlent 5.11.2006 22:36
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi Eldur kom upp í íbúð fjölbýlishúss á Akureyri í gærmorgun. Íbúi hafði gleymt potti á eldavél og vaknað við væl reykskynjara. Hann komst út af sjálfsdáðum. Lögregla og slökkvilið ræstu íbúðina sem var þá orðin full af reyk. Eitthver tjón hlaust af vegna reyksins en betur fór en á horfðist. Innlent 5.11.2006 22:36
Kona stal jólamat og jólagjöfum Hálffimmtug kona var í gær dæmd í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún hafði gerst sek um þjófnaði á fatnaði, matvælum og jólagjöfum fyrir á þriðja hundrað þúsund króna. Dómnum þótti sannað að konan hefði reynt að stela vörum í Euro-pris, sem hún var með á leiðinni út í tösku þegar starfsmenn stöðvuðu hana. Innlent 5.11.2006 22:36
Glæsilegur fimm manna hópur „Þetta er glæsilegur fimm manna hópur sem leiðir listann,“ segir Ingibjörg Sólrún og að það sé jákvætt hve mikil breidd sé í hópnum en úrslitin séu ekki mjög óvænt. „Gunnar er vel að sigrinum kominn og hann hefur unnið mikið og fórnfúst starf fyrir flokkinn.“ Innlent 5.11.2006 22:36
Stefna Frjálslyndra í málum innflytjenda vekur ugg Varaformaður Frjálslynda flokksins segir mikinn vanda hafa skapast í málefnum útlendinga hér á landi. Ábyrgðarlaus hræðsluáróður, segir Einar Skúlason. Nýtt ef flokkar ætla í þessa átt, segir Ólafur Þ. Harðarson. Innlent 5.11.2006 22:36
Stálu raftækjum og skiptimynt Brotist var inn í félagsheimilið á Flúðum aðfaranótt föstudags og stolið þaðan þremur fartölvum, tveimur skjávörpum, myndbandsupptökuvél, fjarstýringum og lítilræði af skiptimynt. Innlent 5.11.2006 22:36
Vegir opna á ný Lögreglan á Egilsstöðum hefur opnað alla vegi, sem voru lokaðir fyrr í dag, á ný. Veður hefur gengið niður en er þó enn það slæmt að ekki er mælt með að fólk sé á ferli að óþörfu. Innlent 5.11.2006 20:09
Flogið á milli Reykjavíkur og Akureyrar í kvöld Innanlandsflug er hafið á ný. Aðeins er þó um að ræða flug á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Innlent 5.11.2006 19:52
Flugi til Egilsstaða frestað til morguns Flugi til Egilsstaða hefur verið frestað til morguns vegna veðurs. Áætlað er að fyrsta flug fari frá Reykjavík klukkan 06:15 í fyrramálið. Innlent 5.11.2006 18:52
Nýjar reglur um handfarangur Nýjar reglur um handfarangur í millilandaflugi taka gildi á morgun en þar með verður ekki hægt að vera með vökva í handfarangri nema í þar til gerðum plastpokum. Innlent 5.11.2006 18:51
Ekstrablaðið sendir fjármálaráðherra bréf Blaðamenn Ekstrablaðsins danska hafa sent Árna Mathiesen fjármálaráðherra bréf þar sem hann er spurður um tengsl íslenskra kaupsýslumanna við skúffufyrirtæki á Bresku jómfrúaeyjum. Hann hefur ekki svarað. Innlent 5.11.2006 18:48
Fjölskyldu bjargað úr grjótroki Vitlaust veður er nú á austanverðu landinu. Allar rúður brotnuðu í bíl erlendra ferðamanna sem voru á ferð um Möðrudalsöræfi. Þakplötur hafa fokið víða um land og eitt af elstu trjám Reykjavíkur rifnaði upp með rótum. Mestur vindur mældist fimmtíu metrar á sekúndu í verstu hviðum á Snæfellsnesi. Í fyrsta sinn í fjögur ár lá allt millilandaflug niðri til hádegis. Innlent 5.11.2006 18:45
Maður sem lýst var eftir er fundinn Maðurinn sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir þann þriðja nóvember síðastliðinn, Kristófer Örn Sigurðsson, er fundinn. Hann fannst nú rétt undir kvöld. Innlent 5.11.2006 18:17
Vinstri grænir aflýsa kjördæmisþingi vegna veðurs Vinstri grænir ætluðu sér að halda kjördæmisþing í Norðvesturkjördæmi í Dalabúð í Búðardal í dag. Þar átti að taka ákvörðun um hvernig staðið yrði að uppröðun á framboðslista í Vinstri grænna í kjördæminu. Aðeins félagar svæðisfélaganna hafa þar atkvæðisrétt. Innlent 5.11.2006 17:47
Veðrið setti strik í reikning Samfylkingarinnar Talning á atkvæðum úr prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi hefst klukkan tvö á morgun þar sem öll kjörgögn skiluðu sér ekki í hús í kvöld vegna veðurs. Kjörgögnin sem um ræðir eru atkvæði úr prófkjöri flokksins í Vestmannaeyjum. Innlent 5.11.2006 17:31
Steinunni Valdísi hryllir við skoðunum þingmanns Frjálslynda flokksins Steinunn Valdís Óskarsdóttir einn frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar segir Magnús Þór Hafsteinsson þingmann Frjálslynda, kynda undir ótta fólks við útlendinga. Skoðanir þingmannsins séu hrollvekjandi. Hún spyr sig hvort Frjálslyndi flokkurinn ætli að taka upp ískalda þjóðernishyggju til að freista þess að auka fylgi sitt. Innlent 5.11.2006 17:04
Talið verður í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í kvöld Talið verður í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í dag. Einhver bið verður þó á fyrstu tölum þar sem kjörkassinn frá Vestmannaeyjum kemst ekki í land sökum veðurs. Innlent 5.11.2006 15:18
Millilandaflug að fara af stað en óvíst með innanlandsflug Millilandaflug hefur hafist á ný eftir miklar tafir vegna veðurs en athugað verður með innanlandsflug klukkan fimm í dag. Innlent 5.11.2006 14:33
Veður á Austurlandi versnar enn Lögreglan á Egilsstöðum skýrði frá því í dag að vegurinn á Möðrudalsöræfum væri lokaður vegna veðurs, sem og leiðin frá Egilsstöðum til Mývatns. Veginum á Sandvíkurheiði, sem liggur milli Vopnafjarðar og Bakkafjarðar, hefur einnig verið lokað. Innlent 5.11.2006 13:25
Draga á Ikkemut af strandstað kl. tvö í dag Hafsögumenn og björgunarsveitamenn í Hafnarfirði ætla sér að draga grænlenska draugaskipið Ikkemut af strandstað klukkan tvö í dag. Innlent 5.11.2006 13:00
Millilandaflug hefst á ný Millilandaflug á að hefjast á ný klukkan eitt í dag. Þetta kemur fram á vef Keflavíkurflugvallar. Innlent 5.11.2006 12:50
Tvö skip slitnuðu frá bryggju í Hafnafjarðarhöfn Rúmlega tvöhundruð tonna bátur og skuttogari slitnuðu frá bryggju í Hafnarfirði í morgun og rak út á höfnina. Ekki er talið að miklar skemmdir hafi orðið á skipunum en hafsögumönnum og björgunarsveitarmönnum tókst að draga minna skipið af strandstað á ellefta tímanum. Innlent 5.11.2006 11:32
Veðurfréttir: Athuga á með millilandaflug á hádegi Ekkert hefur verði flogið á Keflavíkurflugvöll í morgun vegna veðurhamsins og var öllum vélum vísað til Glasgow þar sem þær bíða að veður skáni. Slíkt hefur ekki gerst í fjögur ár, að öllum flugvélum hafi verið beint framhjá landinu. Innanlandsflug liggur allt niðri sem stendur en áætlað er að athuga með flug til og frá Reykjavík klukkan tvö í dag. Innlent 5.11.2006 10:21