
Kvöldfréttir Stöðvar 2

Vopnaburður ungmenna ekki nýr af nálinni
Formaður skólastjórafélags Íslands segir ekki nýtt af nálinni að börn og ungmenni gangi um með vopn. Það sem hafi breyst sé vilji þeirra til að beita þeim. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þjóð í áfalli vegna hnífaburðar og mótmælaalda í Ísrael
Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Við ræðum við yfirlögregluþjón í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Bjarni íhugar stöðu sína og ævintýraheimur í Hafnarfirði
Formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki búinn að ákveða hvort hann sækist eftir áframhaldandi setu á formannsstól en varaformaðurinn kveðst tilbúinn að taka við keflinu ef svo ber undir. Ungliðahreyfingin sendi forystu flokksins væna pillu vegna sögulega lítils fylgis í könnunum.

Ábyrgð foreldra og mikið verður lítið
Drengurinn sem er í haldi vegna stunguárásar á menningarnótt hefur verið fluttur á Hólmsheiði vegna líflátshótana. Ráðamenn vilja auka sýnileika lögreglu vegna ofbeldis unglinga en lögreglumaður ítrekar að foreldrar beri fyrst og síðast ábyrgð á börnum sínum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vopnuð börn og játning í dularfullu máli
Lögreglan telur að stórfellt átak þurfi til að taka á hnífaburði barna. Dæmi er um að börn gangi um með rafbyssur og piparúða. Einnig hefur borið á því að börn mæti með hnífa í skólann. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tíðindi í nýrri könnun, neyðarkassi og hundahlaup í beinni
Nokkur tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokkanna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í hana og fáum viðbrögð frá hástökkvara.

Fjórföldun alvarlegra ofbeldisbrota og samstöðufundur
Fjöldi alvarlegra ofbeldisbrota ungmenna hefur fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er sleginn yfir lífshættulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Leit hætt og rætt við föður drengs sem varð fyrir stunguárás
Björgunaraðgerðum við Breiðamerkurjökul var hætt í dag eftir að í ljós kom að enginn var undir ís sem féll á ferðamenn. Lögregla segir mikilvægt að skráning í varasamar ferðir sé skýr.

Fólk fast í íshelli og stunguárás
Nokkrir eru slasaðir eftir að íshellir í Breiðamerkurjökli hrundi síðdegis í dag. Fjölmennt viðbragð er á svæðinu og fólk fast inni í hellinum. Við ræðum við yfirlögregluþjón sem stýrir aðgerðum í beinni útsendingu í fréttatímanum.

Aurskriður og menningarnæturtónleikar
Aurskriður féllu á þrjú heimili á Húsavík í nótt vegna mikillar úrkomu. Skriður féllu einnig beggja vegna Strákaganga, og Siglufjarðarvegi var lokað, en á Ólafsfirði var allt þurrt.

Dregið úr virkni eldgossins, harmleikur í Neskaupstað og nóróveiran
Dregið hefur úr virkni eldgossins sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöldi og viðbúnaður almannavarna færður af neyðarstigi á hættustig. Við verðum í beinni frá gosstöðvunum og ræðum við jarðeðlisfræðing í myndveri.

Andlát í Neskaupstað, hjón með Downs og gangagerð
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 ræðum við við yfirlögregluþjón á Austurlandi og forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar um alvarlegt atvik á Norðfirði en hjón voru úrskurðuð látin og einn handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.

Samgöngusáttmáli, stýrivextir og nikótínrisar
Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna.

Sögulegt heitavatnsleysi og brjáluð umferð
Veitur hleyptu síðdegis heitu vatni á Hólmsheiði og Almannadal en stór hluti höfuðborgarsvæðisins býr enn við umfangsmikið heitavatnsleysi. Framkvæmdastýran segir framkvæmdir á áætlun. Fólk geti að líkindum farið í bað eftir hádegi á morgun. Íbúar tóku raskinu af æðruleysi, margir nýttu sér sturtuaðstöðu sundlauga Reykjavíkur og gamla fólkið skellti sér í grillveislu.

Sprenging í bílastæðagjöldum og hitað upp fyrir heitavatnsleysið
Á fáeinum árum hefur orðið sprenging í bílastæðagjöldum við margar af helstu náttúruperlum landsins. Ferðamálastjóri segir villta vestrið ríkja í málaflokknum og að gjöldin fari misvel í landann. Nauðsynlegt sé að koma böndum á þessa þróun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Kýtingur á stjórnarheimilinu og ofgnótt af hraðtískufötum
Dómsmálaráðherra og formaður Vinstri grænna eru ósammála um forgangstöðun í málefnum útlendinga. Í síðustu viku lýsti annar ráðherra sig ósammála formanninum um orkumál. Rætt verður við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Ný lágvöruverðsverslun áskorun og tónlistarframleiðsla Magga Mix
Fjöldi fólks lagði leið sína í nýja lágvöruverðsverslun sem var opnuð í Kópavogi í dag. ASÍ bindur vonir við að verslunin veiti aðhald og aðrir líti á verð hennar sem áskorun.

Starfsfólk í áfalli og kynhlutlaus salerni á barnum
Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til þess að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum og að henni sé því lokið í núverandi mynd.

Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi
Umhverfisráðherra segist ekki átta sig á ákalli formanns VG um að gengið verði lengra í stefnumörkun í vindorkumálum. Stefnumörkun í málaflokknum hafi verið lengi í undirbúningi og nú sé kominn tími til að framkvæma.

Óásættanleg hætta í hluta Grindavíkur, fuglahótel og Ungfrú Ísland
Nýfæddir tvíburar og móðir þeirra eru á meðal þeirra sem létust í sprengjuárás Ísraela á Gaza í vikunni. Viðræður um vopnahlé eiga að hefjast á ný á morgun. Við sjáum sláandi myndir frá Gaza og förum yfir stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Meiri kvika, erfiður rekstur og blandað gras
Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstur sé að aukast. Samkvæmt nýju hættumati eru enn taldar miklar líkur á hraunflæði innan Grindavíkur. Rætt verður við fagstjóra á Veðurstofunni í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vindmyllugarður, stóra kókaínmálið og hrist upp í matvörumarkaði
Fyrsta leyfið fyrir vindorkuveri á Íslandi var veitt í dag. Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun virkjanaleyfi fyrir Búrfellslundi þar sem stefnt er að því að reisa þrjátíu vindmyllur. Við ræðum við Höllu Hrund Logadóttur, orkumálastjóra, um framkvæmdina í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Stríðið í Úkraínu og tekist á um gjaldfrjáls námsgögn
Úkraínuforseti vill ná fram réttlæti og beita Rússa þrýstingi með sóknaraðgerðum úkraínuhers innan landamæra Rússlands. Aðgerðirnar ná nú tugi kílómetra inn fyrir landamæri Rússlands. Farið verður yfir stöðuna í stríði ríkjanna í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við sérfræðing í öryggis- og varnarmálum í beinni útsendingu.

Hælisleitendur óttast um líf sitt og hundur veikur eftir súkkulaði
Hælisleitendur óttast líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríki í Venesúela eftir endurkjör forsetans þar þegar hælisleitendum þaðan er vísað úr landi. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt verður við fólk sem bíður brottvísunar.

Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki
Rússar hafa lýst yfir neyðarástandi vegna gagnárásar Úkraínumanna innan landamæra Rússlands sem hófst fyrr í vikunni. Mikil leynd virðist hvíla yfir aðgerðum Úkraínumanna sem komu Rússum verulega í opna skjöldu.

„Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg
Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskóla Brákarborgar í Ármúla. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kynnum við okkur aðstæður í nýju bráðabirgðahúsnæði leikskólans og ræðum við borgarstjóra um þá stöðu sem uppi er eftir að alvarlegir skemmdir komu í ljós á húsnæði nýju Brákarborgar.

Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum
Við ræðum við forstjóra Landhelgisgæslunnar og framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar um útkall í Kerlingarfjöllum í gær. Leitað var í nærri tuttugu tíma að tveimur ferðamönnum sem taldir voru fastir í helli en nú talið að tilkynningin hafi verið gabb.

Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris
Í kvöldfréttunum verðum við í beinni útsendingu frá Kerlingarfjöllum, þar sem umfangsmikil leit hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi að tveimur erlendum feðramönnum, sem taldir eru sitja fastir í helli á svæðinu.

Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi
Dómsmálaráðherra var verulega brugðið að heyra af árás á fangaverði á föstudaginn. Hún vonar að bygging nýs fangelsis að Litla-Hrauni hefjist fljótlega á nýju ári. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi
Gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu landinu í kvöld og fram eftir morgundegi. Í kvöldfréttunum verður rætt við Karl Gauta Hjaltason, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, í beinni útsendingu en veðrið hefur leikið Þjóðhátíðargesti grátt.